Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Í nokkurn tíma hef ég ætlað
að prófa litla sendibílinn frá
Dacia og þegar ég sá svoleiðis
bíl innréttaðan sem húsbíl hjá
einstaklingi kom það mér á óvart
að svona lítill bíll gæti gagnast
sem húsbíll svo ákvað ég að prófa
gripinn.
Bíllinn sem ég prófaði var með
lokuðu þili á milli ökumannsrýmis
og farangursrýmis og því uppsettur
sem sendibíll.
Vélin sú sama og í Duster
og Logan
Vélin er 1500cc. disel og skilar
90 hestöflum og er sama vélin og
í Logan og Duster, en Duster átti
ég í 2 ár og var afar ánægður með
þann bíl í alla staði þar til kom að
kerrudrætti, en 1500cc. dísilvél
er ekki vænleg til að vera mikið
í kerrudrætti. Hins vegar er þessi
diselvél afar sparneytin, en uppgefin
eyðsla í blönduðum akstri er 4,5
lítrar af disel á hundraðið. Mér tókst
nokkrum sinnum við mismunandi
aðstæður að ná eyðslunni á mínum
Duster niður í 4,6 á hundraðið.
Eftir prufuaksturinn á þessum
litla sendibíl sagði aksturstölvan
að miðað við 100 km akstur hefði
ég verið að eyða 5,9 lítrum (í
hávaðaroki og rigningu), nokkuð
gott miðað við veður og að ég væri
að keyra bílinn í fyrsta skipti.
Þægilegur í akstri og lítið
malarvegahljóð, þrátt fyrir að
vera á vetrardekkjum
Ég prófaði bílinn á mjög grófum
malarvegi og kom á óvart hversu
fjöðrunin var góð á mölinni og
veghljóð lítið. Inni í hjólaskálunum
að aftan heyrðist aðeins í smærri
steinum sem mjúkir hjólbarðarnir
skutu upp í innri afturbrettin
Hjólbarðarnir undir bílnum
voru heilsárs hjólbarðar (ónegld
vetrardekk).
Bíllinn er á dekkjastærðinni
185/65/15, en án vandræða er hægt
að stækka dekkin um eina stærð til
að fá belgmeiri dekk og enn betri
fjöðrun.
Varadekk er í fullri stærð og er
undir bílnum á stað sem nokkuð
þægilegt er að ná undan án mikillar
verkfræðiþekkingar.
Prufuaksturinn
Að keyra bílinn er þægilegt, en
þrátt fyrir að Dacia séu ódýrir
bílar þá mega þeir eiga það að
ökumannssæti og sætið þar við
hliðina í öllum bílum sem ég hef
prófað frá Dacia eru góð og þægileg
(aðeins síðri eru aftursæti í Duster
og Logan).
Mælaborðin eru einföld og
hægt að nálgast allar nauðsynlegar
upplýsingar til aksturs, en lítið
umfram það nauðsynlegasta.
Hliðarspeglarnir mættu vera
stærri og ná lengra út til að fá betri
sýn aftur fyrir bílinn, sérstaklega
þegar verið er að bakka að einhverju
eða í stæði.
Útvarpið fær ekki hjá mér neina
stórtónleika einkunn, en dugir vel
fyrir þetta litla rými sem er frammi
í bílnum.
Verð og aukahlutir
Dacia Dokker kostar frá 2.340.000
(án vsk. 1.887.096), en hægt er að fá
ýmsan aukabúnað s.s. dráttarkúlu,
en uppgefin dráttargeta bílsins er
1200 kg. Persónulega myndi ég
halda að það væri mikið „bílnýíð“að
draga eitthvað sem er 1200 kg á
þessum bíl. Ég myndi halda að 600
kg væri nóg fyrir 1500cc. 90 hestafla
dísilvél. Auka álfelgur 15" og 16".
Á 16" álfelgum verður bíllinn
aðeins stífari og skemmtilegri á
malbiki, en síðri á möl).
Loka niðurstaða
Sennilega einhver ódýrasti litli
sendibíllinn sem er á markaðnum
í dag og ódýrasti í rekstri. Verð og
gæði fara í flestum tilfellum saman
sem er oftast rétt.
Vissulega eru nokkur atriði sem
vantar í þennan bíl sem er orðinn
staðalbúnaður í sambærilegum
bílum, svo sem bakkskynjarar eða
bakkmyndavél svo eitthvað sé
nefnt.
Maður fær þó ekki allt fyrir
ekkert og að mínu mati er hagkvæmt
nú í augnablikinu að kaupa þennan
bíl gagnvart framtíðinni, vitandi að
eftir nokkra mánuði munu svona
bílar og aðrir hækka töluvert í verði
vegna nýrra mengunarviðmiða.
Allar nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðunni www.bl.is.
Hámarks burðargeta 630 kg
Hæð 1.809 mm
Breidd 1.751 mm
Lengd 4.363 mm
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Dacia Dokker er 3,3 rúmmetrar að innanmáli. Myndir / HLJ
Gott aðgengi til reglulegs viðhalds við vélina er á Dacia.
muna að kveikja ljósin þegar lagt er af stað.
þessu má alveg breyta.
Farangursrýmið er glettilega stórt.