Bændablaðið - 18.10.2018, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 25
Gamlar íslenskar
fram yfir nýjar innfluttar
Sigurgeir er einlægur aðdáandi
kartöflunnar; bæði sem vísindalegt
viðfangsefni en einnig sem matvöru.
„Ég bara verð að hafa hana með
öllum mat. Í mörgum löndum þar
sem ræktuð eru mörg yrki er oft
litið á sum þeirra sem fágæti eða
„delicatessen“, sem notuð eru við
sérstök tilefni. Nefna má Möndlu
og Gullauga í Skandinavíu,
Asparges í Danmörku og Ratte í
Frakklandi sem dæmi. Menn gera
sér sjálfsagt ekki grein fyrir því
að hér geta menn farið í næstu
matvörubúð og keypt slíkt fágæti
í þessum íslensku yrkjum.
Á vorin og fram á sumar tek
ég hiklaust gamlar íslenskar fram
yfir nýjar, innfluttar, útlitsfallegar
en oft vatnskenndar kartöflur og
læt útlitið ekki blekkja mig því
oft er flagð undir fögru skinni. Ég
legg að jöfnu Gullauga, Helgu og
Rauðar íslenskar,“ segir Sigurgeir.
Átta hundruð plöntur
verða að 100 tonnum
„Við upptöku á haustin í Eyjafirði
eru valin nokkur móðurhnýði af
hverju yrki; Gullauga, Helgu,
Premiere og Rauðum íslenskum.
Valið er eftir lit, lögun og þrótti
plöntunnar. Þetta úrval er geymt
í kæli fram yfir næstu áramót.
Samtímis eru klónar af úrvali
fyrri ára geymdir sem plöntur í
vefjaræktun í ræktunarklefa,“ segir
Sigurgeir spurður um hvernig starf
hans gangi fyrir sig frá hausti til
hausts.
Eftir áramót eru móðurhnýðin
látin spíra og vaxtarbroddar
teknir úr spírum og fengnar fram
vefjaræktaðar plöntur. Annað
hvert ár er gert veirupróf á öllum
móðurplöntum til að tryggja að
þær séu enn lausar við X- og
S-veiru. Vefjaræktuðum plöntum
er síðan fjölgað með græðlingum
í ræktunarklefa þar til um 800
plöntur eru tilbúnar til pottunar
í gróðurhúsi 7.–15. maí. Miðað
er við að ræktun í gróðurhúsi
sé lokið 1. ágúst og grös visnuð
áður en nokkur hætta er á að smit
kartöflumyglu fari að berast í
lofti. Uppskeran úr gróðurhúsinu,
smáhnýðin, eru síðan sett niður í
Eyjafirði næsta sumar.
Útiræktunin í Eyjafirði var lengi
á Möðruvöllum í Hörgárdal en
var flutt vorið 2018 að Fífilgerði
í Eyjafjarðarsveit. Ástæða þess
að útiræktunin er höfð í Eyjafirði
er sú að þar er minni hætta á
kartöflumyglu en á Suðurlandi.
Í maímánuði eru smáhnýðin úr
gróðurhúsinu frá fyrra ári sett niður
í garð í Eyjafirði og uppskeran
sem fæst sett niður aftur þarnæsta
ár. Sett er niður með höndum í
hryggi og tekið upp með höndum.
Tveggja ára útiræktun skilar á
bilinu tveimur til þremur tonnum
að jafnaði og fara þær kartöflur
til þriggja stofnræktarbænda;
að Eyrarlandi og Fífilgerði í
Eyjafjarðarsveit og að Dilksnesi í
Hornafirði. Stofnræktarbændurnir
fjölga útsæðinu í tvö sumur og selja
afraksturinn til þeirra sem rækta
matarkartöflur.
Eftir fjögur ár í útiræktun hafa
plönturnar 800 úr gróðurhúsinu
þannig skilað tæpum 100 tonnum
til þeirra sem rækta matarkartöflur;
um 60 tonnum af Gullauga, 20
tonnum af Rauðum íslenskum, 10
tonnum af Premiere og 2 tonnum af
Helgu,“ segir Sigurgeir og bætir við
að uppskeran úr stofnræktun hans
hafi alltaf selst upp.
Framleiðslumagni úr
stofnræktun viljandi haldið niðri
Að sögn Sigurgeirs er magni
stofnútsæðis haldið innan þeirra
marka sem eftirspurn er frá
ræktendum matarkartaflna. „Ef
umframmagn verður er hætt við
að því magni verði að farga. Ekki
er æskilegt að stofnræktendur fari
í samkeppni við kaupendur sína
með því að setja umframmagn á
almennan markað sem útsæði eða
matarkartöflur.
Fram að þessu hefur eftirspurn
verið góð og allt selst sem er
ánægjulegt því það er vísbending
um að kaupendur sjái sér hag í að
kaupa stofnútsæðið. Oft hefur verið
rætt um hvort ekki sé hægt að rækta
hér útsæði til útflutnings. Það er ekki
einfalt. Skilyrði fyrir útflutningi til
Evrópusambandslanda er að hér séu
aðgerðir til útrýmingar á hringroti
sem er mjög dýrt dæmi.“
Sem fyrr segir líður brátt að
starfslokum Sigurgeirs í þjónustu
gömlu íslensku kartöfluyrkjanna og
kartöflubænda. Hann hefur tilkynnt
Sambandi garðyrkjubænda um þá
ákvörðun sína að hann hyggist hætta
á næsta ári. „Nú þegar styttist í að
ég skili þessu verkefni af mér vil ég
síður hafa mótandi áhrif á hvernig
þessu verður háttað í framtíðinni.
Það tel ég að aðrir eigi að gera. Ég
hef unnið við þetta síðustu 40–50 ár,
mótað reglugerð um kartöfluútsæði
og annast alla framkvæmd – ef til vill
með nokkurri sérvisku. Ég hef sem
dæmi tekið allt upp með höndunum
til að skaða kartöflurnar sem
minnst. Nú vil ég að hlutaðeigandi
aðilar noti komandi vetur til að ræða
framhaldið og komist vonandi að
niðurstöðu um framtíð stofnræktar,“
segir Sigurgeir. /smh
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Smáhnýði úr gróðurhúsi.
Vefjaræktaðar plöntur.