Bændablaðið - 19.07.2018, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 47
Fyrir nokkru skrifaði ég um
þá reglu sem fylgir leyfum
á akstursíþróttum að á
keppnisstað sé alltaf tiltækur
sjúkrabíll.
Þessi regla er sjálfsögð og aldrei
hef ég heyrt akstursíþróttamann
kvarta yfir því að megnið af
keppnisgjöldunum fari í að borga
kostnaðinn við að sjúkrabíll sé á
keppnisstað. Vissulega er þetta
góð regla þar sem að ekki er alls
staðar gott farsímasamband þar
sem akstursíþróttir eru haldnar.
Víða um land afar slæmt
farsímasamband og á mörgum
bæjum ekkert
Fyrir nokkru átti ég samtal við
kunningja minn sem býr og
starfar við landbúnað á bænum
Sævarlandi fyrir norðan Tindastól
í Skagafirði. Ég kvartaði við hann
að ég hefði reynt að hringja í hann
í nokkra daga á undan og hann
svaraði ekki í farsímann sinn.
Svarið var einfalt: Það er ekkert
farsímasamband á Sævarlandi
og vonlaust að ná í mig heima
nema að hringja í heimasímann. Í
framhaldinu spurði ég hann hvort
það væri ekki áhyggjuefni að vera
einn við vinnu og ef svo óheppilega
vildi til að hann þyrfti að hringja
á sjúkrabíl yrði hann að koma sér
í heimasímann til að hringja eftir
hjálp. Aftur svaraði hann mér og
sagðist verða að búa við þetta og
vissi til þess að margir aðrir sem
vinna við landbúnað byggju við
svipað óöryggi.
Farsímafyrirtækin mættu gyrða
sig í brók
Ekki vantar samkeppnina hjá
farsímafyrirtækjunum sem aug-
lýsa hvert í kapp við annað og
í fjölmiðlum má heyra og lesa
fregnir af dómum vegna brota
á samkeppni. Ég er alveg sann-
færður um að miklu af þessu
auglýsingafé og sektargreiðslum
væri betur varið til að efla farsíma-
samband á þeim stöðum sem lítið
eða ekkert farsímasamband er.
Það eru heilu dalirnir og önnur
svæði þar sem tugir manna býr við
það óöryggi að geta ekki hringt
eftir sjúkraþjónustu vegna lélegs
símasambands. Hins vegar er ég
á því að farsímafyrirtækin ættu að
greiða gjald í sameiginlegan sjóð
til að bæta netsamband þar sem
það er slæmt, en oft margt fólk
er á, ekki ósvipað og bíleigendur
sem borga hluta af hverjum lítra
af eldsneyti sem fer til vegagerðar
og vegabóta.
Mikill fjöldi fólks á afskekktum
stað kallar á sjúkrabíl
Fyrir nokkru sagði ég frá því að
ég varð vitni að því þegar óvenju
mikið af fólki var á Gullfossi og
Geysi og kallað var eftir sjúkrabíl
þar vegna hjartaáfalls. Ég sá
þegar hringt var eftir aðstoðinni
á Gullfossi og fimmtíu og tveim
mínútum síðar kom bíllinn í
lögreglufylgd á skrúðgönguhraða
framhjá Hótel Geysi þar sem ég
stóð. Umferðin var svo mikil að
þó að hávaðinn og ljósadýrðin hafi
verið mikil var einfaldlega ekki
hægt að komast hraðar yfir.
Við Íslendingar eigum frábærar
björgunarsveitir sem vinna alla
sína vinnu í sjálfboðavinnu
og selja flugelda um áramót til
að eiga fyrir rekstri sveitanna.
Venjan er að þegar eru útihátíðir
sjá björgunarsveitir um gæslu
og fyrstu hjálp, en það má
nota þessar frábæru sveitir
meira. Á stærstu hátíðum
og þyngstu ferðahelgunum
mætti planta þessum frábæru
sveitum á fjölmennustu
ferðamannastöðunum og þar
sem er mikið af fólki, ég get ekki
séð að rútufyrirtæki og önnur
fólksflutningafyrirtæki sem eru
í ferðaþjónustu myndi með sér
sjóð til að dekka kostnaðinn til
að borga björgunarsveitunum.
Sjúkrabíl í réttir?
Miðað við að akstursíþróttafélög
séu með sjúkrabíl sama hvað
keppendur eru fáir þrátt fyrir að
akstursíþróttir séu að mínu mati
öruggustu íþróttir sem haldnar
eru vegna strangra reglna um
keppnistæki og klæðnað keppenda,
þá finnst mér það ekkert fráleitt að
sjúkrabíll eða björgunarsveit sé við
réttir. Allavega hef ég oftar séð menn
slasa sig í réttum undanfarin ár en í
akstursíþróttum. Spurningin er svo
hver eigi að borga fyrir sjúkrabílinn
í réttunum því ekki er afurðaverðið
til að hrópa húrra fyrir.
Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir
heyvinnuvéla, einnig slöngur og dekk
með eða án felgu.
FYRIR HEYSKAPINN
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaðiHEITI ÓVARINN DÓMS ÞRÓTTUR BÁTUR ÞYRPING STEFNA
UTANYFIR-
FLÍK
HRUKKA
ÓHEILINDI
LEYSIR
UTAN-
HÚSS
FLÝTIR
ERFIÐI
HLJÓÐ-
FÆRI
DVÍNA
TVEIR EINS
ASKUR
MUNNI
BLÓÐ-
HLAUP
TVEIR
EINS
BROTT-
REKSTUR
SKYNJAST
STEIN-
TEGUND
ÁLÍTA
HNUPLA
LAND-
SPILDA
HLIÐ
ENN
ÞRÆLKUN MJAKAÓSKIPTAN
BÓT Á FLÍK
BRAGAR-
HÁTTUR
VAFRA
GRÖM
EKKERT
EINRÆKTA
ÆSIR
RUNNI
MÆLI-
EINING
ÓLÆTI
FAG
ELDSNEYTI
SÝNIS-
HORN
ÚTLIMUR
GNÆGÐKRÁ
BÓK-
STAFUR
VEGUR
FJÖRU-
GRÓÐUR
SARG
TALA
TÍMABILS
RANGL
NÝLEGA
HÁTTUR
EINSKÆR
DRYKKUR
SKÓLI
FRÁ VÖRU-MERKIGÁIR
BOR
KERALDI FÍFLAST
ÚT-
HLUTAÐIR
MILDA
TIL
88
LÖGMÁL GAGN STRIT SVIF HILLING LEYFI GRIND
DHROKA-FULLUR R A M B L Á T U R
RHEGNA E F S A STUNDKERRA T Í M I
ATÁL G N K V A B B S
L O S S A DÁSTERKA R O T
Á HLÝJA DREIFA HNÝTTITRAUST B A T T SNJÓFÖLÁTT G R Á Ð TÆRA
SJÚK-
DÓMURSLARKA
BLOGA
SUÐ
GAFL
L Y S T A BEIN ÁNAHVÍLD A S N A STÖKUM MIKILL ÆLANGA
F L Á R VAFRASKILJA R Á F A BESTLÖNG M E S TSVIKULL
T U
ÓGREIDD-
UR
VAGN Ú F I N N
SÝKJA
PÍNA S M I T AÍ RÖÐ
A R K ÁIVÍSA LEIÐ A F I
SLAGHARPA
KYN-
KIRTILL P Í A N Ó HLJÓÐ-FÆRIRÓL
R HNOÐAÐÖGN E L T BÁGINDI N E Y Ð SARGFUGL U R G
U M R Ó T
HVOFTUR
VEIÐAR-
FÆRI G I N KRINGUM U M HÁMA ÍUM-TURNUN
N O R Ð A N
PEDALI
GJALD-
MIÐILL S T I G
STEFNA
SPRIKL Ú TÁTT
G
I
L
I
A
HINDRA
S
A
ÓSVIKINN
F
E
T
K
R
T
A
A
KANTUR
BYLGJA
J
L
A
I
Ð
Ð
A
A
R
DRYKKJAR-
ÍLÁT
TVEIR
87
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Hjálp í neyð, aðgengi sjúkrabifreiða
og farsímasamband
Áhöfn TF SYN hefur bjargað mörgum í gegnum árin, en íslenskt veðurfar
er ekki alltaf hagstætt til flugs.