Bændablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201832
LÍF&STARF
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar á Ísafirði er fyrirmyndarfyrirtæki Creditinfo árið 2018:
Hélt uppi póstflutningum til bænda við Djúp en
nú vega farþegar skemmtiferðaskipa þyngst
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar
hafa verið með farþegasiglingar
frá Ísafirði í rúm 30 ár, en
fyrirtækið eiga og reka þau hjón,
Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri og Hafsteinn
Ingólfsson skipstjóri.
Þau hjón hafa reyndar verið í
farþegasiglingum og í þjónustu við
bændur við Ísafjarðardjúp í vel yfir
30 ár og þá framan af á kennitölu
Hafsteins. Þann 22. desember 1998
var fyrirtækið Sjóferðir Hafsteins
og Kiddýar ehf. hins vegar skráð
formlega sem einkahlutafélag hjá
firmaskrá á Ísafirði og á það því 20
ára afmæli nú í desember.
Nýverið bárust þeim þau
gleðitíðindi frá Creditinfo að
fyrirtækið væri á meðal 2% fyrirtækja
í landinu sem hlytu nafnbótina
fyrirmyndarfyrirtæki 2018. Verður
það væntanlega tilkynnt formlega
við athöfn í Hörpunni 14. nóvember
næstkomandi.
Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir,
eða Kiddý, eins og heimamenn
kalla hana, segir að besta sumarið
þeirra hafi verið 2016. Þá hafi
þau verið að flytja um 15 þúsund
ferðamenn. Þar af kom drjúgur hluti
af skemmtiferðaskipum. Nú hafi þau
horft fram á fækkun ferðamanna
tvö ár í röð þrátt fyrir að komum
skemmtiferðaskipa hafi frekar
fjölgað en hitt.
Veruleg fækkun ferðamanna
út á land
„Við erum nú farin að finna verulega
fyrir því hvað Ísland er talið dýrt
ferðamannaland. Það hefur spurst
út og erfitt getur reynst að vinda
ofan af þeirri ímynd. Við erum
fræg fyrir það, Íslendingar, að jarða
okkur sjálf þegar allir ætla að verða
ríkir á augabragði í þessari grein og
fara á botnlaust fjárhagsfyllirí. Það
er okrað á ferðamönnum í gistingu
og veitingum og þess vegna stoppa
þeir skemur á Íslandi og kaupa síður
sérferðir en áður. Ekki má heldur
gleyma háu gengi krónunnar.
Nú stoppa flestir ferðamenn
kannski ekki nema þrjá daga
og halda þá aðallega til á
Suðvesturlandinu. Það þýðir að
færri fara út á landsbyggðina. Hjá
okkur var fækkun farþega um 20%
árið 2017 og aftur um 17% fækkun
nú í sumar.“
Án skemmtiferðaskipanna
væri staðan döpur
„Svo erum við enn í því fari að
búa við óboðlegar samgöngur.
Hér er ekki hægt að treysta á flug
og hingað er ekki hægt að fljúga á
kvöldin vegna lélegra flugaðstæðna.
Þá hefur lítið sem ekkert verið gert
í vegamálum í áratugi, en það er sú
samgönguleið sem fólk verður að
treysta á. Vegna þessa þá afskrifa
ferðamenn bara Vestfirði.
Ef við hefðum ekki farþegana af
skemmtiferðaskipunum, þá gætum
við gleymt því að reyna að halda
úti þessum rekstri eins og hann er
með þrem bátum í dag,“ segir Kiddý.
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar
eru með tíu manns í vinnu en
hafa samt látið Vesturferðir í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði um að
annast sölu farmiða og eru þau þar
líka hluthafar. Telja þau hjón það
mikilvægan hlekk til að hægt sé að
halda uppi fjölbreyttri ferðaþjónustu
á svæðinu.
Úr köfunarþjónustu yfir í
farþegaflutninga
Hafsteinn hóf reyndar siglingar á
Flugfisk hraðbát árið 1984, eða
fyrir 34 árum á eigin kennitölu.
Stundaði hann þá m.a. köfun og kom
þá mörgum skipum til bjargar fyrir
utan Vestfirði sem höfðu fengið troll
eða netadræsur í skrúfuna.
50 ára köfunarafmæli
Núna í sumar voru 50 ár liðin
frá því Hafsteinn hóf sinn feril í
köfunarþjónustu og er hann nú elsti
atvinnukafari á landinu. Köfunarferil
sinn hóf hann í Kristiansand í Noregi
og við síldveiðar á Norðursjó árið
1968.
Þegar hlutverk köfunar- og
skipaþjónustu Hafsteins breyttist og
farþega- og póstflutningar hans fóru
að aukast kom Kiddý að útgerðinni
með honum. Eigi að síður má enn
finna Köfunarþjónustu Hafsteins
Ingólfssonar í símaskránni.
Fyrsti báturinn var einungis með
leyfi fyrir 7 farþega
Kiddý segir að þegar þau
hófu farþegaflutninga á fyrsta
farþegabátnum árið 1988 hafi þau
verið með leyfi fyrir 7 farþega um
borð. Báturinn var af gerðinni Sómi
800 og fékk nafnið Bliki ÍS. Á honum
var farið með farþega í Aðalvík
og fleiri víkur á Hornströndum.
Hann var svo seldur og keyptur
báturinn af gerðinni Sómi 900 og
létu þau lengja hann um einn metra
í Skipasmíðastöð Marsellíusar á
Ísafirði. Þá var tegundarheitið orðið
Sómi 1000 og fékkst leyfi fyrir 19
farþega um borð.
Var þá m.a. siglt með póstvarning
og fólk í Vigur, Æðey og Ögur. Sá
Hafsteinn m.a. annars um að koma
krökkum á þessum stöðum í skóla í
Súðavík frá 1996.
Eftir að siglingar M/S Fagraness
lögðust af um Ísafjarðardjúp á
níunda ártug síðustu aldar fóru þau
Kiddý og Hafsteinn að huga að enn
frekari stækkun á fyrirtækinu. Þá
keyptu þau hjón Sóma 900 bát frá
Húsavík.
Tóku við hlutverki Djúpbátsins
Í spjalli við tíðindamann Bænda-
blaðsins í siglingu út í Vigur í sumar,
sagði Hafsteinn að þau hafi í raun
tekið við hlutverki Djúpbátsins
Fagraness sem seldur var úr landi
til Bandaríkjanna. Var gerður
samningur við Vegagerðina um
þá flutninga. Auk fólks-, pósts- og
almennra vöruflutninga fólust þeir
í mjólkur- og eldsneytisflutningum.
Hafa látið smíða fjóra báta
í Hafnarfirði
Hafsteinn segir að þau hafi látið
smíða fyrir sig fjóra plastbáta
í Hafnarfirði, hjá Bátagerðinni
Samtaki í Hafnarfirði og hjá
Trefjum. Sá stærsti var smíðaður hjá
Bátagerðinni Samtaki ehf. árið 2000
og ber nafnið Guðrún Kristjáns.
„Þessi bátur var stærsti plastbátur
sem smíðaður hafði verið á Íslandi
fram að þeim tíma, eða 29,48
brúttórúmlestir. Hann er með
leyfi fyrir 48 farþega, en í dag eru
smíðaðir hér á landi mun stærri
bátar.“
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Guðrún Kristjana Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri og Hafsteinn Ingólfsson
skipstjóri á leið í Æðey í júní 1994 að kynna þá leið sem vænlegan kost fyrir
ferðamenn. Mynd / HKr.
Hafsteinn Ingólfsson, skipstjóri hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýar, við stýrið um borð í Guðrúnu Kristjáns. „Þetta hefur allt gengið slysalaust alla tíð og
við höfum verið mjög farsæl hvað það varðar. Við höfum aldrei misst mann í sjóinn eða neitt slíkt. Að vísu hef ég farið sjálfur í sjóinn nokkrum sinnum,
en ég er vanur því.“ Mynd /HKr.
Ferðir í gamla þorpið á Hesteyri í Jökulfjörðum hafa verið mjög vinsælar en
búsetu var þar hætt árið 1952. Hér sést gamla læknishúsið.
Bátur Sjóferða Hafsteins og Kiddýar á legunni í víkinni fyrir framan bæjarhúsin í Æðey í júní 1994 ásamt bát Jónasar
heitins Helgasonar, bónda í Æðey. Mynd / HKr.