Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 9
„Mesta mildin var auðvitað
sú að ekki varð manntjón,“
segir Gunnlaugur A. Júlíusson,
sveitarstjóri í Borgarbyggð.
Ein sú allra stærsta skriða sem
fallið hefur, að því talið er, féll
úr Fagraskógarfjalli í Hítardal
snemma á laugardagsmorgun, 7.
júlí. Fyrstu mælingar benda til að
efnismagnið sé 10 til 20 milljónir
rúmmetra. Stöðugt grjóthrun
og smáskriður hafa fallið úr
skriðusárinu frá því sú stóra féll.
Mikið hrun var úr sári skriðunnar
á laugardaginn, það hófst um
eftirmiðdaginn og stóð fram undir
miðnætti. Féllu nokkrar stórar
skriður og aðrar minni, en engin
náði þó niður að jafnsléttu. Þá féllu
ekki skriður úr gamla sárinu. Jón
var á ferðinni á þessum tíma og
fylgdist með atgangi í fjallinu en
varð ekki var við viðbragðsaðila á
þeim tíma sem hann staldraði við.
Eitthvað var um að fólk væri á ferli
að skoða staðhætti.
Fjarskiptasambandið í Hítar-
dalnum var ekki upp á marga
fiska, þannig lentu lögregla og
björgunarsveit í vandræðum með
samskipti sín á milli, ekkert gsm-
samband var á staðnum og lélegt
samband á tetra-stöðvunum, sem
eru neyðarstöðvar.
Velsóttur íbúafundur til
upplýsingar
Sveitarfélagið Borgarbyggð boð-
aði til íbúafundar í félagsheimil-
inu Lyngbrekku skömmu eftir að
skriðan féll og segir Gunnlaugur að
það hafi einkum verið gert íbúum til
upplýsingar um stöðu mála vegna
þeirra náttúruhamfara sem urðu á
svæðinu. „Það skiptir íbúana máli
að vita að tekið er á málum af ör-
yggi og festu og stjórnsýslan sýni
fagmennsku þegar atburðir sem
þessi eigi sér stað. Þetta er gríðar-
lega stór skriða, tjónið mikið og
það þarf að bregðast við á margan
hátt. Fjölmörg verkefni eru fram
undan og með því að bjóða íbúum
á fund gerum við þeim grein fyrir
hver staðan er og hver næstu skref
verða,“ segir Gunnlaugur.
„Veiði í Hítará átti að hefjast á
sunnudagsmorgun og vitað var af
ferðum manna við greni á svæðinu
á laugardagskvöld. Það er því mikil
mildi að skriðan féll á þeim tíma
þegar enginn var á þessum slóðum,“
segir Gunnlaugur.
Skriðan er um einn og hálfur
kílómetri á lengd og álíka breið, um
einn og hálfur kílómetri. Fagfólk
frá hinum ýmsu opinberu stofnun-
um mætti á fundinn og gerði grein
fyrir þeim þáttum sem að þeim snýr,
m.a. frá lögreglu og almannavörn-
um, Landsbjörg, Veðurstofunni,
Landgræðslunni, Veiðimálastofnun,
Bændasamtökunum Íslands og
Náttúruhamfaratryggingum Íslands.
Fulltrúar þessara aðila vinna að því
að leggja mat á afleiðingar skriðu-
fallsins, bæði nú þegar og til lengri
tíma litið.
Óvissa um margt
Gunnlaugur segir óvissu ríkjandi
hvað marga þætti varðar, það eigi
m.a. við um veiði og aðstæður við
Hítará, sem verið hefur fengsæl hin
síðari ár. Laxastigi í ánni er ónýtur.
Hítará hefur verið góð og gjöful lax-
veiðiá, þar sem lax er ríkjandi, um
750 laxar veiddust þar á liðnu sumri.
Þar veiðist einnig bleikja. Líkur eru á
að laxagengd minnki í kjölfar ham-
faranna og hlunnindi landeigenda
skerðist í kjölfarið. Áin hefur nú
fundið sér nýjan farveg framhjá
skriðunni.
Þá megi nefna afréttarmálin og
eins hvenær öruggt sé að hleypa
umferð fólks inn á svæðið í námunda
við skriðuna. Landslag er gjör-
breytt, stórt moldarflag á svæðinu
eftir skriðuna og því megi gera ráð
fyrir gríðarlegu moldroki frá henni.
Landgræðsla íhugi hvernig bregðast
megi við því, en hættan sé til staðar.
Á íbúafundinum hefðu menn hvatt til
þess að yfirvöld flýttu fyrir áburðar-
gjöf og sáningu yfir svæðið, sem nær
yfir um 180 ha lands í allt.
Girðingar töpuðust og eins hólf
sem bændur í Hítardal geymdu fé
sitt í á haustin. /MÞÞ
Náttúruhamfarir þegar skriða féll úr Fagraskógarfjalli:
Mikil eyðilegging og mildi að
ekki varð manntjón í Hítardal
Þessi mynd var tekin úr dróna við fjallsbrún Fagraskógarfjalls kl. 14.37 þann 16. júlí. Myndir / Jón Guðlaugur Guðbrandsson
Svipað sjónarhorn og örstuttu seinna, en þá hafði kletturinn við fjallsbrún líka hrunið niður.
urðu laugardagsmorguninn 7. júlí. Eldri vetrarmynd sýnir fjallið eins og
það var.