Bændablaðið - 19.07.2018, Síða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201824
Víðidalur í Reykjavík var vett-
vangur Landsmóts hesta manna
daganna 1.–8. júlí. Nokkur þúsund
manns voru þar saman komin til
að berja augum glæsilegustu hross
landsins í keppni og á kynbóta-
sýningu.
Talið er að um 8.000 manns hafi
lagt leið sína á Landsmót á hinum
8 dögum sem mótið stóð yfir en
brekkan við Hvammsvöll í Víðidal
var þétt setin yfir hápunktum móts-
ins sem fóru fram síðustu daga
hátíðarinnar.
Gestir virtust ekki láta veðrið á sig
fá, bjuggu sig samkvæmt aðstæðum
og skemmtu sér konunglega.
Fjölbreytt dagskrá fór fram víða
um dalinn, en fyrir utan keppni og
kynbótasýningar var m.a. hægt að
sitja fyrirlestra, sækja markað, kynna
sér hross og ræktunarbú, dilla sér og
frílysta á annan hátt.
Helstu úrslit í keppnisgreinum
Hafsteinn frá Vakursstöðum sigraði
A-flokk gæðinga með knapa
sínum, Teiti Árnasyni, með 9,09
í lokaeinkunn, eftir að hafa leitt
keppnina frá forkeppni.
Frami frá Ketilsstöðum og Elin
Holst hömpuðu Háfetabikarnum,
sigurlaunum B-flokks gæðinga.
Sigur Frama og Elinar var einkar
sætur en þetta er þriðja Landsmót
parsins á glæstum ferli þar sem
þau hafa orðið bæði Íslands- og
Reykjavíkurmeistarar í fjórgangi.
Þá hlaut Elin Gregersen styttuna við
mótslok, fyrir snyrtilegan hest og
prúða reiðmennsku.
Töltþrenna
Árni Björn Pálsson á Ljúfi frá
Torfunesi sigraði firnasterka
töltkeppni eftir eins konar einvígi
hans og Jakobs Svavars Sigurðssonar
og Júlíu frá Hamarsey í úrslitum á
föstudagskvöldið.
Þetta er í þriðja sinn í röð sem
Árni Björn fagnar sigri í greininni.
Árni Björn sigraði einnig 150 metra
skeið á Korku frá Steinnesi.
Skeiðmeistari
Heimsmet í 250 metra skeiði voru
slegin þrisvar sinnum á nokkrum
mínútum þegar keppt var í greininni
á föstudaginn.
Besta tímann átti hinn 21 árs
gamli Konráð Valur Sigurðsson á
hestinum Kjarki frá Árbæjarhjáleigu,
en mettíminn reyndist vera 21,15
sekúndur.
Konráð Valur og Kjarkur bættu
svo öðrum sigri við þegar þeir reynd-
ust fljótastir keppenda á flugskeiði.
Ung og efnileg
Hin 12 ára gamla Guðný Dís
Jónsdóttir frá hestamannafélaginu
Spretti sigraði barnaflokk á hesti
sínum Roða frá Margrétarhofi.
Benedikt Ólafsson frá hesta-
mannafélaginu Herði sigraði ung-
lingaflokk á stóðhestinum Biskupi
frá Ólafshaga en aðeins munaði
0,05 kommum á honum og Védísi
Huld Sigurðardóttur og Hrafnfaxa
frá Skeggsstöðum sem kepptu fyrir
hestamannafélagið Ljúf.
Það var svo Bríet Guðmunds-
dóttir á Kolfinni frá Efri-Gegnis-
hólum frá hestamannafélaginu
Spretti sem sigraði ungmennaflokk
en annar var Þorgeir Ólafsson á
Hlyn frá Haukatungu syðri sem
hlaut sæti í A-úrslitum með sigri
í B-úrslitum.
HROSS&HESTAMENNSKA
Glæst tilþrif endurspegluðu jákvæða framþróun íslenskra gæðinga á 23. Landsmóti hestamanna:
Líf og fjör á hátíð hestamanna
Guðrún Hulda Pálsdóttir
ghp@bondi.is
Árni Björn varð töltmeistari Lands-
Þær Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, sem situr Kjark frá Stangarlæk I og
-
Myndir / ghp
Konráð Valur klæddist Ferrari peysu í kappreiðunum og uppskar heimsmet
Ljúfur frá Torfunesi og Árni Björn Pálsson heilluðu bæði brekku og dómara
Guðný hikaði ekki við að hleypa Roða á stökk fyrir framan þúsundir áhorf-