Bændablaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 201834
Sýklalyfjanotkun í landbúnaði og hagsmunagæsla:
Ágóði lyfjaframleiðenda
er gríðarlegur
Sýklalyf sem notuð eru í land-
búnaði eru mun ódýrari en sams
konar lyf sem notuð eru til lækn-
inga á fólki. Talið er að hagnaður
lyfjafyrirtækja vegna sýklalyfja til
landbúnaðar sé um 5,6 milljarðar
bandaríkjadala á ári, eða rúmlega
600 milljarðar króna.
Samkvæmt útreikningum
Animal Pharma, samtaka sem fylgj-
ast með lyfjanotkun í landbúnaði,
skilaði lyfjanotkun í landbúnaði
í Evrópu lyfjafyrirtækjum tæpum
135 milljörðum króna í hagnað á
síðasta ári og tæpum 215 milljörð-
um króna í Bandaríkjunum.
Talið er að heildarvirði sýklalyf-
jamarkaðarins í heiminum, hvort
sem þau eru notuð í landbúnaði
eða heilsugæslu manna, sé hátt í
fimm þúsund milljarðar króna á ári.
Í Bandaríkjunum er 70%
heildarnotkunar sýklalyfja tengd
landbúnaði og samsvarandi tala
fyrir Kína er áætluð 52%. Notkun
lyfjanna er að stórum hluta sögð
vera til að fyrirbyggja sjúkdóma
við svína-, naut- og kjúklinga-
eldi en lyfin eru einnig notuð sem
vaxtarörvar til að auka þyngd dýr-
anna.
Ógn við lýðheilsu jarðarbúa
Undanfarin ár hafa áhyggjur manna
vegna ofnotkunar á sýklalyfjum
aukist gríðarlega. Áhyggjurnar
stafa aðallega vegna aukins sýkla-
lyfjaónæmis baktería og þess að
fram hafa komið svokallaðar of-
urbakteríur sem eru ónæmar fyrir
flestum sýklalyfjum.
Samkvæmt yfirlýsingu frá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
er sýklalyfjaónæmi ein stærsta ógn
við lýðheilsu jarðarbúa. Talið er að
árlega deyi um 700.000 manns að
völdum sýklalyfjaónæmis og að
ef ekkert verður að gert muni að
minnsta kosti 10 milljónir mann
deyja af völdum þess fyrir árið
2050.
Vaxandi þrýstingur er á stjórn-
völd um allan heim að sporna
gegn misnotkun sýklalyfja sem
vaxtarhvata og þeirri ógn sem af
þeim stafar.
Þrátt fyrir yfirgnæfandi sannanir
fyrir þeim hættum sem geta staf-
að af misnotkun sýklalyfja stunda
lyfjafyrirtæki látlausan lobbýisma
og áróður til að koma í veg fyrir
að reglur um notkun lyfjanna verði
hertar og þannig dregið úr gróða
fyrirtækjanna.
Lyfjafyrirtækið Zoetis, sem er
stærsti framleiðandi sýklalyfja
fyrir dýr í heiminum, framleiðir
meðal annars sýklalyf sem kallast
cenftiofur en það lyf er talið mjög
mikilvægt til að koma í veg fyrir
sýkingar í fólki.
Árið 2012 sendi Matvæla- og
lyfjastofnun Bandaríkjanna frá
sér yfirlýsingu þar sem sagt var
að vegna styrkleika cenftiofur og
mikillar notkunar þess í landbúnaði
í Bandaríkjunum væru yfirgnæf-
andi líkur á að almenningi í landinu
stafaði hætta af notkun þess.
Sýklalyf til landbúnaðar ódýrari
Sýklalyf sem seld eru til notkunar í
landbúnaði eru margfalt ódýrari en
sýklalyf sem ætluð eru mönnum,
þrátt fyrir að oft sé um mjög svipuð
eða sama lyfið að ræða. Ástæða
þessa, að sögn talsmanna framleið-
enda, er meðal annars að sýklalyf
til landbúnaðar eru seld í stærri ein-
ingum og óvandaðri pakkningum.
Dæmi eru um að fólk noti sýkla-
lyf sem ætluð eru dýrum í stað
sýklalyfja sem það fær ávísað frá
læknum vegna þess að dýralyfin
eru margfalt ódýrari.
Grjóthörð hagsmunagæsla
Gagnrýnendur hagsmunagæslu
lyfjafyrirtækjanna, sem miðar að
því að koma í veg fyrir að hömlur
verði settar á notkun lyfjanna, segja
fyrirtækin beita öllum tiltækum
ráðum. Aðferðum þeirra hefur
verið líkt við aðferðir tóbaksfram-
leiðenda á sínum tíma og lyfjafyrir-
tækin sökuð um að beita neytendur
vísvitandi blekkingum.
Önnur aðferð framleiðenda
sýklalyfja er sögð vera að afneita
öllum rannsóknum sem benda til að
lyfin geti reynst hættuleg hvort sem
um er að ræða notkun í landbúnaði
eða hjá mönnum. Bragð þeirra er
oftar en ekki að tefja málið með því
að vísa til rannsókna sem benda til
hins öndverða. Oft rannsókna sem
fyrirtækin hafa greitt fyrir sjálf.
Söluaðferðir lyfjafyrirtækja sem
selja sýklalyf til notkunar í landbún-
aði ganga út á að draga sem mest úr
umtali um hættuna sem af lyfjunum
getur stafað og að gera allt tal um
slíkt vafasamt og óþarfa hysteríu.
Lobbýismi og árangur
Talið er að lyfjafyrirtæki í Banda-
ríkjunum hafi á árinu 2016 eytt 131
milljón bandaríkjadala í hagsmuna-
gæslu, öðru nafni lobbýisma.
Í lok síðasta árs hafnaði landbún-
aðarráðuneyti Banda ríkjanna tillögu
Alþjóðaheilbrigðis stofnunarinnar
þar sem lagt var til að bannað yrði
að gefa heilbrigðum dýrum sýklalyf
sem einnig væru notuð fyrir fólk.
Ástæða höfnunarinnar var sögð
vera sú að tillagan samræmdist
ekki stefnu Bandaríkjanna og að hún
byggði ekki á traustum vísindaleg-
um grunni.
Sýklalyfjanotkun í landbúnaði
á Íslandi og Noregi er sú minnsta
í heiminum. /VH
Í árdaga áttu dráttar véla-
framleiðendur það til að vera
stórorðir í auglýsingum og
hvergi slá af þegar gortað var
um gæði framleiðslunnar. Dæmi
er um að í heimsstyrjöldinni
fyrri hafi einn framleiðandi
haldið því fram að traktorinn
sem hann framleiddi gæti unnið
stríðið einn síns liðs.
Árið 1919 hóf Nelson Furnace
og Blower Co. framleiðslu á
dráttarvél. Nokkrar útgáfur
af vélinni höfðu þegar litið
dagsins ljós en í þetta sinn var
framleiðandinn bjartsýnn og
stórhuga.
Strax á fyrsta ári var boðið
upp á þrjár ólíkar týpur, 15 til
24, 20 til 28 og 35 til 50 hestöfl.
Allar týpurnar voru með fjögurra
strokka vél sem gekk fyrir bensíni
og parfínolíu. Gírkassinn var með
þremur gírum áfram og einum
afturábak. Vélin var á fjórum
jafnstórum stálhjólum og með
drif á öllum.
Bestar á markaði
Framleiðandinn lagði út í mikla
og stórorða auglýsingaherferð
og vart mátti á tímabili opna
blað sem tengdist landbúnaði
án þess að þar væri að finna
auglýsingu um Nelson dráttarvél.
Í auglýsingunum var hvergi slegið
af og því blákalt haldið fram að
Nelson traktorar væru þeir allra
fullkomnustu og bestu á markað
og hannaðir eftir óskum bænda.
Dæmi um texta í auglýsingu
frá 1919 var eitthvað á þessa
leið. „Verkfræðingar jafnt sem
söluaðilar og bændur telja
Nelson dráttarvélarnar vera þær
allra fullkomnustu á markaði
í dag. Nelson traktorarnir eru
hannaðir með styrk í huga og afl
í huga. Jafnframt því sem þeir eru
auðveldir í notkun, sveigjanlegir
og henta til allra bústarfa. Ekkert
verk er Nelson ofviða.“
Í annarri auglýsingu segir að
í prófun hafi Nelson traktorinn
dregið þungar byrðar langar
leiðir yfir mýrlendi sem var 30
sentímetra á kaf í vatni og rutt
sér leið upp tæplega kílómetra
háa og bratta hlíð í gegnum
þykkan undirgróður og fallna
trjástofna. Einnig segir að Nelson
dráttarvélin hafi verið reynd
og staðið sig vel við erfiðustu
aðstæður í Bandaríkjunum
þverum og endilöngum.
Keppinautunum úthúðað
Í auglýsingunum frá Nelson
var gengið svo langt að úthúða
keppinautunum og blákalt halda
því fram að dráttarvélar annarra
framleiðenda væru margfalt lakari
af gæðum og stæðust Nelson ekki
á nokkur hátt snúning.
Þrátt fyrir að stórt væri tekið
upp í sig var framleiðslan á
Nelson dráttarvélum ekki eða
að mjög takmörkuðu leyti hafin
þegar auglýsingaherferðin hófst.
Auglýsingarnar voru því, eins og
oft er með auglýsingar, stormur
í vatnsglasi, og ekki flugufótur
fyrir fullyrðingunum og líkt og
höfundar þeirra skrifuðu fyrir
hliðarveruleika þessa heims.
Nelson dráttarvélarnar þóttu
þegar upp var staði þokkalegar en
allt of dýrar miðað við gæði. Fáar
seldust og fyrirtækið fór á hliðina
árið 1924. /VH
Í Bandaríkjunum er 70% heildarnotkunar sýklalyfja tengd landbúnaði og
samsvarandi tala fyrir Kína er áætluð 52%.
UTAN ÚR HEIMI
Nelson-dráttarvélin
– stórorða auglýsingaherferð
Dæmi eru um að fólk noti sýklalyf sem ætluð eru dýrum í stað sýklalyfja
sem það
Heildarvirði sýklalyfjamarkaðarins í heiminum, hvort sem þau eru notuð í
landbúnaði eða heilsugæslu manna, er hátt í 5.000 milljarðar króna á ári.