Bændablaðið - 18.10.2018, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 21
Bændablaðið óskaði eftir
svörum frá Guðmundi Inga
Guðbrands syni umhverfis- og
auðlindar áðherra þann 24.
ágúst um afstöðu hans til sölu
íslenskra orkufyrirtækja á
hreinleikavottorðum. Svar barst
16. október og þar segir:
„Þetta kann að virka vel í Evrópu
þar sem raforka getur flætt frá einu
landi til annars, og skapað hvata
fyrir endurnýjanlega orku. Hérlendis
orkar þetta hins vegar mjög svo
tvímælis, enda alveg ljóst að við
framleiðum t.d. ekki kjarnorku –
og því kemur mjög spánskt fyrir
sjónir að rafmagnsreikningurinn
sýni eitthvað slíkt.
Hér á landi heyrir málið undir
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið
sem lét vinna skýrslu árið 2016 um
upprunaábyrgðir raforku í íslensku
samhengi. Í henni er meðal annars
bent á að sala upprunaábyrgða úr
landi geti skaðað ímynd Íslands,
þ.e. þá ímynd að orkuframleiðsla
landsins sé hrein og endurnýjanleg
(og þar með orkunotkun). Undir
þetta tek ég.
Ég er sammála því sem kom
fram þegar skýrslan var kynnt að ef
markmið stjórnvalda er að tryggja
ímynd Íslands og að framsetning á
raforkusölu á Íslandi sé með þeim
hætti að hér sé eingöngu framleidd
og seld endurnýjanleg raforka,
þá virðist sala orkufyrirtækja á
upprunaábyrgðum úr landi ekki
samræmast því markmiði.“
Til að bókhaldið gangi upp
þurfum við að bæta menguninni
við okkar bókhald
– Er eðlilegt að íslensk orkufyrirtæki
stuðli að rekstri erlendra orkuvera
sem ýmist eru kynnt með
jarðefnaeldsneyti eða kjarnorku og
gefi þeim hreinleikastimpil með því
að selja þeim vottorð með ávísun í
íslenska orku sem framleidd er með
endurnýjanlegum orkugjöfum?
„Íslenskir orkuframleiðendur
geta selt upprunaábyrgðir til
orkusölufyrirtækja í Evrópu. Þær
upprunaábyrgðir raforku sem seldar
eru erlendis þarf að draga frá hér á
landi til að tryggja að þær séu ekki
taldar fram tvisvar. Til að bókhaldið
gangi upp þurfum við síðan að
bæta kjarnorku, gasi og öðru slíku
erlendis frá við bókhaldið hjá okkur.
Þetta er gert til að koma í veg
fyrir tvítalningu en fyrir vikið gerist
það einkennilega að kjarnorka, sem
dæmi, verður hluti af framsetningu
á uppruna raforku á Íslandi. Líkt
og Bændablaðið benti á í umfjöllun
sinni í sumar var 87% af raforku
á Íslandi sögð framleidd með
kjarnorku, kolum, olíu og gasi
árið 2017. Þetta er augljóslega afar
sérkennilegt.
Vert er að hafa í huga að
þótt íslenska ríkinu sé skylt
samkvæmt EES-samningnum að
gefa raforkusölum hérlendis kost
á að fá útgefnar upprunaábyrgðir
og taka þátt í viðskiptum með
þær, þá er þátttaka orkufyrirtækja
og orkunotenda í kerfi með
upprunaábyrgðir hins vegar
valfrjáls. Orkufyrirtækjum er með
öðrum orðum hvorki skylt að
sækja um upprunaábyrgðir vegna
framleiðslu sinnar né að taka þátt í
viðskiptum með upprunaábyrgðir.
Óeðlilegt að Íslendingar taki á sig
ómælda mengun á pappírunum
– Er eðlilegt að Íslendingar taki á
sig ómælda mengun á pappírunum
vegna sölu hreinleikavottorða, á
sama tíma og íslensk stjórnvöld
hafa það að markmiði að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda?
„Það þykir mér ekki. – Rétt er þó
að undirstrika að þetta breytir engu
um okkar alþjóðlegu skuldbindingar
í loftslagsmálum, hvorki hvað varðar
hlutfall endurnýjanlegrar orku né
loftslagsbókhald, enda byggir
bókhald okkar þar á raunframleiðslu
íslenskrar raforku. Sala hérlendra
orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum
þýðir þannig til dæmis ekki að
Ísland fái bókfærða losun frá
kolaorkuverum í Evrópu.
Þetta tengist alþjóðlegum
skuldbindingum okkar í loftslags-
málum m.ö.o. ekkert en er á hinn
bóginn til dæmis ímyndarmál. Og
sem slíkt tel ég það slæmt.“
Bundin af löggjöf
Evrópusambandsins
– Hyggst ráðherra beita sér fyrir
breytingu á þessu fyrirkomulagi,
eða afnámi heimilda til sölu á
slíkum hreinleikavottorðum?
„Reglur um upprunaábyrgðir voru
innleiddar hér á landi með lögum
nr. 30/2008 um upprunaábyrgð
á raforku sem framleidd er með
endurnýjanlegum orkugjöfum
o.fl. Þau heyra undir ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Ísland er síðan bundið af
löggjöf Evrópusambandsins um
upprunaábyrgðir vegna aðildar
sinnar að Samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið. Ég sé
ekki hvernig við ættum á auðveldan
hátt að fara út úr þessu en bendi
aftur á framangreint svar um
að orkufyrirtækin þurfa ekki að
taka þátt í þessu. Þeirra er valið.
Enn fremur er mikilvægt að í
eigendastefnu þeirra orkufyrirtækja
sem eru í eigu hins opinbera verði
lögð áhersla á að standa vörð um þá
ímynd að á hér á landi sé eingöngu
framleidd og seld endurnýjanleg
orka,“ segir Guðmundar Ingi
Guðbrandsson í svari sínu. /HKr.
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐA DANSKAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
OPIÐ:
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM VÖNDUÐ GÆÐAVARAGOTT SKIPULAG
þessum blekkingarleik sé virkilega
þess virði.
Hrópandi þversagnir
Þá segir einnig í svari Lands-
virkjunar til Bændablaðsins að
öll sala Landsvirkjunar inn á
heildsölumarkað sé vottuð sem
endurnýjanleg með samevrópska
upprunaábyrgðakerfinu fyrir árin
2016 og 2017. Þetta samstarf
við sölufyrirtæki rafmagns var
tilkynnt í maí 2017. Samt segir í
gögnum Orkustofnunar að einungis
13% orkuframleiðslunnar eigi
uppruna sinn í endurnýjanlegum
orkugjöfum. Þetta virðist vart
benda til annars en að samevrópska
upprunaábyrgðakerfið sé hreinlega
búið til sem peningamaskína
í blekkingarskyni. Í rökum
Landsvirkjunar um þetta atriði segir:
„Upprunaábyrgðir eru sjálfstæð
söluvara, óháð afhendingu á
raforkunni sjálfri. Tilgangur
upprunaábyrgðakerfisins er að
auka framleiðslu endurnýjanlegrar
orku í Evrópu með því að gera
raforkukaupendum kost á að styðja
sérstaklega við endurnýjanlega
framleiðslu. Það skapar aukinn
fjárhagslegan hvata til slíkrar
framleiðslu.“
Erfitt er að sjá hvernig
kaup kolaorkuvera í Evrópu á
upprunaábyrgðum frá Íslandi til
að segjast selja hreina orku, styður
þessa skýringu. Hins vegar er
augljóslega auðvelt að nota kaup
á hreinleikavottorðum til að búa til
falleg rök til að hækka orkuverð
þó orkan sé áfram framleidd með
kolum. Enda segir Landsvirkjun
beinlínis að slík vottun geti opnað
markaðstækifæri fyrir fyrirtæki í
alþjóðlegri markaðssetningu.
Viðskiptakerfið njörvað við
innleiðingu upprunavottorða
Greinilega er búið að tryggja þetta
viðskiptakerfi í bak og fyrir og
samkvæmt svari Landsvirkjunar
er eingöngu hægt að segjast nota
100% endurnýjanlega orku með því
að flagga upprunaábyrgðum. Þannig
er verið að festa það í sessi að
orkukaupendur eins og garðyrkjan
verði að hafa upprunavottorð til að
geta sagst framleiða sitt grænmeti
með hreinni orku. Um þetta segir í
svari Landsvirkjunar:
„Ef ekki er stuðst við uppruna-
ábyrgðir er raforkukaupanda
eingöngu heimilt að vísa til
meðalsamsetningar orkugjafa í
Evrópu sem er að stærstum hluta
jarðefnaeldsneyti og kjarnorka.
Þetta endurspeglast í tölum
Orkustofnunar.“
Með öðrum orðum, garðyrkjustöð
eða önnur matvælaframleiðsla sem
ekki hefur upprunavottorð frá
orkufyrirtækjunum getur ekki sagt
annað en að orkan sem það notar
sé haugskítug. Þannig hafi raforkan
sem notuð var í fyrra verið 87%
skítug og að 58% hluta framleidd
með jarðefnaeldsneyti og 29% hluta
með kjarnorku.
Ímyndarlega mikilvægt
Einungis um 15% af raforkusölu
Landsvirkjunar eru til heildsölunnar
sem selur áfram til endanotenda
(fyrirtækja og heimila).
Landsvirkjun segir að slík vottun
„auðveldi fyrirtækjum á Íslandi að
uppfylla skilyrði fjölda alþjóðlegra
umhverfismerkja og getur slík
vottun opnað markaðstækifæri
fyrir fyrirtæki í alþjóðlegri
markaðssetningu á vörum og
þjónustu.“ – Skrítið, – þetta gátu
fyrirtækin sjálf sem kaupa orkuna
kinnroðalaust fullyrt með góðri
samvisku á Íslandi og staðið
við það, áður en viðskiptakerfi
upprunaábyrgðanna var fundið upp.
Væntanlega hljóta menn að spyrja
um leið hvort upprunavottorðin
séu í raun ókeypis eða muni í
framtíðinni verða falin inni í hærra
orkuverði eða skilgreind sérstaklega
á orkureikningum.
Neyðast til að láta
upprunavottorð fylgja orkunni
á Íslandi
Landsvirkjun segist frá árinu 2016
hafa látið upprunaábyrgðir fylgja
með allri raforku í heildsölu.
„Öll sala Landsvirkjunar
inn á heildsölumarkað [15%]
er vottuð sem endurnýjanleg
með samevrópska uppruna-
ábyrgðakerfinu fyrir árin 2016
og 2017. Þetta samstarf við
sölufyrirtæki rafmagns var tilkynnt
í maí 2017,“ segir Landsvirkjun.
Það þýðir að öll raforka sem keypt
er í heildsölu af Landsvirkjun er
vottuð að komi frá endurnýjanlegum
orkugjöfum. Ekkert kemur hins
vegar fram um hvort þetta hafi
breytt raforkuverðinu til hækkunar
nú þegar, eða muni gera það í
framtíðinni.
Rétt er að benda á að uppruna-
ábyrgðir voru ekki látnar fylgja til
íslenskra orkukaupenda fyrr en eftir
uppnám sem varð í kjölfar þess að
Bændablaðið birti fyrst fréttir um
þessi mál sumarið 2015. Þar lýsti
þáverandi formaður Sambands
garðyrkjubænda því þegar stilla
átti garðyrkjubændum upp við
vegg og neyða þá til að kaupa
upprunavottorð fyrir ákveðna
upphæð á kílóvattstund til að geta
sagst nota hreina orku.
Stórnotendur ekki inni
í myndinni
Álver og önnur stóriðjuver á
Íslandi hafa ekki óskað þess
að vera inni í samevrópska
upprunaábyrgðakerfinu.
„Stórnotendur, sem kaupa um
og yfir 80% af rafmagnsvinnslu
Landsvirkjunar, hafa ekki óskað
eftir slíku samstarfi, en við höfum
lýst okkur reiðubúin til þess,“
segir í svari Landsvirkjunar til
Bændablaðsins.
Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu hafa
öll álverin á Íslandi flaggað því óspart
að sú „hreina“ orka sem þau nota
dragi úr loftmengun sem annars yrði
ef álið væri framleitt með raforku
frá kola-, olíu- eða gasorkuverum.
Velta má fyrir sér hvort næsta skref
Landsvirkjunar verði þá ekki að
senda álverunum reikning fyrir
hreinleikavottorð sem þau hafa ekki
viljað kaupa til þessa.
Ráðherra segir sölu orkufyrirtækja á upprunaábyrgðum
vera slæmt ímyndarmál fyrir Ísland
– Ísland bundið af löggjöf Evrópusambandsins og sér ráðherra ekki hvernig við ættum á auðveldan hátt að geta farið út úr þessu
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,