Bændablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 33
Þá seldu þau Jónasi heitnum
Helgasyni í Æðey Sóma 1000
bátinn sem er reyndar enn á
Ísafirði. Báturinn sem þau keyptu
frá Húsavík seldu þau svo í
selaskoðun á Hvammstanga.
Kom í ljós að Guðrún Kristjáns
var of stór til að verjandi væri að
vera með þann bát í póstflutningum
og minni háttar verkefni. Var því
farið í það strax 2001 að láta smíða
annan bát sem tók um 22 farþega
og var nefndur Bliki.
Geta nú flutt 116 farþega
á þrem bátum
Árið 2004 var Bátagerðin Samtak
ehf. [samkvæmt skipaskrá] svo
fengin til að smíða nýjan Blika sem
er 21,32 brúttórúmlestir að stærð
og fékk hann leyfi fyrir 38 farþega.
„Eldri Blikann frá 2001,
seldum við til Ístaks sem notaði
hann í verkefnum á Grænlandi.
Þá létum við smíða enn einn bát
fyrir okkur árið 2007 og er það
nýjasti báturinn okkar og tekur 30
farþega. Hann var smíðaður hjá
Trefjum ehf. í Hafnarfirði og er
19,15 brúttórúmlestir. Hann fékk
nafnið Ingólfur. Þessa þrjá eigum
við í dag, Guðrúnu Kristjáns sem
smíðuð var 2000, Blika sem var
smíðaður árið 2004 og Ingólf sem
smíðaður var 2007. Samtals getum
við flutt 116 farþega á þessum
bátum.“
Allt gengið slysalaust
„Þetta hefur allt gengið slysalaust
alla tíð og við höfum verið mjög
farsæl hvað það varðar. Við höfum
aldrei misst mann í sjóinn eða neitt
slíkt. Að vísu hef ég farið sjálfur í
sjóinn nokkrum sinnum, en ég er
vanur því,“ segir Hafsteinn.
Fyrir borð með hakanum í
Veiðileysufirði
„Einu sinni fór ég einn á bát í
Veiðileysufjörð í Jökulfjörðum að
sækja tvo farþega sem þar sátu uppi
í hlíð. Ég fór frammá að húkka í
legufærið með lítinn krókstjaka.
Um leið og ég húkkaði í var það
eitthvað fast og ég fylgdi þá bara
með hakanum í sjóinn. Farþegunum
sem horfðu á þetta úr landi leist þá
ekkert á blikuna. Báturinn sem þeir
ætluðu að fara með til Ísafjarðar var
orðin mannlaus og rann bara áfram
með ströndinni. Ég synti þá bara að
bátnum og klifraði um borð. Mér
fannst þetta frekar pínlegt.“
– Þegar þið hófuð þessa
farþegaflutninga fyrir nær 30 árum,
var þetta ekki talin mikil bjartsýni?
„Það má vel vera, en þá voru alltaf
einhverjir að flytja fólk í Aðalvík
og á fleiri staði. Það var þó meira á
hæggengum skakbátum, fyrir utan
að Fagranesið fór líka á þessa staði.
Þannig byrjaði þetta smátt og smátt
með siglingum í víkurnar hér fyrir
norðan og í Jökulfirðina og inn í
Djúp.
Við hófum siglingar á Hesteyri
árið 25. júní 1997. Þær siglingar
hafa undið dálítið upp á sig, en
þar geta farþegar farið í land og
þegið veitingar. Þetta hefur líka
aukist mjög með siglingar þangað
á farþegum af skemmtiferðaskipum
sem koma til Ísafjarðar.
Það varð algjör bylting þegar við
settum upp flotbryggju á Hesteyri,
en áður þurftum við að ferja farþega
í land á gúmmíbát. Bryggjuna er að
vísu ekki hægt að nota nema það sé
í það minnsta hálffallið að. Bryggjan
eykur þó þægindin til muna, sér í lagi
fyrir fólk sem orðið er aldrað og á
erfitt með gang.“
Koma skemmtiferðaskipanna
skiptir miklu máli
– Þú vilt þá meina að koma skemmti-
ferðaskipa á stað eins og Ísafjörð
skipti miklu máli fyrir rekstur eins
og þið erum með?
„Bæði Ísafjarðarhöfn og við sem
erum í þessum rekstri njótum mjög
góðs af komu skemmtiferðaskipanna.
Sama má segja um rútuútgerðir. Þetta
skapar töluverðar tekjur á staðnum.
Við sátum eiginlega ein að þessum
viðskiptum við skemmtiferðaskipin
þegar þau byrjuðu fyrst að koma og
þetta hefur því skipt okkur verulegu
máli,“ segir Hafsteinn.
Hann segist þó heyra þær raddir
líka að það séu ekki allir ánægðir með
þann mikla fjölda ferðamanna sem
komi með skipunum. Menn gleymi
því þá um leið hversu mikilvægir þeir
eru fyrir ýmsa ferðaþjónustuaðila á
svæðinu. Það skapi nauðsynlegar
tekjur inn í samfélagið.
Hafsteinn segir að þegar þau voru
að koma rekstrinum á laggirnar hafi
öll fjölskyldan meira og minna tekið
þátt í þessu. Nú séu tveir synirnir
flognir á braut og sá þriðji starfar
sem smiður á Ísafirði. Aðrir hafa
tekið við þeirra hlutverkum.
Mikil tryggð starfsmanna
„Reyndar erum við yfirleitt búin
að vera með sama fólkið ár eftir ár
og það kemur til okkar sumar eftir
sumar. Það segir kannski að það sé
ekki mjög leiðinlegt að vera hér með
okkur.“
Frábært starfsfólk
„Við erum þrír skipstjórar og sá sem
hefur verið lengst hjá okkur er Stígur
Sófusson. Hann hóf störf um borð í
okkar bátum sautján ára gamall. Þá
er reyndur skipstjóri úr Bolungarvík
kominn til okkar líka, en það er
Reimar Vilmundarson. Þetta er
þriðja sumarið hans hjá okkur, en
áður gerði hann sjálfur út bát til
farþegaflutninga frá Bolungarvík.
Þá er þetta fjórða sumarið sem sonur
hans, Vilmundur, er hjá okkur. Þetta
eru hörkukarlar úr Bolungarvík.
Þá erum við með einn Bolvíking
í viðbót sem heitir Gunnar Hildimar
Halldórsson svo Víkararnir eru
drjúgur hluti af okkar starfsliði, enda
harðduglegt og samviskusamt fólk.
Auk þeirra erum við með fjórar
stúlkur sem leiðsögumenn, allt
Ísfirðingar. Sem sagt allt frábært
starfsfólk og ekkert undan því að
kvarta og án þeirra gætum við ekki
verið,“ segir Hafsteinn Ingólfsson
skipstjóri.
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Hefur þú kynnt þér
Smávirkjanaverkefni
Orkustofnunar?
Smærri virkjanir geta verið lyftistöng fyrir bæði
bændur og fleiri aðila
Þær geta stuðlað að auknu orkuöryggi í landinu
Geta verið svar við orkuskorti víða um land
Geta tryggt vaxtarmöguleika í dreifðari
byggðum landsins
Kynntu þér málið á vef Orkustofnunar:
https://orkustofnun.is/raforka/smavirkjanir/
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Bylting í hreinlæti!
i-mop XL - Gólfþvottavél
sem auðveldar þrif,
sparar tíma og léttir lífið.
Hafðu samband og
pantaðu kynningu fyrir
þitt fyrirtæki
Sjá nánar á:
i-teamglobal.com
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður
meðal annars upp á nýtt
ökumannshús með góðu
aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• Meira útsýni
• Þægilegra innstig
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
• Hnappur sem losar glussaþrýsting á tengjum
• Og margt fleira
Mynd / HKr.