Bændablaðið - 18.10.2018, Síða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 17
Hafðu samband við sölumann í síma 590 5116 eða sendu línu á iab@klettur.is og kynntu þér þína möguleika.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Nú bjóðum við MultiOne 6.3 SD vélar á enn betra verði en áður og
með fleiri aukahluti innifalda. Um er að ræða frábærar fjölnotavélar
með 1200 kg lyftigetu.
Á MultiOne 6.3 SD situr stjórnandi í aftari hluta þessara lipru og
sveigjanlegu véla. Vélarnar afhendast með skóflu, aukaballest
að aftan og taðgreip.
Ný sending af MultiOne
6.3 SD fjölnotavélum
Oft veltir lítil vél þungu hlassi
Hringhella 12, 221 Hafnarfjörður · Sími 565 1489 · isror@isror.is · www.isror.is
Hjá Ísrör færðu einangruð
hitaveiturör frá LOGSTOR
– Stálrör
– Stálfittings og samsetningar
– Pexrör
– Pexfittings og samsetningar
– PexElextra sveiganlegri plaströr
– Pexfittings og samsetningar
Og svo allt annað sem þarf til
hitaveitulagna
Nýtt hjá ÍSRÖR
Bjóðum nú kaldavatnslagnir
PE-100 og PE-80 ásamt
tilheyrandi fittings
Bjóðum einnig snjóbræðslurör
PP og PE
Líklega besta verðið
MENNING&LISTIR
Í fyrsta sinn á Íslandi – Pop up market:
Næturmarkaður í Gamla bíó
Reykjavík.POPUP.Nightmarket
er komið til að breyta markaðs-
stemmingu bæjarins og skapa
vetfang fyrir hönnuði og listafólk,
til kynna list sína og framleiðslu
auk þess sem lifandi list
verður í hávegum
höfð. Við byrjum
í Gamla bíó
með POP UP -
nætur markað
20. Október,
kl. 17.00 til
miðnætt is og
jafnvel lengur.
Hugmyndin er að
skapa skemmtilegan
og lifandi markaðs-
stemmingu í hjarta borgar-
innar. Þar sem ægja mun saman
sölubásum, uppákomum, tónlistar-
og listviðburðum. Allri list verður
gert hátt undir höfði, hvort sem
það er mynd-, rit-eða tónlist. Boðið
verður upp á mat, drykk, gjörninga,
innsetningum, ljósagang, lifandi
tónlist sem og plötusnúða.
Á markaðnum verður skemmti-
leg karnivalstemning í bland við
brask og brall með ýmiskonar
varning. Listamenn, handverksfólk
og prangarar selja vörur sínar og
listafólk fremur alls kyns gjörninga.
Lifandi tónlist og laufléttar veitingar
í bland við götulíf og görótt
galdrafólk - það má búast við öllu
þetta kvöld.
Teitur Magnússon verður
sérstakur heiðursgestur kvöldsins
og mun bjóða upp á sína rómuðu
ást, huggulegheit og einlægni.
Einnig koma fram tvær kanadískar
listakonur:
Zuzu Knew sem er búsett á
Íslandi og kom hingað að finna
rætur sínar. Hún gerir teiknimyndir,
hannar búninga og vinnur með
myndvarpatækni þar sem hún
blandar saman ljósi, formum og
myndlist. MSEA, einnig þekkt sem
Maria-Carmela, er hljóðlistamaður,
söngkona og tónskáld sem er búsett
í Reykjavík en upprunalega frá
Toronto, Canada. Tónlist MSEA
skoðar hugmyndir um hvað
það er að vera kona og
að missa tengingu
við líkamann, og
hún leikur sér
á mörkunum
milli fegurðar
og óþæginda.
Tónlistin er unnin
úr náttúrulegum
sem og stafrænum
hl jóðum, svo
úr verður ákveðin
klippimynd hljóða.
Radddrifin hljóðverk eru oft
blönduð við ýmsa hljóðheima.
Stundum spilar hún alein, og
stundum með stórum eða smáum
hljómsveitum. MSEA stefnir
stöðugt á samvinnu með nýju fólki
og að gera hlutina aldrei eins.
Þess má einnig geta að hin
fornfræga plötubúð Hljómalind
rís upp frá dauðum með þá Kidda
Kanínu, Kára Þór og Krumma úr
Bónusplötum í broddi fylkingar, auk
þess sem búast má við fleiri gestum.
Birna María verður með hóp
ungra myndlistarmanna á efri
svölunum þar sem ýmislegt óvænt
og spennandi verður baukað. Inga
dóra úr Tribal Mantra verður á
svæðinu með sín rómuðu handofnu
silki/ullar/Jakuxa sjöl, fatnað og
glingur ýmiskonar frá framandi
löndum.
Auk þess má búast við mörgum
fleiri aðilum að taka þátt með
sölubása ýmiskonar.
reykjavik.popup@gmail.com
https://www.facebook.com/
reykjavik.popup/ - https://
www.facebook.com/
vents/730220170647888/