Bændablaðið - 18.10.2018, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 18. október 2018
Auglýsinga- og
áskriftarsími
Bændablaðsins
er 563-0300
480 5600
Landstólpi - Egilsstöðum
Vélaval - Varmahlíð
Verð
kr. 8.328
Útsölustaðir:
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa . Fáanlegir í
185–240 cm breidd.
TIL SÖLU
Hilltip Icestriker 120–200 L
Salt og sanddreifari fyrir jeppa,
pallbíla eða lyftara. Rafdrifin 12V.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótennur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegar í
165–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SML
Snjótennur fyrir minni vörubíla
ca. 7,5 tonn. Fáanlegar í 260–300
cm breidd.
Hilltip Rotating Sweeper
Vökvadrifinn sópur fyrir pallbíla
og minni vörubíla. Fáanlegur í
180-200-220 cm breiddum.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S: 551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 550–1600 L
Salt og sanddreifarari í þremur
stærðum, fyrir pallbíla sem og
minni vörubíla. Rafdrifin 12V.
Soffía Björg semur lögin í sveitinni
Tónlistarkonan Soffía Björg
Óðinsdóttir frá Einarsnesi í
Borgarfirði spilaði nokkur vel
valin lög á landbúnaðarsýningunni
í Laugardalshöll um síðustu
helgi. Fjöldi gesta hlýddi á Soffíu
Björgu á bás Bændasamtakanna
en þar var búið að setja upp
töðugjaldahátíð og leikmyndin
minnti á hlöðu í íslenskri sveit.
Fram undan eru tónleikar hjá
Soffíu Björgu í Landnámssetrinu
eftir viku.
Soffía Björg, sem er búsett í
Borgarfirði, er ein átta systkina frá
bænum Einarsnesi sem er steinsnar
frá Borgarnesi. Hún hefur sungið
víða með hljómsveitinni Brother
Grass og einnig samið kórverk.
Fyrsta plata hennar kom út árið
2017. Síðustu misseri hefur Soffía
Björg fylgt eftir sínu efni með
tónleikahaldi en síðastliðið vor
gaf hún út nýtt lag, „Þeir vaka yfir
þér“, sem hefur fengið ágæta spilun
á útvarpsstöðvum. Lögin hennar „I
lie“ og „Back & back again“ hafa
jafnframt notið mikilla vinsælda
síðustu ár.
Tónleikar í Landnámssetrinu
fimmtudaginn 25. október
Soffía Björg verður með tónleika
í Landnámssetrinu í Borgarnesi
þann 25. október næstkomandi
fimmtudag. Tónleikarnir byrja
klukkan 20.00 og er aðgangseyrir
2.000 krónur.
Mynd / TB
Hrúta- og sölusýning Fjárræktar-
félagsins Neista í Hörgársveit
Hrúta- og sölusýning Fjárræktar-
félagsins Neista í Hörgársveit var
haldin í Garðshorni á Þelamörk á
dögunum. Keppt var í flokkunum,
hvítir hyrndir, mislitir og kollóttir.
Dómarar voru þeir Birgir Arason
í Gullbrekku og Steingrímur í
Torfufelli.
Þórður og Simmi á Möðruvöllum
áttu besta hrútinn í flokki mislitra,
Davíð í Kjarna varð í öðru sæti og
Árni í Grjótgarði í því þriðja. Í flokki
kollóttra varð hrútur Davíðs í Kjarna
hlutskarpastur, Helgi á Syðri-Bægisá
átti hrútinn sem varð í öðru sæti og
Birna og Agnar í Garðshorni þann
sem varð í þriðja sæti.
Egill í Skriðu átti besta hrútinn
í flokki hyrndra, Agnar og Birna í
Garðshorni þann sem varð í öðru
sæti og Helgi á Syðri-Bægisá þann
sem varð í þriðja sæti. Besti hrútur
sýningarinnar var valinn hrútur Egils
í Skriðu, Helgi á Syðri-Bægisá var
með best gerðu gimbrina. Tvær
gimbrar kepptu um titilinn best
skreytta gimbrin og unnu börnin í
Garðshorni þann titil. /MMÞ Myndir / Birgitta Lúðvíksdóttir