Bændablaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201840
Það var að venju margt um mann-
inn á Hrútadeginum á Raufar höfn
sem haldinn var laugardaginn 6.
október. Hrútar voru þuklaðir og
metnir, og fór einn gæðahrútur á
uppboð. Hann seldist á litlar 153
þúsund krónur og er það með því
hæsta sem hefur sést á þessum
degi sem var nú haldinn í 13. sinn.
Vikuna fyrir Hrútadaginn eru
menningardagar á Raufarhöfn.
Þar voru ýmsir viðburðir í boði þó
veðrið hafi ekki alveg unnið með
heimamönnum, þar sem nokkur
bleytutíð hefur verið undanfarnar
vikur. Þar stigu hagyrðingar á
stokk, barnabíó, bogfimikynning,
léttmessa, súpukvöld og
pókerkvöld svo eitthvað sé nefnt.
Á föstudagskvöldinu þandi Stefán
Jakobsson raddböndin við undirleik
Andra Ívarssonar en þeir félagarnir
taka Föstudagslögin alla leið með
fjölda af flottum ábreiðum.
Hrútadagurinn rann upp bjartur
og fagur þar sem þorpið skartaði
sínu fegursta í haustblíðunni.
Í Faxahöll var að venju hægt
að kaupa kjötsúpu og bakkelsi,
Akurselsgulræturnar voru á sínum
stað ásamt handverki og öðrum
söluvarningi. Gunnar Þóroddsson
á Hagalandi í Þistilfirði átti hæst
stigaða hrútinn sem fór á uppboð
og var hann með 89 stig. Hann var
seldur í Berufjörð og stendur sig
vonandi í jólavertíðinni. Gunnar
sagði að það væri bara gaman að
selja svona góðan hrút, hann hafði
gefið honum nafnið Banki og má
segja það réttnefni þar sem hann
skilaði eiganda sínum ágætlega
í bankann. Banki er undan Lína
frá Snartarstöðum og Túnrækt frá
Hagalandi. Afurðahæstu ána áttu
Gunnar Björnsson og Anna Englund
frá Sandfellshaga í Öxarfirði. Besta
lambhrútinn áttu Helgi Árnason
og Sigurlína Jóhannesdóttir frá
Snartarstöðum en hann var ekki
falur og fór því aftur heim með
eigendum sínum.
Fegurðarkeppni gimbra var
glæsileg í ár þar sem börnin skreyttu
gimbrar og sýndu þær á palli. Ýmsar
kúnstir voru við að koma þeim á
pallinn og sumar óvenju þverar
að láta stjórna sér. Höskuldur
Steinþórsson á Höfða við Raufarhöfn
fékk verðlaun fyrir gimbrina með
mesta sauðaþráann, Hólmfríður
Katrín Jónsdóttir frá Þórshöfn fékk
verðlaun fyrir fallegustu gimbrina
og Ása Margrét Sigurðardóttir frá
Holti í Þistilfirði fékk verðlaun fyrir
best skreyttu gimbrina.
Skemmtilegur viðburður var
þegar Hjalti Hjaltason afhenti eldri
borgurum á Raufarhöfn fallegt líkan
að Búðinni á Raufarhöfn. Hjalti var
nokkurn tíma að smíða líkanið og
sagði þetta vera frumraun sína í
slíkum nákvæmnis smíðum. Hann er
sjálfur ættaður frá Skinnalóni á sléttu
og er því svæðið afar kært. Búðin var
stórt hús, 250 fm í grunnflötinn, og
var því með stærstu húsum á Íslandi
þegar það var reist á Raufarhöfn árið
1835 eftir flutning frá Danmörku.
Búðin hýsti verslun og ýmsa aðra
starfsemi allt þar til hún eyðilagðist
í eldsvoða árið 1965. Líkanið verður
eign eldri borgara á Raufarhöfn og
leitast verður við að finna því stað
þar sem almenningur getur skoðað
það.
Þegar kvöldaði var skemmtun
með Hundi í óskilum og síðan
dunaði dansinn inn í nóttina sem
var viðeigandi endir á skemmtilegri
menningarviku. /GBJ
LÍF&STARF
Vel lukkaður Hrútadagur á Raufarhöfn
Kjötsúpan hressir og kætir.
Kristín Svala Eggertsdóttir, Vilborg
Stefánsdóttir og Guðrún Petra
Jónsdóttir.
Hjalti Hjaltason með eldri borgunum á Raufarhöfn.
Guðrún Petra Jónsdóttir með fallega
og nokkuð gæfa gimbur.
Og það var þuklað og þuklað ...
Fjölmennt var á Hrútadögum í Faxahöllinni á Raufarhöfn. Myndir / GBJ
Sameinaður kór Þórshafnar, Raufarhafnar og Kópaskers var settur saman fyrir Hrútadaginn og söng nokkur lög.
Mesti sauðaþráinn.
Uppboðshrútur. Mynd / Hildur Stefánsdóttir
Verðlaunahafar á palli.