Bændablaðið - 18.10.2018, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 201842
Í sumar og haust komu út skýrslur
um umsvif afurðafyrirtækja
í mjólkuriðnaði í heiminum
árið 2017, í þeim er stærstu
fyrirtækjum heimsins raðað
upp bæði eftir veltu og magni
innveginnar mjólkur. Þessar
skýrslur er gefnar út af tveimur
ólíkum aðilum og út frá ólíkum
forsendum, en gefa einstaka sýn
á þá stöðu og þróun sem á sér stað
í heiminum á þessu sviði.
Önnur skýrslan, sem tekur mið
af veltu fyrirtækjanna, er gefin út
af hollenska samvinnubankanum
Rabobank, en hann er án nokkurs
vafa sérhæfðasta fjármálafyrirtæki
í heimi á sviði landbúnaðarmála
og er með rekstur í mörgum
löndum. Hin skýrslan, sem horfir
til umsvifa fyrirtækjanna með tilliti
til innveginnar mjólkur, er tekin
saman af IFCN (International Farm
Comparison Network) samtökunum
en það eru alþjóðleg samtök sem
fylgjast með ýmsu því sem snýr að
mjólkurframleiðslunni í heiminum.
Nestlé með langmesta veltu
Þegar skýrsla Rabobank er skoðuð
kemur þar fátt á óvart, þ.e. fyrir
þá sem hafa fylgst með þróun
afurðavinnslu í mjólkuriðnaðinum í
heiminum undanfarin ár. Í efsta sæti
listans (sjá töflu 1) yfir veltumestu
fyrirtækin í mjólkuriðnaði er
svissneski risinn Nestlé en það
fyrirtæki hefur verið langstærsta
fyrirtækið í áraraðir og ber í
raun höfuð og herðar yfir önnur
fyrirtæki á þessu sviði enda stærsta
matvælafyrirtæki í heimi.
Árið 2017 nam heildarvelta þess
af viðskiptum með mjólkurvörur
eingöngu, 24,2 milljörðum
bandaríkjadollara, sem svarar til um
2.800 milljarða króna! Til þess að
setja þessa veltutölu í samhengi má
geta þess að verg landsframleiðsla
Íslands árið 2017 var 2.555
milljarðar króna samkvæmt
upplýsingum á vef Hagstofu Íslands.
Mjólkurafurðahluti Nestlé, sem
fyrirtækið var upphaflega stofnað í
kringum, er innan við þriðjungur af
umvifum fyrirtækisins í dag.
4 af 10 efstu samvinnufélög
Sé litið neðar á listann má sjá að
í öðru og þriðja sæti eru frönsku
fyrirtækin Lactalis og Danone en
bæði eru einkafyrirtæki, í fjórða sæti
er síðan hið bandaríska Dairy farmers
of America, sem er samvinnufélag
líkt og næstu fyrirtæki á listanum:
Fonterra, sem er í eigu bænda á
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Tuttugu stærstu afurðafyrirtæki heims
Röð Nafn Höfuðstöðvar Innvegið magn mjólkur, milljarðar kg.
Hlutfall af
heimsframleiðslunni
1 Dairy Farmers of America Bandaríkin 29,2 3,5%
2 Fonterra Nýja-Sjáland 23,7 2,8%
3 Lactalis Frakkland 19,6 2,4%
4 Arla Foods Danmörk 13,9 1,7%
5 Nestlé Sviss 13,7 1,6%
6 FrieslandCampina * Holland 13,6 1,6%
7 Saputo * Kanada 9,8 1,2%
8 Dean Foods Bandaríkin 9,4 1,1%
9 Amul Indland 9,3 1,1%
10 Danone Frakkland 8,6 1,0%
11 DMK * Þýskaland 8,1 1,0%
12 California Dairies Bandaríkin 7,7 0,9%
13 Yili * Kína 7,2 0,9%
14 Glanbia Írland 6,5 0,8%
15 Mengniu Kína 6,4 0,8%
16 Agropur Kanada 6,3 0,8%
17 Sodiaal Frakkland 4,9 0,6%
18 Müller * Þýskaland 4,6 0,6%
19 Schreiber Foods Bandaríkin 4,5 0,5%
20 Bongrain/Sacencia Frakkland 4,1 0,5%
*Byggt á áætlun IFCN
20 stærstu afurðafyrirtæki
heims með 25% mjólkurinnar
Velta tuttugu stærstu afurðafyrirtækja heims
Röð Nafn Höfuðstöðvar Velta milljarðar USD Velta milljarðar ÍSK
1 Nestlé Sviss 24,2 2.807
2 Lactalis Frakkland 19,9 2.308
3 Danone Frakkland 17,6 2.042
4 Dairy Farmers of America Bandaríkin 14,7 1.705
5 Fonterra Nýja-Sjáland 13,7 1.589
6 FrieslandCampina Holland 13,6 1.578
7 Arla Foods Danmörk 11,7 1.357
8 Saputo Kanada 10,8 1.253
9 Yili Kína 9,9 1.148
10 Mengniu Kína 8,8 1.021
11 Dean Foods Bandaríkin 7,5 870
12 Unilever * Holland 7,0 812
13 DMK Þýskaland 6,5 754
14 Kraft Heinz Bandaríkin 6,2 719
15 Meiji Japan 5,8 673
16 Sodiaal Frakkland 5,8 673
17 Savencia Frakkland 5,5 638
18 Müller * Þýskaland 5,1 592
19 Agropur Kanada 5,1 592
20 Schreiber Foods * Bandaríkin 5,0 580
*Byggt á áætlun Rabobank
Geigvænleg fækkun
skordýra
Samkvæmt nýrri rannsókn í
Þýskalandi hefur skordýrum
þar í landi fækkað um þrjá
fjórðu á síðustu 25 árum. Svo
mikil fækkun hefur alvarlegar
afleiðingar fyrir lífkerfið í heild.
Skordýr af öllum stærðum og
gerðum eru nauðsynlegur hluti
af vistkerfinu hvort sem það eru
frjóberar eða fæða fyrir fugla
og önnur dýr. Nýleg rannsókn
á fjölda skordýra í Þýskalandi
sýnir að fjöldi þeirra hefur dregist
saman um allt að ¾ á síðustu 26
árum. Reikna má með að tölur
um fækkun skordýra í öðrum
löndum séu svipaðar. Helsta orsök
fækkunarinnar er sögð vera notkun
á skordýraeitri og breytingar í veðri
af völdum hlýnunar jarðar. Aukinn
landbúnaður, sem óhjákvæmilega
dregur úr líffræðilegri fjölbreytni,
er einnig sagður drjúg ástæða fyrir
fækkun skordýra.
Skordýrafræðingar víða um heim
hafa lýst yfir miklum áhyggjum
yfir fækkun skordýra í heiminum
og segja að ef fækkun þeirra
haldi áfram verði afleiðingarnar
geigvænlegar. Þeir segja að til að
rétta hlut skordýra verði að friða
stór landsvæði fyrir þau og helst að
gera landbúnaðarland fjölbreyttara
með fjölbreyttari ræktun.
Það sem gerir niðurstöðu
rannsóknarinnar enn ógnvænlegri
er að hún fór að mestu fram á
náttúruverndarsvæðum og friðlandi
þar sem búast má við að finna
meira af skordýrum en í borgum
og á landi sem notað er undir
landbúnað og ræktun. /VH
ESB vill draga úr eftirliti
á kjúklingakjöti
Ef hugmyndir sem nú eru á
sveimi innan reglugerðafargans
Evrópusambandsins verða að
veruleika má búast við að reglur
um eftirlit með kjúklingakjöti
verði rýmkaðar og að dregið
verði úr eftirlitinu. Sérfræðingar
segja óhjákvæmilegt annað en
að matareitrunum muni fjölga í
kjölfarið.
Samkvæmt núverandi reglum
Evrópusambandsins er skylt að
skoða alla kjúklinga sem er slátrað
fyrir hugsanlegu smiti eða merkjum
um smit áður en þeir fara á markað.
Nú eru uppi hugmyndir um að draga
úr eftirlitinu. Sérfræðingar segja að
minna eftirlit muni óhjákvæmilega
leiða til aukinnar tíðni matareitrana.
Vilja draga úr eftirliti
Innan Evrópusambandsins eru uppi
hugmyndir um að draga úr opinberu
eftirliti með slátrun og heilbrigði
kjúklinga sem fara á markað.
Samkvæmt tillögum sem verið er
að skoða er gert ráð fyrir því að í
staðinn fyrir að hver einasti fugl verði
skoðaður verði hér eftir einungis
teknar stikkprufur til athugunar.
Nýju reglurnar eiga aðallega að
gilda um kjúklingaframleiðendur
og afurðastöðvar sem standast
opinberar kröfur um hreinlæti og
sjúkdómavarnir.
Rök fyrir minna eftirliti byggja
á þeirri röksemd að öll meðferð á
matvælum í dag sé betri en þegar
fyrri reglur voru settar og að dregið
hafi úr hættu á sýkingum.
Aukin hætta á smiti
Eftirlitsaðilar og talsmenn ýmissa
neytendasamtaka segja aftur
á móti að strangt eftirlit með
kjúklingaslátrun og kjúklingakjöti
sem fer á markað sé nauðsynlegt
til að tryggja neytendum ósýkta
vöru og benda á að kampýlóbakter
sýking sé algengasta orsök
matareitrunar í Evrópu. Fjöldi
skráðra tilfella matareitrunar af
völdum kampýlóbakter í Evrópu er
um níu milljón á ári og fer vaxandi.
Flest dæmin eru vegna smits úr
kjúklingakjöti. /VH
Uppi eru hugmyndir um að draga úr eftirliti á kjúklingakjöti innan Evrópu-
sambandsins.
Nýleg rannsókn á fjölda skordýra í Þýskalandi sýnir að fjöldi þeirra hefur
dregist saman um allt að ¾.