Bændablaðið - 19.07.2018, Page 47

Bændablaðið - 19.07.2018, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júlí 2018 47 Fyrir nokkru skrifaði ég um þá reglu sem fylgir leyfum á akstursíþróttum að á keppnisstað sé alltaf tiltækur sjúkrabíll. Þessi regla er sjálfsögð og aldrei hef ég heyrt akstursíþróttamann kvarta yfir því að megnið af keppnisgjöldunum fari í að borga kostnaðinn við að sjúkrabíll sé á keppnisstað. Vissulega er þetta góð regla þar sem að ekki er alls staðar gott farsímasamband þar sem akstursíþróttir eru haldnar. Víða um land afar slæmt farsímasamband og á mörgum bæjum ekkert Fyrir nokkru átti ég samtal við kunningja minn sem býr og starfar við landbúnað á bænum Sævarlandi fyrir norðan Tindastól í Skagafirði. Ég kvartaði við hann að ég hefði reynt að hringja í hann í nokkra daga á undan og hann svaraði ekki í farsímann sinn. Svarið var einfalt: Það er ekkert farsímasamband á Sævarlandi og vonlaust að ná í mig heima nema að hringja í heimasímann. Í framhaldinu spurði ég hann hvort það væri ekki áhyggjuefni að vera einn við vinnu og ef svo óheppilega vildi til að hann þyrfti að hringja á sjúkrabíl yrði hann að koma sér í heimasímann til að hringja eftir hjálp. Aftur svaraði hann mér og sagðist verða að búa við þetta og vissi til þess að margir aðrir sem vinna við landbúnað byggju við svipað óöryggi. Farsímafyrirtækin mættu gyrða sig í brók Ekki vantar samkeppnina hjá farsímafyrirtækjunum sem aug- lýsa hvert í kapp við annað og í fjölmiðlum má heyra og lesa fregnir af dómum vegna brota á samkeppni. Ég er alveg sann- færður um að miklu af þessu auglýsingafé og sektargreiðslum væri betur varið til að efla farsíma- samband á þeim stöðum sem lítið eða ekkert farsímasamband er. Það eru heilu dalirnir og önnur svæði þar sem tugir manna býr við það óöryggi að geta ekki hringt eftir sjúkraþjónustu vegna lélegs símasambands. Hins vegar er ég á því að farsímafyrirtækin ættu að greiða gjald í sameiginlegan sjóð til að bæta netsamband þar sem það er slæmt, en oft margt fólk er á, ekki ósvipað og bíleigendur sem borga hluta af hverjum lítra af eldsneyti sem fer til vegagerðar og vegabóta. Mikill fjöldi fólks á afskekktum stað kallar á sjúkrabíl Fyrir nokkru sagði ég frá því að ég varð vitni að því þegar óvenju mikið af fólki var á Gullfossi og Geysi og kallað var eftir sjúkrabíl þar vegna hjartaáfalls. Ég sá þegar hringt var eftir aðstoðinni á Gullfossi og fimmtíu og tveim mínútum síðar kom bíllinn í lögreglufylgd á skrúðgönguhraða framhjá Hótel Geysi þar sem ég stóð. Umferðin var svo mikil að þó að hávaðinn og ljósadýrðin hafi verið mikil var einfaldlega ekki hægt að komast hraðar yfir. Við Íslendingar eigum frábærar björgunarsveitir sem vinna alla sína vinnu í sjálfboðavinnu og selja flugelda um áramót til að eiga fyrir rekstri sveitanna. Venjan er að þegar eru útihátíðir sjá björgunarsveitir um gæslu og fyrstu hjálp, en það má nota þessar frábæru sveitir meira. Á stærstu hátíðum og þyngstu ferðahelgunum mætti planta þessum frábæru sveitum á fjölmennustu ferðamannastöðunum og þar sem er mikið af fólki, ég get ekki séð að rútufyrirtæki og önnur fólksflutningafyrirtæki sem eru í ferðaþjónustu myndi með sér sjóð til að dekka kostnaðinn til að borga björgunarsveitunum. Sjúkrabíl í réttir? Miðað við að akstursíþróttafélög séu með sjúkrabíl sama hvað keppendur eru fáir þrátt fyrir að akstursíþróttir séu að mínu mati öruggustu íþróttir sem haldnar eru vegna strangra reglna um keppnistæki og klæðnað keppenda, þá finnst mér það ekkert fráleitt að sjúkrabíll eða björgunarsveit sé við réttir. Allavega hef ég oftar séð menn slasa sig í réttum undanfarin ár en í akstursíþróttum. Spurningin er svo hver eigi að borga fyrir sjúkrabílinn í réttunum því ekki er afurðaverðið til að hrópa húrra fyrir. Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir heyvinnuvéla, einnig slöngur og dekk með eða án felgu. FYRIR HEYSKAPINN ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaðiHEITI ÓVARINN DÓMS ÞRÓTTUR BÁTUR ÞYRPING STEFNA UTANYFIR- FLÍK HRUKKA ÓHEILINDI LEYSIR UTAN- HÚSS FLÝTIR ERFIÐI HLJÓÐ- FÆRI DVÍNA TVEIR EINS ASKUR MUNNI BLÓÐ- HLAUP TVEIR EINS BROTT- REKSTUR SKYNJAST STEIN- TEGUND ÁLÍTA HNUPLA LAND- SPILDA HLIÐ ENN ÞRÆLKUN MJAKAÓSKIPTAN BÓT Á FLÍK BRAGAR- HÁTTUR VAFRA GRÖM EKKERT EINRÆKTA ÆSIR RUNNI MÆLI- EINING ÓLÆTI FAG ELDSNEYTI SÝNIS- HORN ÚTLIMUR GNÆGÐKRÁ BÓK- STAFUR VEGUR FJÖRU- GRÓÐUR SARG TALA TÍMABILS RANGL NÝLEGA HÁTTUR EINSKÆR DRYKKUR SKÓLI FRÁ VÖRU-MERKIGÁIR BOR KERALDI FÍFLAST ÚT- HLUTAÐIR MILDA TIL 88 LÖGMÁL GAGN STRIT SVIF HILLING LEYFI GRIND DHROKA-FULLUR R A M B L Á T U R RHEGNA E F S A STUNDKERRA T Í M I ATÁL G N K V A B B S L O S S A DÁSTERKA R O T Á HLÝJA DREIFA HNÝTTITRAUST B A T T SNJÓFÖLÁTT G R Á Ð TÆRA SJÚK- DÓMURSLARKA BLOGA SUÐ GAFL L Y S T A BEIN ÁNAHVÍLD A S N A STÖKUM MIKILL ÆLANGA F L Á R VAFRASKILJA R Á F A BESTLÖNG M E S TSVIKULL T U ÓGREIDD- UR VAGN Ú F I N N SÝKJA PÍNA S M I T AÍ RÖÐ A R K ÁIVÍSA LEIÐ A F I SLAGHARPA KYN- KIRTILL P Í A N Ó HLJÓÐ-FÆRIRÓL R HNOÐAÐÖGN E L T BÁGINDI N E Y Ð SARGFUGL U R G U M R Ó T HVOFTUR VEIÐAR- FÆRI G I N KRINGUM U M HÁMA ÍUM-TURNUN N O R Ð A N PEDALI GJALD- MIÐILL S T I G STEFNA SPRIKL Ú TÁTT G I L I A HINDRA S A ÓSVIKINN F E T K R T A A KANTUR BYLGJA J L A I Ð Ð A A R DRYKKJAR- ÍLÁT TVEIR 87 Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Hjálp í neyð, aðgengi sjúkrabifreiða og farsímasamband Áhöfn TF SYN hefur bjargað mörgum í gegnum árin, en íslenskt veðurfar er ekki alltaf hagstætt til flugs.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.