Bændablaðið - 18.10.2018, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201836
Ræktun á alfalfa sem fóður hefur
margfaldast undanfarna áratugi.
Plantan þykir gott fóður, hvort
sem er fyrir nautgripi, sauðfé,
hesta eða kanínur. Alfalfa er
einnig ræktað til manneldis. Á
íslensku kallast alfalfa refasmári.
Framleiðsla á alfalfa hefur aukist
jafnt og þétt frá síðustu aldamótum
og er í dag mest ræktaða fóðurjurt
í heimi, auk þess sem plantan er
ræktuð til manneldis. Undanfarin
ár hafa verið ræktuð um það bil 450
milljón tonn af alfalfa á ári og um
það bil 30 milljón hektarar notaðir
til ræktunarinnar.
Sé ræktuninni skipt niður
á heimsálfur er 41% hennar í
Bandaríkjum Norður-Ameríku, 25%
í Evrópu, 23% Suður-Ameríku og
8% í Asíu, Afríku og í Eyjaálfunni.
Ef litið er til landnotkunar er alfalfa
ræktað á um 11,9 milljón hektara
í Bandaríkjunum, 6.9 milljónum
hektara í Argentínu, tveim
milljónum í Kanada, 1,8 í Rússlandi,
1,3 milljónum hektara á Ítalíu og í
Kína og minna mæli annars staðar
í heiminum.
Stærstu ræktunarsvæðin alfalfa
í Bandaríkjunum eru í Kaliforníu,
Suður-Dakóta, Wisconsin Idaho og
Montana.
Bandaríki Norður-Ameríku eru
stærsti útflytjandi alfalfa í heiminum
og fluttu út 2,7 milljón tonn af þurru
alfalfa sem fóður árið 2017. Kína er
stærsti innflytjandinn og flutti inn
tæp tvö milljón tonn af þurru alfalfa
fóðri. Næststærstu innflytjendurnir
er Japan með rúmlega 0,5 milljón
tonn. Í þriðja sæti er svo Sádi-Arabía
með 0,3 milljón tonn.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru árið 2017 flutt
inn rúm 118,4 tonn af refasmára sem
mjöl og kögglar til fóðurs, 73,8 frá
Danmörk og 44,6 tonn frá Hollandi.
Auk þess sem eitthvað er flutt inn af
refasmárafræjum bæði til ræktunar
og spíra til manneldis.
Fóður fyrir kýr í Sádi-Arabíu
ræktað í Bandaríkjunum
Í grein sem birtist í Bændablaðinu í
maí 2016 segir að fjárfestar frá Sádi-
Arabíu og fleiri ríkjum við Persaflóa
hafi verið að skófla til sín ræktarlandi
í suðvesturhluta Bandaríkjanna,
einkum í Kaliforníu og Arizona.
Eru íbúar sagðir vera farnir að
þrútna af bræði út í þessa erlendu
fjárfesta. Það er á þeim svæðum
sem hafa orðið fyrir hvað mestum
áhrifum af langvarandi þurrkum.
Þar hefur einnig verið gengið mjög
á grunnvatnsbirgðir, meðal annars
vegna mikillar ávaxtaræktunar.
Á vegum arabísku fjárfestanna
er nú ræktað alfalfa í stórum stíl á
bandarísku landi og með grunnvatni
sem hratt gengur á. Refasmárinn er
einstaklega orkuríkur sem fóður
fyrir húsdýr og er plantan oft
kölluð drottning fóðurjurtanna.
Er uppskeran svo flutt þurrkuð
sem hey með skipum í stórum stíl
til Sádi-Arabíu. Þar er það nýtt
til að fóðra mjólkurkýr sem aldar
eru þar á gróðursnauðu landi sem
býður ekki upp á möguleika til
ræktunar á refasmára, né öðru
nauðsynlegu fóðri. Ræktun á
refasmára tekur til sín hlutfallslega
mesta vatnsnotkun í Kaliforníu
samkvæmt tölum California
Department og Water Resource.
Nam vatnsnotkun vegna ræktunar
á refasmára í ríkinu á árinu 2013
um 6,2 milljörðum tonna af vatni.
Meðaltal þriggja ára vatnsnotkunar
vegna refasmáraræktunar var um 6,8
milljarðar tonna. Um 95% af þessu
vatni gufar svo upp við þurrkun á
refasmáranum til útflutnings.
Með öfluga stólparót
Alfalfa, eða refasmári, er fjölær
belgjurt af ertublómaætt, eins og hvít-
og rauðsmári, sem kallast Medicago
sativa á latínu. Plöntur innan
ættkvíslarinnar Medicago teljast 87
og finnast flestar villtar í löndunum
í kringum Miðjarðarhafið. Flestar
tegundir innan ættkvíslarinnar eru
lágvaxnar að alfalfa undanskilinni.
Refasmári þykir gott fóður fyrir
búfé, hvort sem það eru nautgripir,
hross, sauðfé eða geitur. Þar sem
refasmári er niturbindandi er hann
einnig ræktaður til að bæta jarðveg
og í samplöntun til að auka uppskeru.
Plantan er með öfluga stólparót,
með mörgum hliðarrótum, sem á
fullvöxnum plöntum getur teygt sig
rúma sex metra niður í jörðina í leit
að vatni. Dæmi er um að hliðarrót
refasmára hafi teygt sig 15 metra
frá meginrótinni. Stöngullinn sléttur
viðkomu, 30 til 100 sentímetra hár
og með mörgum greinum. Blöðin
þrífingruð, smáblöðin ílöng og
lengdin þrisvar til fjórum sinnum
breidd þeirra og saxtennt í endann.
Blómin blá, 10 til 20 saman í hnapp.
Fræbelgirnir spírallaga, grænir í
fyrstu en verða brúnir með þroska,
hver með 10 til 20 fræjum.
Nafnaspeki
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku
kallast refasmári alfalfa og er talið
að heitið sé þangað komið frá Íran,
aspastor eða ispist, eftir margs
konar framburðarbreytingar, með
Spánverjum sem kölluðu plöntuna
fyrst alfalfez eða al-fisfisa og síðan
alfalfa. Heitið buffalóagras þekkist
einnig í Norður-Ameríku.
Á Bretlandseyjum og í Danmörku
kallast plantan lucerne, á sænsku
lusern og á frönsku og þýsku luzerne.
Á íslensku eru heitin refasmári og
alfalfa algengust en heitið lúserna
þekkist einnig. Heitið lucerna mun
komið í latínu og táknar ljóshring.
Lucerna er algengt kvenmannsheiti
á rómönskum tungumálum.
Latneska ættkvíslarheitið
Medicago er upprunnið úr grísku
median og tengist Medesum sem
lifðu í Íran eða Persíu á áttundu
öld fyrir upphaf okkar tímatals.
Tegundaheitið sativa þýðir að
plantan sé ræktuð.
Á kínversku kallast refasmári
zi mu.
Saga
Talið er að uppruna refasmára sé
að finna í suðurhluta Mið-Asíu og
að hann hafi fyrst verið ræktaður
í Íran til forna. Samkvæmt gríska
sagnamanninum Pliny sem var uppi
á fyrstu öld eftir Krist kynntust
Grikkir ræktun á refasmára 490
fyrir Krist þegar Persar hertóku grísk
landsvæði og ræktuðu plöntuna þar.
Í bókinni Opus Agricultura eftir
fimmtu aldar rithöfundinn Palladius
segir að refasmári gefi uppskeru í tíu
ár eftir að honum er sáð og að það
sé óhætt að slá hann fjórum til sex
sinnum á ári. Þar segir að refasmári
sé gott fóður fyrir hesta og nautgripi
en að nautgripir eigi til að fá þembu
éti þeir mikið af honum.
Bæði Pliny og Palladius nefndu
plöntuna medica og vísa þannig til
Medesa í Persíu.
Sagt er frá alfalfa fræjum og
spírum í fornum indverskum
lækningaritum og sagt að hvoru
tveggja sé næringarríkt og gott til að
bæta blóðflæði líkamans. Samkvæmt
Máranum Ibn al-'Awwam ræktuðu
Spánverjar al-fisfisa eða alfalfa sem
skepnufóður á 16. öld.
Plantan barst með spænskum
landnemum vestur um haf til nýja
heimsins á 16. öld sem fóður fyrir
hesta. Ræktun plöntunnar hófst
vestanhafs á austurströnd Bandaríkja
Norður-Ameríku á 18. öld en án
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Gulblóma alfalfa, Medicago falcata, hefur reynst vel í ræktun í Alaska.
Heimsframleiðsla á alfalfa er um 450 milljón tonn á ári.