Bændablaðið - 19.07.2018, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201814
VEIÐIFRÉTTIR
Það hafa margir veitt maríulaxinn
sinn í sumar og á síðunni segjum
við frá tveimur slíkum.
Á hverju ári veiðast á milli 70 til
100 slíkir laxar víða um landið og
þetta eru veiðimenn á öllum aldri.
En maríulaxinn er fyrsti laxinn sem
veiðimenn veiða á ævinni. Flestir
bíta veiðiuggann af en alls ekki allir.
Í Blöndu fyrir skömmu var ungur
veiðimaður að renna fyrir lax og sá
dagur mun seint renna Ágústi Erni
Sigurðssyni úr minni en hann verður
8 ára núna seinna í sumar. Þá setti
hann í sinn fyrsta lax og landaði
honum.
Veitt var á svæði eitt og flugan
heimasmíðuð af Steina Hafþórs,
en hann þekkir ána betur en þú
handarbakið á þér.
Ágætlega gekk að landa og það
er hróðugur veiðimaður sem veiddi
maríulaxinn við Blöndu þennan
daginn. Enda fátt skemmtilegra en
að veiða fyrsta laxinn sinn.
Fiskurinn tók hjá mér!
Silungsveiðin hefur víða geng-
ið vel um landið og veiðimenn
verið duglegir að renna fyrir
silunginn.
Hreðavatn í Borgarfirði hefur oft
gefið vel en ekki er mikið talað um
það meðal veiðimanna. Við kíktum
aðeins upp að Hreðavatni fyrir fáum
dögum og hittum veiðimenn við
veiðar.
Ágæt veiði í Hreðavatni
Hreðavatn stendur við samnefndan
bæ í Norðurárdal og í vatninu
eru tveir stórir hólmar, Hrísey og
Álftárhólmi. Ágæt veiði er í vatninu.
,,Ég var að landa þessum silungi
og setti svo í stóran rétt áðan,“ sagði
Hafrún Ása er við hittum hana við
vatnið. Hún var nýbúin að landa
urriða sem hún hélt vel í og vildi
alls ekki sleppa honum. ,,Ég ætla
að hirða fiskinn og borða hann,
kannski,“ sagði Hafrún enn fremur
og hélt áfram að kasta spúninum.
Fiskurinn var alltaf að kippa í, hann
var til staðar en tregur að festa sig
á. En Hreðavatn kom á óvart, tölu-
verður fiskur er í vatninu og sumir
vel vænir. Bara að fá þá til að taka.
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
KLEFAR
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
HILLUR
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Héldu að þetta væri
silungatittur
Hún Guðrún Björnsdóttir veiddi
maríulaxinn sinn á Vatnasvæði
Lýsu á Snæfellsnesi fyrir skömmu.
Þar var hún í afmælisveiðiferð
með manninum sínum sem heitir
Ingimar Örn Karlsson. Auðvitað
var stöngin tekin fram og rennt
fyrir fisk.
„Flugan heitir Zelda, sem lax-
inn tók hjá mér, og baráttan stóð
yfir í næstum 40 mínútur. Þetta
var hörkugaman,“ sagði Guðrún.
Ingimar var að kenna konunni sinni
fluguveiði og þau héldu að það væri
einhver tittur á því hann lá lengi kyrr.
„Svo tók hann á rás og stökk upp og
ég fékk áfall og gargaði verulega
hátt. Mjög hátt,“ sagði Guðrún eftir
að hún sá fiskinn og bætti við: ,,Við
vorum alls ekki að trúa þessu, fisk-
urinn barðist vel og stökk nokkrum
sinnum upp.“ En eiginmaðurinn
hafði kennt Guðrúnu að halda
línunni strekktri og vera í sambandi
við fiskinn. „Ég náði að þreyta hann
vel og við náðum honum loksins upp
í lítinn silungaháf. Við vorum að fara
að veiða silung en ekki LAX, svo
háfurinn var allt of lítill, en þetta
hafðist. Fiskurinn var 63 cm langur,“
sagði Guðrún enn fremur eftir að
maríulaxinn var kominn á þurrt og
hún var hætt að öskra.
Matthías Eyjólfsson, múrara-
meistari í Reykjavík, nýtir hverja
lausa stund til veiða. Nú þegar
rigningin gerir iðnaðarmönnum
fyrir sunnan skráveifu getur
hann með góðri samvisku kastað
fyrir fisk. Ekki þýðir að múra í
votviðrinu.
Matthías brá sér í Laxá í
Mývatnssveit á dögunum og
landaði nokkrum vænum fiskum.
Náttúran skartaði sínu fegursta
og lífríki árinnar í blóma. „Laxá
í Mývatnssveit er ævintýri líkust
og eitt fallegasta svæði landsins!
Ég fékk eina ótrúlegustu og bestu
veiðivakt sem ég hef nokkurn
tímann á ævinni upplifað!“ sagði
Matthías.
Maríulaxinn
Laxveiðin gengur vel þessa dagana
en laxinn er að ganga í árnar á
hverju flóði. Vatnið er mikið,
fiskurinn stoppar lítið heldur þýtur
hann áfram.
,,Laxinn horfir hvorki til vinstri né
hægri,“ sagði veiðimaður við Blöndu
og það eru orð að sönnu. Annar
veiðimaður var staddur við veiðiá
fyrir vestan og á fimm mínútum
komu 40–50 laxar upp á brotið og
hylinn þar sem hann veiddi. Hann
fékk ekki högg. En svona er bara
veiðin – ekki á vísan að róa.
Góð veiði í frábærum félagsskap
,,Já, þetta voru skemmtilegir dagar í
Langá fyrir skömmu,“ sagði Harpa
Hlín Þórðardóttir, sem vinnur við
veiði, veiðir og veiðir meira. Hún
rekur veiðifyrirtæki með manni
sínum, Stefáni Sigurðssyni, og hugsar
um veiði nær allt árið. Hún var að
koma úr veiði og er á leiðinni í veiði.
,,Veiðin var mjög góð á svæði eitt
og þar er stappað af laxi en mikið vatn
var í ánni og vatnið kalt. Fiskur var að
skríða upp og dreifa sér um svæðin
svo það verður örugglega mikið fjör
næstu daga.
Allir fengu lax og sumir nokkra
svo stemningin var góð. Flott
veiðihús, frábær matur, góðir
leiðsögumenn og allur aðbúnaður til
fyrirmyndar,“ sagði Harpa.
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Dagur við Langá á MýrumÁgúst Ernir Sigurðsson með maríu-laxinn sinn í Blöndu.
Vaskur hópur veiðikvenna við Langá á Mýrum og allar fengu lax.
Guðrún Björnsdóttir með lax.
Hafrún Ása með urriða úr Hreðavatni. Mynd / María Gunnarsdóttir
Matthías Eyjólfsson múrari, glaður í bragði með staðbundinn urriða úr Laxá.
Múrarinn rennir
fyrir fisk