Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 Eflaust hafa margir lent með hugann fastan við laglínu sem er hreinlega föst í huganum í heilan dag eða meira. Í síðustu viku ók ég hring um landið og í stað þess að keyra hefðbundinn hring sem oftast er nefndur Þjóðvegur 1 tók ég nokkra auka kílómetra um sveitir, annes og fáfarna firði og úr varð 2.200 km rúntur á sjö dögum. Stuttu áður en ég lagði upp í þetta ferðalag sá ég myndband með Halla Reynis og Vigdísi þar sem þau sungu lag eftir Halla sem ber nafnið „Fjúkandi rúlluplast“. Daglega alla ferðina kom þessi laglína upp í hugann þegar ég ók um sveitir landsins og sá heyrúllur í stafla. Mikill munur á ásýnd sveita nú og fyrir örfáum árum Á hverju ári í nokkur ár hef ég ekið einn eða fleiri hringi í kringum landið ósköp svipaða leið, en samt alltaf farið á staði hluta leiðar þar sem ég hef ekki komið áður. Þó svo að í huga mínum hafi síðastliðna viku alltaf verið þessi laglína um fjúkandi rúlluplast, er ekki þar með sagt að sú hafi verið sýnin sem við mér blasti. Vissulega sá ég fast í girðingum flaksandi rúlluplast sem betur hefði verið í Endurvinnslunni, en að ferðast nú um landið og fyrir nokkrum árum er stór munur. Ekki er hægt annað en að hæla bændum almennt fyrir mikla snyrtimennsku, séða frá þjóðvegum. Hins vegar þar sem ég sá rúlluplast fast í girðingum var þetta oftar en ekki á nokkrum bæjum í röð, en á öðrum stöðum ók maður í gegnum heilu sveitirnar og sá þá hvergi í neinni girðingu rúlluplast í girðingum. Víða verið að taka til í járnaruslahaugum og annars staðar var ruslinu stillt upp sem skrauti Einnig hefur járnaruslahaugum sjáanlegum ferðamönnum fækkað en á nokkrum stöðum mátti sjá slíka hauga sem greinilega voru að bíða örlaga sinna, tilbúnir að vera settir í næsta járnagám til endurvinnslu. Ryðguð vinnutæki frá fyrri part síðustu aldar hafa alltaf verið eitthvað sem heillar mig og að sjá svoleiðis tækjasafn snyrtilega raðað og aðgengilegt til að skoða hefur ósjaldan verið tilefni hjá mér til að stoppa og virða fyrir mér þessi fyrrum þörfu tæki, sem þóttu svo ómissandi fyrir um 60–100 árum. Víða má sjá svona tæki í fjarlægð við vegi landsins og ýmislegt annað þar saman við. Með smá vinnu má oft gera það sem virðist rusl og drasl að lystigarði fyrir þá sem hafa gaman af gömlu „ryðguðu dóti“ og vilja njóta þess. Listaverk og blómapottar Allavega þegar mér var hugsað til síðustu 10 ára er landið alltaf að verða fegurra og skemmtilegra til ásýndar þegar ferðast er. Vil ég almennt þakka bændum fyrir dugnað við að fegra sitt nánasta umhverfi og skreytingar með gömlum munum og tækjum síðustu árin. Að lokum verð ég að nefna eitt sem vakti athygli mína og ánægju. Það er að í ferðaþjónustunni að Langaholti hefur verið safnað saman ýmsum gömlum munum og gróðursett nytjajurtir í eitt horn við húsið þar sem gestir gjarnan njóta kvöldsólar, Whisky og vindla. Í þessum pottum fann Tjaldur sér hreiðurstæði og nýtur skjólsins þarna í horninu liggjandi á eggjum sínum. Hann gerir sér þó annaðhvort upp mannamun, eða er vandfýsinn á tegund vindla, því að á suma lítur hann varla og liggur sem fastast á eggjunum, en á aðra gellur hann á með skerandi hávaða. Íslenskir bændur – takk fyrir snyrtilegar sveitir – Mikið hefur breyst á nokkrum árum svo textinn í lagi Halla Reynis, „Fjúkandi rúlluplast”, á vart lengur við Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær 480-0000 - sala@aflvelar.is - www.aflvelar.is Cleanfix HS770 sópurinn hentar bæði inni og úti. Fyrir bílaplön, bílageymslur, íþróttasvæði, o.fl. Vinnslubreidd 77 cm Stillanlegur hliðarbursti 32L tankur Handknúinn sópur VÍRUS NABBI MÁL HVIÐA SJOKK MANNA KK NAFN FUGL VAGN HÆRRA VEIÐI SKJÖGUR BYLTA AFGANGUR GETRAUN ÓSKERT SVELG TVEIR EINS MJÖG BIRTA TÆKIFÆRI ASI TVEIR EINSSKREIÐAST RÍKI Í SV-ASÍU SJÁ EFTIR VERRI STEINLÍM ELDHÚS- ÁHALD FJALLSNÖF STÆKKA HÖFÐIBANA SNÖKT VINNA BAKTAL FUGL SÍLL HÓFDÝR VESÆLL BLÍSTRU KEYRSLA TVEIR EINS FRAM- KVÆMA NÆÐA VILJA ÁVÍTUR INNVOLSMAKA SUNDFÆRI HÝRA ÓHREININDI KLAKA SPENDÝR GLUFA URG SPRIKL HOLU- FISKUR ANGAN SORGBITIN SJÚK- DÓMUR RÓMVERSK TALAFRJÁLSA SKORDÝR DÍNAMÓR NOKKRIRPLANTA ÁRANS 85 VARNA TRJÁ-TEGUNDAR HVIÐA DÝRA- HLJÓÐ ÓSKORÐAÐ BOGI SKÝLA KSVISS V E I K J U L Á S RFLYTJA E I Ð A SVALLSPIL R A L L ARÓL R K S K R U M Æ J A F T A KVABBORG S U Ð F FLÓN Í RÖÐ MANNS- NAFN FÁLM K A R L SKJÁLFA SKÓLI N Ö T R A SPRIKLBARN KBLAÐRA RAUP HRAÐAÐ J A R P I BEIN MARGS- KONAR ÓLGU Ý M I S UTANMÁL KROT TVEIR EINSRAUÐ-BRÚNI A U S A FESTA RÆTUR SKYLDLEIKI R Æ T A URGUR SOÐNINGUR K U R RSKVETTA Á L L DANSTALA T V I S T EINHVERJIR LÉLEGT MÓLAG S U M I RTVEIR EINS L I T VAFIAFHENDING E F I LÖGUNARRÁÐGERA F O R M S PILLAFARFA A OF LÍTIÐ STAÐ- SETTNING V A N NÁKOMIÐ N Á I Ð HYLLI SPYRJA Á S T G L E F S FUGLSPENDÝR G Æ S GANGÞÓFI I L SKURÐ-BRÚN ABIT R E I S L A SKAÐIRÁS T J Ó N VAFIÆST E FVOG Ö S G A R TEYMA A L HUGSA E P I Æ Ð L A A URGA KLÓ S N A Ö R G G L A STORKA ÁTT 84 Járnaruslahaugum sjáanlegum ferðamönnum hefur fækkað en á nokkrum stöðum mátti sjá slíka hauga sem greinilega voru að bíða örlaga sinna, til- búnir að vera settir í næsta járnagám til endurvinnslu. Með smá breytingum væri hægt að gera þetta bara huggulegt minjasafn. Í gamalli þvottavélartrommlu á Langaholti á Tjaldur sér hreiðurstað. Tjaldsegg í þvottavélatrömlu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.