Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201826
Slow Food-hátíðin Terra Madre Salone del Gusto haldin í 12. sinn í Tórínó:
Jákvæðar umhverfisbreytingar með
breyttum matarvenjum
– Gísli Matthías stýrði tveimur vel heppnuðum viðburðum
Matarhátíðin Terra Madre Salone
del Gusto er haldin annað hvert
ár í Tórínó á Ítalíu á vegum
Slow Food og var haldin í 12.
sinn á dögunum. Hátíðin bar að
þessu sinni yfirskriftina Breytum
matarvenjum (Food for Change).
Í henni felst að hver og einn
neytandi getur með litlu framlagi
sínu lagt jarðarbúum lið til að
breyta ástandi jarðarinnar til hins
betra – með breytingum á eigin
neysluvenjunum.
Jafnan fer hópur Íslendinga
til þátttöku á hátíðinni og svo var
einnig í þetta sinn. Íslendingarnir
voru í félagi við nágrannaþjóðir
sínar á Norðurlöndum; Danmörku,
Færeyjum, Finnlandi, Grænlandi,
Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum
og tóku þátt sameiginlega í
nokkrum viðburðum með þeim.
Kemur samstarfið í kjölfar Terra
Madre Nordic sem haldin var í
Kaupmannahöfn í fyrsta skiptið
síðastliðið vor.
Gísli Matthías með smakksmiðju
og kvöldverðarstefnumót
Gísli Matthías Auðunsson,
matreiðslumaður og eigandi
veitingastaðarins Slippsins í
Vestmannaeyjum og Skál á Hlemmi
Mathöll, var meðal þátttakenda
fyrir Íslands hönd. Hann stóð fyrir
smakksmiðjunni (Taste Workshop)
Bragð af Íslandi: óvélvæddar
veiðar og matreiðslumenning og
einnig kvöldverðarstefnumóti í
matarmusterinu Eataly í Tórínó. Þar
kynnti hann gestum hátíðarinnar
fyrir íslensku hráefni og mat; meðal
annars túnsúru, skessujurt, þangi
og söltuðum þorski. Fullbókað var
snemma á báða viðburði.
Þessi matarhátíð er ein sú
stærsta sinnar tegundar. Hugsjónir
Slow Food eru hafðar í heiðri
á þessum hátíðum sem eru í
grundvallaratriðum þær að matur
ætti að vera góður, án óæskilegra
efna og framleiddur á sanngjarnan
hátt fyrir alla í virðiskeðjunni
(good, clean and fair). Vönduðum
matvælum smáframleiðenda og
bænda er sumsé hampað á ótal
vegu; á mörkuðum, veitingastöðum
og smakksmiðjum – auk þess
sem málstofur margs konar eru
fyrirferðarmiklar.
Milliliðalaust milli framleiðanda
og neytanda
Dominique Plédel Jónsson,
formaður Slow Food Reykjavík,
var gestur hátíðarinnar og segir að
margt hafi verið athyglisvert að
finna á hátíðinni annað en matinn
sjálfan. Málstofurnar á hátíðinni
eru fjölmargar og þar fara fram
gagnmerkar umræður um landbúnað
og matvælaframleiðslu. „Heil
málstofa fjallaði til að mynda um það
viðfangsefni að stytta viðskiptaferlið
frá frumframleiðanda til neytanda
(Shorten the Food chain). Þar var
mikið talað um REKO-markaði
eða sams konar fyrirbæri sem fram
kom á málstofunni að eru farnir að
skjóta rótum til að mynda í Finnlandi,
Svíþjóð, Austurríki, Belgíu, Ítalíu og
í Rússlandi. REKO-markaðir eru
einnig hér á Íslandi á Facebook, þar
sem neytendum gefst kostur á að
eiga í milliliðalausum viðskiptum við
bændur og smáframleiðendur. Það
var því mjög merkilegt að heyra frá
fólki í öðrum löndum hvernig slíkt
fyrirkomulag gengur fyrir sig þar. Þar
var greinilegt að í öllum vestrænum
heimi og jafnvel víðar, er vilji hjá
neytendum að endurheimta náin
tengsl við þá sem framleiða matvæli,
svo og við frumframleiðendur. Þetta
er eðlileg þróun í samfélagi þar sem
neytendur einangrast, þar sem áreiti
frá matvælaiðnaðinum er gríðarlega
mikil, tengsl við sjálf matvælin eru
rofin því þau eru í ópersónulegum
plastpakkningum í stórmörkuðum á
valdi þess sem menn eru farnir að
kalla „big food“, iðnaðarrisanna í
matvælaframleiðslu. Eins og var
orðað, „það vita allir hvað verð á
matvælum er en enginn veit lengur
hvers virði það er“, og REKO-
markaður og álíka eru ein leið til
að endurheimta gildi matvæla.
REKO-markaðir hafa einnig leitt
til nýsköpunar þegar bændur sjálfir
koma saman.“
Virðisaukinn við vistvænan
landbúnað
Á málstofu um landbúnaðar vistfræði
(agroecology) var að sögn Dominique
flutt mjög áhrifamikið erindi um
virðisaukann sem bændur hafa
af því að rækta vistvænt eða öllu
heldur lífrænt. „Þar var á ferð Frakki
sem starfar hjá Fermes d'Avenir,
sem eru frjáls félagasamtök sem
starfa með bændum að útbreiðslu
landbúnaðarvisthyggju í gegnum
kennslu, fjármögnun og nýsköpun.
Hjá honum kom fram að við höfum
30 ár til að breyta heiminum og
fæðuframleiðslukerfum okkar áður
en allt fer á versta veg vistfræðilega.
Hann benti meðal annars á að
neytendur borga fyrir þann kostnað
sem er innifalinn í svokölluðum
iðnaðarlandbúnaði, sem er skaðsemi
vegna eiturefna, umhverfisspjalla
og fleiri atriða. En fyrir vistvænar
og lífrænar landbúnaðarvörur, sem
eru afurðir vistvænna eða lífrænna
búskaparhátta, borga neytendur
sjálfviljugir hærra verð til að fá meiri
gæði. Það var einstaklega hvetjandi
og sannfærandi að heyra þetta frá
þessum manni, því hann var sjálfur
kominn með reynslu af því að fá
meira fyrir sínar afurðir vegna sinna
vistvænu aðferða (permaculture).“
Mikilvægum landbúnaðar svæðum
gefinn gaumur
Dominique ræddi við margt
fólk frá FAO (Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna) um tiltölulega nýtt
verkefni sem er kallað GIAHS, eða
Globally Important Agricultural
Heritage Systems. „Það er líklega eitt
stórkostlegasta dæmi sem ég hef séð
lengi. Þar er verið að skoða heildstætt
gildi tiltekinna landbúnaðarsvæða,
þar sem meðal annars hægt er að
samræma landslag, landbúnað eða/
og fiskveiðar, heildrænt umhverfi
sem er arfleifð fyrri tíma en þar sem
landslagið og manneskja sem hluti af
vistkerfinu hafa öðlast sérstakt gildi.
Þekktasta slíka dæmið er kannski
hrísgrjónaekrur í ákveðnum héruðum
í Kína, þar sem plönturnar, fiskar og
endur lifa í sameiginlegu vistkerfi
án aukaefna og utanaðkomandi
áburðar. Nefna má einnig þúsunda
ára vatnsveitukerfi í Íran, Chiloe-
eyju í Suður-Chile, saltvinnslu á
Spáni og fleira. Þetta er eitthvað
sem mann langar virkilega að sjá
hvort ekki væri hægt að innleiða á
Íslandi, sérstakt landslag bundið við
landbúnaðinn – mér dettur til dæmis
Breiðafjarðareyjarnar í hug. Ég var
heilluð upp úr skónum, sérstaklega
þegar ég sá að ég þekkti mörg af
þessum svæðum.“
Samstarf bænda og stórra
dreifingaraðila
„Þá var líka áhugavert að sjá á
málstofu, sem hét Smáframleiðendur
- stórir dreifingaraðilar (Small
Producers big distribution), að
ýmis dæmi eru nú um að mjög
stórir dreifingaraðilar í Evrópu eru
í auknum mæli komnir í samstarf
við smáframleiðendur og bændur.
Það voru til dæmis tekin nokkur vel
heppnuð dæmi um samstarf COOP við
framleiðendur og bændur í Sviss og
Ítalíu. Það sýnir að þetta er líka hægt
hér og getur gagnast báðum aðilum
– án þess að þetta verði að einhvers
konar meginreglu.
Þau sem sóttu sýninguna héðan
frá Íslandi skiptu líka á milli sín
þátttöku í málstofum sem voru oft á
sama tíma, svo og smakksmiðjum.
Þannig að einn eða fleiri tóku þátt
í málstofum um forystuhlutverk
kvenna í landbúnaði og fiskveiðar, um
sýklalyfjaónæmi, um framtíð lífrænna
búskaparhátta, um dýravelferð, um
landbúnaðarstefnu ESB, um Slow
Travel svo og í smakksmiðjum með
bjór og pörun osta og mismunandi
drykki. Þannig að það er óhætt að
segja að upplýsingaflæðið hafi verið
jafnmikið á Terra Madre í Tórínó og
framboðið var frá smáframleiðendum
alls staðar að í heiminum,“ segir
Dominique. /smh
Saltaður þorskur, túnsúra, skessujurt og þang úr smiðju Gísla Matthíasar.Uppselt var á smakksmiðju Gísla Matthíasar Auðunssonar. Myndir / Dominique
Þeir voru kampakátir þessir kappar hjá Kraftvélum með sýninguna Íslenskur landbúnaður 2018 í Laugardalshöllinni
tímasetning með tilliti til annarra svipaðra viðburða í Evrópu. Hér eru þeir taldir frá vinstri; Magnús Jón Björgvinsson,
sem var þarna líka, fékk ekki að vera með á myndinni, enda varð einhver að sinna viðskiptavinunum. Myndir / HKr.
Það var ekki síður unga fólkið sem var áhugasamt um allar þessar stóru
dráttarvélar á bás Kraftvéla. Hér er verið að máta sig við Case IH, en saga
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018