Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201814 Á hverju sumri gerist ýmislegt í veiðinni hjá veiði mönnum, stórir lax ar, litlir laxar eða bara margir laxar. Hann Ómar Gunnarsson var á veiðislóð í sumar og veiddi lax rétt yfir 100 sentímetra í Aðal daln- um. „Ég náði í sumar, í annað skiptið, að landa fiski rétt yfir 100 cm í Nesi í Laxá í Aðaldal, nánar tiltekið í Beygjunni. Þessi lax var minn stærsti í sumar en samt ekki sá eftirminnilegasti. Ég fór tvær ferðir í sumar í Ormarsá á Melrakkasléttu og þar eru nú aldeilis flottir „hits“ veiðistaðir, eins og t.d. Efri-Hvannamýri og Þrepin, sem ég fer alltaf yfir með „hitsið“. Ég var einmitt á sk. Mið-Þrepi núna í ágúst, það var logn en sterk sól á móti mér sem blindaði mig þannig ég hélt rétt að „hits“ væri ekki málið. Rétt þegar ég kemst á tökustað þá fer sólin úr andlitinu á mér og ég sé vatnið mjög vel. Undir er „einkrækju míkró- hits“ og í fyrsta rennslinu kemur lax upp úr en tekur ekki. Vá, fullkomið segi ég við sjálfan mig. Í sömu sporum og með nákvæmlega sömu línu tek ég rennsli númer tvö og aftur kemur fiskurinn upp á eftir „hitsinu“. Aftur vá, æðislegt, segi ég við mig aftur og hugsa, sama er mér þó ég nái ekki þessum, ég er búinn að ná tvisvar „kontakti“ við fiskinn og allt annað er risaplús hér eftir. Í þriðja rennslinu kemur fiskurinn upp úr tvisvar áður en hann neglir „hitsið“. Eftir mild átök við fiskinn landa ég ca 70 cm hæng, aðferð og augnablik sem maður gleymir aldrei,“ sagði Ómar í lokin. Það hafa nokkrir veiðimenn fengið maríulaxinn sinn í sumar og við höfum greint frá nokkrum vöskum veiðimönnum. Og þeir eru ennþá að setja í hann því það er enn klakveiði í sumum ánum og henni var að ljúka. Matthías Kári, fimm ára, fór með pabba sínum, Jóhanni Davíð Snorrasyni, að veiða í klak í Laxá í Kjós. Matthías var ekki lengi að setja í sinn fyrsta lax og landaði hann alveg sjálfur 10 punda glæsilegri hrygnu eftir mikið reiptog. Matthías veiddi svo tvo til viðbótar og er því með sanni strax orðinn stór veiðimaður. Laxá í Kjós endaði í kringum 1.000 laxa og hellingur veiddist af sjóbirtingi, sumum vel vænum. „Við fengum flotta birtinga í lokin og þá rest í Káranesfljótinu, flotta fiska, bolta suma,“ sagði veiðimaður sem veiddi í Kjósinni undir lokin. Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is KLEFAR Kæli- & frystiklefar í miklu úrvali. Vottaðir gæðaklefar með mikla reynslu á Íslandi. Einfaldir í uppsetningu. HILLUR fyrir kæli- & frystiklefa. Mikið úrval og auðvelt að setja saman. Sérhannaðar fyrir matvæli. KÆLI & FRYSTI BÚNAÐUR Hafðu samband í síma 587 1300 og við sérsníðum lausn sem hentar þér! HLUNNINDI&VEIÐI Mynd / María Gunnarsdóttir Hvenær mun Andakílsá detta inn aftur? „Þetta er bara sorglegt með Andakílsá, þarna veiddi maður á hverju sumri, oft stundum og veiddi vel, þetta slys var sorglegt,“ sagði veiðimaður sem saknar Andakílsá, sem ekkert hefur verið hægt að veiða núna síðustu tvö sumur eftir slysið sem þar var. „Já, maður veiddi bæði lax og vænar bleikjur stundum. Það var sérstakur stofn í ánni, stuttur og sver lax, hann er örugglega alveg horfinn eftir þetta sorglega slys, svona er þetta bara, vonandi fær maður að veiða aftur í ánni,“ sagði veiðimaðurinn. Dregið var á í ánni núna í sumar og eitthvað náðist af laxi, eins og fyrir ári síðan, en áin á ennþá langt í land. Og alls ekki er vitað hvenær verður veitt í henni aftur, ekki næsta sumar, kannski þarnæsta. Það veit bara enginn. Fleiri maríulaxar á land Gunnar Bender gunnarbender@gmail.com Eftirminnilegasti lax sumarsins Endaði sumarið með stæl „Já. við voru í Eystri-Rangá, ég og Dagur bróðir, og fengum flotta veiði,“ sagði Sigurður Garðarsson sem veiddi 100 sentímetra lax í veiðitúr fyrir austan fjall. „Laxinn tók „Thunder and Lighting Longtail“ á Hofsstaða- breiðunni og þetta var slagur í 40 mínútur. Fiskurinn fór síðan beinustu leið í klakkistuna, eftir að honum var landað. Þetta var skemmtilegt og við fengum 50 laxa,“ sagði Sigurður í lokin. Ytri- og Eystri-Rangárnar tróna á toppnum eftir þetta sumar og veiðin er að enda í þeim á allra næstu dögum. Síðan kemur Þverá í Borgarfirði, sem var feiknarlega góð í sumar. Senn hefst rjúpnaveiðin Rjúpnaveiðimenn bíða nú spennt- ir eftir að veiðitímabilið hefjist, fyrsta helgin í rjúpu er 26. til 28. október. Síðan má veiða 2. til 4. nóvember, svo 9. til 11. nóvember og lokahelgin er 16. til 18. nóvember. „Það er allt klárt fyrir rjúpuna hérna,“ sagði Súddi stórgæd í Breiðdal á Facebook-síðunni sinni fyrir skömmu. Klykkti hann síðan út með að sýna vídeó út um gluggann á veiðihúsinu í Breiðdal þar sem nokkrar rjúpur voru í dauðafæri. En það mátti bara horfa á þær en ekki gera neitt annað strax. Mynd / María Gunnarsdóttir. Mynd / Dagur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.