Bændablaðið - 18.10.2018, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 7
LÍF&STARF
F yrr en fram er haldið þessum vísnaþætti, þá er brýnt að koma fram leiðréttingu á höfundi vísu
sem birtist í síðasta þætti. Og hver
annar en fræðabúntið Dagbjartur
Dagbjartsson á Hrísum vissi þar
betur á málum skil. Ég skráði höfund
að vísunni „Taumar leika mér í mund“
Eyjólf Jóhannsson í Sveinatungu.
Dagbjartur vissi vísuna eftir sr. Jakob
Guðmundsson á Sauðafelli, og þegar
gjör var gáð, reyndist það hárrétt hjá
Dagbjarti. Þakkir vil ég færa honum
fyrir vökult auga og ólaunað eftirlit með
misfellum mínum.
En órækur höfundur næstu hestavísu
er Ingólfur Ómar Ármannsson, en
vísuna orti hann á landsmóti hestamanna
í Víðidal sl. sumar:
Tilþrif sýnir tölt og skeið,
tifar létt um völlinn.
Yndi vekja gripin greið,
glymja hófasköllin.
En að öðru efnisvali. Sigurður Draumland
orti um útkomna atómljóðabók:
Hneig frá risi háttur ljóðs,
hrundi að dysjargrunni.
Skröltir visinn skotspónn hnjóðs
skálds í kisumunni.
Sr. Sigurður Norland í Hindisvík orti
háðslega til atómskálda í næstu tveimur
vísum:
Þeir sem geta ekkert ort
af því rímið þvingar,
ættu að stunda annað sport
eða hugrenningar.
Rímlaust kvæði að réttum sið
ritgerð fyrr var kallað,
en sem kvæði álitið
ákaflega gallað.
Næsta haustvísa er eftir Valdimar Hólm
Hallstað:
Dimmir yfir dagsins för,
dregur senn að hausti.
Ei er fært að ýta úr vör,
ólgar brim í nausti.
Benjamín Ólafsson, grenjaskytta á Brúará
í Kaldraneshreppi, orti næstu vísur tvær
um atvinnu sína:
Minni liðnu ævi á
eg sem skotið hefi
tvöhundruð og tvenna þrjá
telja máttu refi.
Fjórtán tíma muna má
miður þá við góða kosti
í skothúsi úti lá
í átján stiga hörðu frosti.
Títtnefndur Jóhann Eyjólfsson, alþingism.
í Sveinatungu, kvað um sr. Gísla Einarsson
í Hvammi:
Þunnt er orðið inn að beini
á Einars nið,
því hann étur ýsu eina
og ekkert við.
Og um hryssu sína Rottu kvað Jóhann:
Henni Rottu úr réttunum
ríð ég hrottalega,
bjórinn totta á bæjunum,
ber mig flott í selskapnum.
Að endingu langar mig að leggja hér fyrir
velvakandi vininn, Dagbjart á Hrísum,
hver muni höfundur þessarar borgfirsku
vísu?
Frjálst er í Flókadal
framsóknarmanna val,
það er nú þjóðlegur staður.
Enginn af öðrum ber,
efalaust þaðan fer
til andskotans annar hver maður.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Bændur bera saman bækur sínar
á hrúta- og gimbrasýningum
Mikil spenna er á meðal sauðfjárbænda
þegar þeir mæta með hrútana sína og
gimbrar á sýningar til að fá dóm á gripi sína.
Eftir að tölurnar liggja ljósar fyrir
bera bændur saman bækur sínar og fagna
niðurstöðunum eða klóra sér í höfðinu yfir
tölunum í þeirri von að þær hefðu verið
hærri. Nýlega var haldin sýning á bænum
Þjóðhólfshaga II í Holta- og Landsveit þar sem
fallegt fé var dæmt af ráðunautunum Guðrúnu
Hildi Gunnarsdóttur og Pétri Halldórssyni frá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. /MHH
Guðrún Hildur að dæma í fjárhúsinu í Þjóðhólfshaga. Ritarinn er klár að skrifa niður tölurnar og þarna má líka sjá Pétur ómskoða hrút.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
ráðunautarnir gáfu fénu þeirra.
Féð var mjög fallegt sem kom á sýninguna og
sáust margar háar tölur í dómunum.
fyrrverandi oddviti Rangárþings ytra og Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu.
Krakkarnir í Skarði létu sig ekk
i vanta á
sýninguna, hér eru systkinin Sum
arliði og
Helga Fjóla Erlendsbörn.