Bændablaðið - 19.07.2018, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 27
var að grennslast fyrir um það kom
í ljós að það vildi ekki fara vegna
þess að veðrið var ekki ákjósan-
legt. Í þá daga þurfti ekki að greiða
neitt staðfestingargjald eða greiða
fyrirfram fyrir ferðina, eins og nú
tíðkast.
Útflutningur á
hestum var mikið torf
Póri rifjar upp útflutning á hestum á
árum Sambandsins sem stóðu í vegi
fyrir útflutningi hans á 110 hestum
til Ameríku.
„Þá komst ég í samband við konu
frá Staten Island rétt fyrir utan New
York. Ég fór með blaðamanni frá
Morgunblaðinu á fund úti, og allt
var klappað og klárt. Sýningin átti
að vera í Madison Squere Garden.
Þá stígur Sambandið inn í, segist
vera með einkaleyfi á útflutningi á
hestum og að öll viðskipti verði að
fara í gegnum þá. Konan sagði þá
við mig að hún vissi ekki að það væri
starfandi mafía á Íslandi og hætti við
allt saman. Svona var þetta, allt erfitt
og þröngt.“
Útflutningur utan Sambandsins
hófst svo smátt og smátt í kringum
1990 þegar menn stofnuðu fyrirtæki
utan um útflutninginn. Þá gat
Sambandið ekki staðið í vegi fyrir
viðskiptunum. Í kjölfarið voru settar
upp sýningar hér og þar.
Uppátækin fjölmörg
í gegnum tíðina
Í bókinni um sögu Laxnes
hestaleigunnar er frásögn af
Landsmóti sem haldið var á
Skógarhólum 1978. Póri rifjar þá
sögu upp:
„Það var þannig að ég reið
með þá fáu hesta sem ég átti á
Skógarhóla og hugmyndin var að
ríða niður að Valhöll fyrir hádegi og
fólk gæti stoppað þar og fengið sér
hádegisverð og farið svo aftur upp
á keppnissvæði. Þá mæta þar einir
12 lögreglumenn og stöðva mig.
Ég var rekinn út úr þjóðgarðinum
á þeim rökum að það mætti ekkert
leigja innan þjóðgarðsins. Samt var
bátaleiga þar. En mér var sagt að fara
út með alla mína hesta. Ég hafði svo
gaman af því þegar ég kom út og
lögreglan spurði mig hvar hestarnir
mínir væru. Þá benti ég á næsta hest
og sagðist eiga þennan, og þennan.
Lögreglan rak fólkið af baki sem
brást illa við og barði lögregluna
með svipum, enda átti ég ekkert
í þessum hestum. Þetta sýnir vel
þessa öfundsýki í Íslendingum. Að
einhver skyldi leyfa sér að fara með
hestaleigu fyrir framan Landsmót,
no way!“
Miklar framfarir í
ræktun íslenska hestsins
Ræktun á íslenska hestinum hefur
tekið miklum breytingum á undan-
förnum árum og áherslum verið
breytt. Póri segist hafa séð miklar
framfarir og sé ánægður með það
starf sem unnið er í ræktuninni.
„Það er rosalega gaman af þessu
unga fólki, ungu krakkarnir og
Háskólinn á Hólum. Þar er unnið
mikið og gott starf. Þetta er tvennt
ólíkt, fagmennskan við ræktun. Ég
hef alveg ofboðslega gaman að
því.“
Þol og þrek hesta er lykilatriði í
þeirri hestamennsku sem stunduð
er í Laxnesi og mikið lagt upp úr
þeim eiginleikum hestsins. Stefnan
hafi alltaf verið að njóta útiveru og
samveru hesta og manna.
Lítið gefinn fyrir öfundsýki
Þegar tal okkar berst að samkeppn-
inni á markaðnum þá segir Póri frá
dæmisögu.
„Ég var einu sinni með vídeó-
leigu niðri í gamla kaupfélagshúsi.
Þá átti ég ekki mikinn pening og
keyrði um á gamalli Lödu. Svo
var vinur minn að kaupa sér nýjan
Jaguar og spurði mig hvort ég vildi
ekki bara taka gamla Benz bílinn
hans og ég myndi svo bara borga
honum með hestum eða einhvern
tíma seinna. Ég þáði það en viku
seinna voru komnar tvær vídeó-
leigur í viðbót.“
Póri segir að oft sé settur upp
rekstur sem ekki sé hugsaður til
enda. Það sé vaðið í að taka lán til
að byggja upp en ekki hugsað fyrir
afborgunum og langtímarekstri.
/BR
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
551 5000
Ármúla 15, 108 Reykjavík - www.proventus.is - proventus@proventus.is
TIL FJÖLBREYTTRA
STARFA UM LENGRI
EÐA SKEMMRI TÍMA
Útvegum starfsmenn
Nánari upplýsingar í síma 551 5000 eða sendið
fyrirspurn á netfangið proventus@proventus.is
Hlaðan í Laxnesi er notuð til veisluhalda og er einkar notaleg sem slík.
Það vantar ekki fagmennskuna hjá járningamanninum, enda nokkrir hófar
sem þarf að járna reglulega.
Póri stillir sér upp hjá hnakk sem honum áskotnaðist úr erlendum nætur-
klúbbi. Þar var hann notaður sem barstóll. Hnakkurinn er um 200 ára gamall.