Bændablaðið - 18.10.2018, Page 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018 49
Þessi skemmtilega húfa heldur
hita á þér í vetur. Prjónuð úr
Drops Nepal sem nú er á 30%
afslætti hjá okkur.
Stærðir: S/M (L/XL)
Höfuðmál: ca 53/55 (56/58) cm
Garn: Drops Nepal fæst í Handverkskúnst
Litur grár nr 0501: 100 (100) g
Prjónar: Hringprjónn 60 cm nr 4,5 – eða þá
stærð sem þarf til að 17 lykkjur með perluprjóni
verði 10 cm.
Tvöfalt perluprjón:
Umferð 1 (rétta): *Prjónið 1 L sl, 1 L
br*,endurtakið frá *-*.
Umferð 2 (ranga): Prjónið sl yfir sl og br yfir br.
Umferð 3 (rétta):Prjónið br yfir sl og sl yfir br.
Umferð 4 (ranga): Prjónið eins og umf 2.
Endurtakið umf 1 til 4.
Garðaprjón (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
Aðferð: Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 80 (88) lykkjur. Prjónið 1 umf slétt,
prjónið nú tvöfalt perluprjón – sjá skýringu að
ofan – yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist
20 (21) cm (stillið af þannig að síðasta umf er
frá réttu) er prjónað garðaprjón – sjá skýring að
ofan – til loka, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í
4. hverri umf þannig:
Umferð 4: Fækkið um 16 (18) lykkjur jafnt yfir (=
ca 5. hver L) = 64 (70) lykkjur á prjóni.
Umferð 8: Fækkið um 13 (14) lykkjur (= ca 5.
hver L) = 51 (56) lykkjur.
Umferð 12: Fækkið um 10 (11) lykkjur (= ca 5.
hver L) = 41 (45) lykkjur.
Umferð 16: Fækkið um 9 (9) lykjur (= ca 5. hver
L) = 32 (36) lykkjur.
Umferð 20: Prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt
saman = 16 (18) lykkjur.
Umferð 24: Prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt
saman = 8 (9) lykkjur.
Klippið bandið frá og dragið bandið í gegnum
þær lykkjur sem eftir eru. Saumið húfuna
saman við miðju að aftan, saumið kanti í kant
þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.
Húfan mælist ca 26 (27) cm. Festið bandið vel
og þvoið húfuna.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Perluprjónshúfa
HANNYRÐAHORNIÐ
Létt Miðlungs
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Þung
7 5 3 8
6 2 4 1
5 7 8 6
1 5 9 4
4 2 1 3
9 5 6 8
2 9 8 7
3 6 1 9
6 4 9 5
Þyngst
7 6
9 5 6 3 8
8 4 1
7 8
6 1 5 2
8 4
9 8 4
4 3 2 7 9
2 5
5 9 2
2 6 1
5 4 6
2 4 7
3 6
8 5 7
2 9 4
5 3 8
3 9 1
4 1 9
2 8
5 7 1
3 8 7 6
9 6
5 2 3 4
3 1 6
1 2
4 3 7
Hundurinn Hekla í mestu uppáhaldi
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
„Ég heiti Benjamín
Magnús og hef búið í
sveit frá 2 ára aldri og
finnst það frábært. Við
eigum hesta, hænur og
einn hund sem heitir
Hekla.“
Nafn: Benjamín Magnús
Magnússon, fæddur í
Reykjavík 16. júní 2006.
Aldur: Ég er 12 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Ég bý á Hallanda í
Flóahreppi.
Skóli: Ég er í Flóaskóla sem er
um 100 barna skóli í sveitinni. Við
erum sótt með skólabíl.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Íþróttir eru
uppáhaldsgreinin mín en mér finnst
líka gaman í náttúrufræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundurinn minn, hún Hekla.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri eins
og amma eldar það og svo pitsurnar
hans pabba.
Uppáhaldshljómsveit: Í dag er það
Coldplay en annars finnst mér mjög
gaman að hlusta á alls konar tónlist.
Uppáhaldskvikmynd: Avengers
Infinity Wars finnst
mér frábær.
Fyrsta minning þín?
Þegar ég var 2 ára og
bjó í Reykjavík áður
en ég flutti í sveitina.
Ég man að ég átti
leikfangabíl sem ég
elskaði.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Já ég er að æfa fótbolta
með UMFS á Selfossi og er
markmaður í 4. flokki.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að
sjálfsögðu að verða atvinnumaður
í knattspyrnu og kannski verð ég
þjálfari líka?
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Einu sinni var ég hjá
vinum mínum sem eiga heim rétt
hjá mér og þar er stór gámur. Við
vorum að leika okkur í kringum
hann og við klifruðum síðan upp á
hann og hoppuðum alla leið niður.
Ég veit að það er smá hættulegt en
það var geggjað gaman.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór með mömmu og systur
minni ásamt ömmu Svanhvíti og afa
Jóni til Spánar að heimsækja frænku
mína.
Næst » Benjamin skorar á Ólöfu
Völu Heimisdóttur að svara næst.