Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201810
Fallorka ehf. hefur reist
3,3 MW vatns aflsvirkjun í
Glerá ofan Akureyrar og
var hún formlega gangsett
og vígð fyrr í þessum
mánuði. Tilgangur hinnar
nýju virkjunar í Glerá er
að framleiða raforku inn
á dreifikerfi Norðurorku
hf. Árleg framleiðsla
virkjunarinnar er áætluð
22 GWst sem samsvarar
orkunotkun um 5 til 6
þúsund heimila á Akureyri eða
álíka margra rafbíla.
Framboð á raforku á Akureyri og
í Eyjafirði hefur verið takmarkað
undanfarin ár enda hefur Landsneti
ekki tekist að hrinda í framkvæmd
endurbyggingu á flutningslínum til
Akureyrar, hvorki frá Blönduvirkjun
né frá Kröfluvirkjun og
Þeistareykjum. Í minnsblaði vegna
opnunar vatnsaflsvirkjunarinnar
segir að fátt sé um virkjunarkosti á
mið-Norðurlandi og þörf sé á að reisa
smávirkjanir til að mæta eftir megni
vaxandi eftirspurn eftir raforku.
Dregur úr óþægindum ef
raforkuflutningur bregst
Virkjunin er búin tæknilega
fullkomnum Pelton-hverfli með 6
inntaksstúta frá Andritz í Þýskalandi
og mun hún geta keyrt sjálfstætt
og þannig dregið úr óþægindum
á Akureyri ef raforkuflutningur til
bæjarins bregst með öllu eins og
gerðist til dæmis í aftakaveðri sem
gekk yfir Norðurland í september
2012.
Með hinni nýju virkjun í
Glerá starfrækir Fallorka nú
fjórar vatnsaflsvirkjanir á
Eyjafjarðarsvæðinu. Félagið selur
raforku um allt Ísland samkvæmt
leyfi frá Orkustofnun. Fallorka
hefur undanfarin fjögur ár fengið
viðurkenningu Creditinfo sem
framúrskarandi fyrirtæki. Fallorka
er að fullu í eigu Norðurorku
sem rekur dreifikerfi fyrir
raforku á Akureyri og rekur auk
þess hitaveitu, vatnsveitu og
fráveitu á Akureyri og í nokkrum
nágrannasveitarfélögum. /MÞÞ
FRÉTTIR
Nýtt þjónustuhús fyrir mjólkur-
söfnun í Húnavatns- og Skaga-
fjarðar sýslum hefur verið tekið
í notkun við Hnjúkabyggð 34 á
Blönduósi.
Ámundakinn á húsið og sá um
byggingu þess. Framkvæmda kost-
n að ur nam um 190 milljónir króna
og er Mjólkursamsalan leigutaki
hússins. Landsbankinn á Sauðárkróki
fjármagnaði framkvæmdina að fullu
að undangengnu útboði.
Húsið er um 560 fermetrar að
grunnfleti, með rúmlega fimm
metra lofthæð og byggt á háum
steyptum sökkli. Með tilkomu
hússins gjörbreytist vinnuaðstaða
mjólkurbílstjóra til hins betra en í
því eru tvö rúmgóð búningsherbergi
með baði, kaffistofa, skrifstofa og
tvö hvíldarherbergi með baði, auk
geymslulofts.
Ámundakinn, Auðhumla,
Kaup félag Skagfirðinga og
Mjólkur samsalan undirrituðu
viljayfirlýsingu um byggingu á
nýju þjónustuhúsi og leigu til langs
tíma í febrúar í fyrra og hófust
framkvæmdir við bygginguna í
fyrrasumar. Húsið var svo formlega
tekið í notkun fyrir skemmstu að
viðstöddu fjölmenni. Jón Sigurðsson
á Blönduósi tók myndirnar sem
birtust á vef Húna. /MÞÞ
Ámundakinn tekur í notkun nýbyggingu á Blönduósi:
Nýtt þjónustuhús fyrir mjólkursöfnun
Í nýja þjónustuhúsinu verður aðstaða til að umferma mjólk og þrífa
Norðurlandi í tengslum við aðra landshluta. Myndir / Húni
Snemma í sumar kynnti DeLaval
nýja kynslóð mjaltaþjóna
sem óhætt er að segja að sé
byltingarkennd breyting frá fyrri
mjaltaþjónum. Þar er um að ræða
breytt útlit, nýtt tölvukerfi og
aukna virkni sem er að skila um
10% afkastaaukningu frá því sem
áður var.
Hefur þessi nýi mjaltaþjónn
vakið mikla athygli erlendis og
þegar eru seldir 777 mjaltaþjónar.
Bústólpi, umboðsaðili DeLaval,
pantaði fyrsta mjaltaþjóninn
þessarar gerðar til landsins. Delaval
mjaltaþjónninn var til kynningar á
sýningunni Íslenskur landbúnaður
2018 í Laugardalshöll um síðustu
helgi.
10% aukning í afkastagetu
Stefán Hlynur Björgvinsson,
þjónustustjóri DeLaval hjá
Bústólpa, segir að helsti munurinn
á þessum nýja mjaltaþjóni og eldri
gerðum séu aukin afkastageta. Hún
náist með breyttum og sterkari armi,
nýrri myndavél, þrívíddartækni
og nýjum hugbúnaði í þessum
mjaltaþjóni sem nefnist V300. Þá
er komið nýtt smáforrit eða „app“
sem auðveldar stjórn mjaltaþjónsins
í gegnum farsíma.
„Sem dæmi um breytinguna þá
lærir þessi mjaltaþjónn sjálfvirkt
á hverja kú í stað þess að áður
þurfti að stilla spenastaðsetningu
handvirkt inn í byrjun. Leshraðinn
og virknin í ásetningararminum er
þannig mun meiri en áður og það
skilar þessum auknu afköstum.
Nákvæmnin er því mun meiri og
er uppgefin frá framleiðanda allt að
99% hittni á spena. Hann getur sett á
spena sem eru með allt að 45 gráðu
halla. Það er þó auðvitað misjafnt
eftir því hvernig spenarnir vísa.
Þarna hjálpar þrívíddarmyndavélin
til.
Ef það koma upp einhver
vandamál varðandi gripi, þá er alltaf
fyrir hendi sá valmöguleiki að gera
arminn óvirkan og setja á spenana
handvirkt. Þá er þetta nánast eins
og í mjaltabás.
Eins er kominn aukaþvottur á
myndavél með sérstakri sápu sem er
mjög gott ef það slettast óhreinindi
á linsuna. Spenaþvottur er líka
breyttur og sérdæla sem heldur
uppi þrýstingu þó vatnsþrýstingur
á lagnakerfinu í fjósinu sé lágur.
Þannig verður spenaþvotturinn betri
með vatni og þrýstilofti og síðan
formjöltun og þurrkun. Þetta skapar
mikla örvun fyrir júgrað sem verður
þá fljótara að gefa mjólk. Þannig
styttist mjaltatíminn.“
Getur annað 6 til 8 fleiri kúm
„Við höfum miðað við að
hefðbundið afkasti einn mjaltaþjónn
auðveldlega 60 til 65 kúm en það
getur verið breytilegt eftir aðstæðum
og dæmi um yfir sjötíu kýr á einum
mjaltaþjóni. Afkastaaukning um
10% með nýja mjaltaþjóninum er
því mikil og skiptir umtalsverðu
fyrir framleiðendurna þegar þeir
velja sér mjaltaþjón,“ segir Stefán.
„Segja má að allur innri
búnaður hafi verið endurhannaður,
þvottakerfi sömuleiðis, hnappaborð
komið í stað snertiskjás til
stjórnunar, ný staðsetning á
snertiskjá. Þá geta kaupendur valið
um hvort þeir taka þennan snertiskjá
með mjaltaþjóninum eða ekki.“
Þrjár þjónustuskoðanir á ári
– Nú horfa bændur ekki síst á
þjónustuna þegar þeir standa
frammi fyrir kaupum á tækjum
eins og mjaltaþjónum. Hvernig er
þjónustunni háttað hjá ykkur?
„Það eru hefðbundnar
þjónustuskoðanir þrisvar á ári,
en það ræðst þó nokkuð af fjölda
kúa. Við höfum þó farið út í að
fækka þjónustuskoðunum ef menn
eru með 40 kýr eða færri. Það eru
þrír aðalþvottar sem fara fram á
sólarhring og því þarf að passa upp
á slit á gúmmíi.“
Mjaltaþjónar ráðandi í
tækniþróuninni
„Flestallir þeir sem eru að gera
breytingar á fjósum eða byggja
ný í dag velja mjaltaþjón og
þessi tækni er því stöðugt að
verða almennari, enda hefur hún
sannað sig á undanförnum árum
í mjólkurframleiðslu hér á landi.
Sumir þeirra sem eru með elstu
mjaltaþjónana eru líka farnir að
huga að útskiptum og fyrir þá
er auðvelt í framkvæmd að færa
sig yfir í þann nýja frá DeLaval.
Mjaltaþjónarnir hafa sýnt það að
nytin eykst og vinnan breytist og
verður léttari. Þá gefur það tíma til
meiri eftirfylgni og menn geta þá
spáð í hverju sé hægt að breyta til
að bæta nyt og heilbrigði,“ segir
Stefán.
Hann segir að nýr Delaval
mjaltaþjónn kosti um 17,3 milljónir
í dag auk virðisaukaskatts. Þetta
er um einni milljón hærra verð en
á eldri gerð. Nokkur óvissa er þó
um hvernig verðið þróast á næstu
misserum ef horft er til mikilla
gengisbreytinga að undanförnu
með lækkun krónunnar.
Búið að selja 777 nýja DeLaval
á heimsvísu síðan í júlí
Gríðarlegur áhugi hefur verið fyrir
þessum mjaltaþjónum frá DeLaval.
Þannig hafa selst 777 þjónar síðan
þeir komu fyrst á markað í júlí.
Í Noregi hafa selst 99 DeLaval
mjaltaþjónar og hefur einnig verið
góð sala í Hollandi, Frakklandi og
í Danmörku,. Eins hafa Bandaríkin
verið að koma sterkt inn.
Þess má geta að mjaltaþjónninn
sem var til sýnis í Laugardalshöll er
þegar seldur sem og tveir af þremur
sem eru á leið til landsins. /HKr.
Íslenskur landbúnaður 2018:
Nýr og byltingarkenndur
mjaltaþjónn frá DeLaval
– Þegar búið að selja þrjá slíka hér á landi og 777 á heimsvísu
Myndir / HKr.
Þörf fyrir smávirkjanir til að mæta
vaxandi eftirspurn eftir raforku