Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 Geysimikið sandveður í Mývatnssveit: Heilmikið rof, sandskaflar á girðingum og tjón á bílum AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL Sandfok í Mývatnssveit 20. maí 2018. Mynd / Daði Lange Friðriksson Geysimikið sandveður gekk yfir Mývatnssveit á hvítasunnudag, 20. maí síðastliðinn, hið mesta í mörg ár. Afleiðingarnar eru ekki að fullu komnar í ljós, en vitað að töluvert var um skemmdir á bílum, ferðalangar gátu ekki barið náttúruperl- ur augum og líkur eru á að nýjar sáningar hafi að hluta til misfarist. Daði Lange Friðriks- son, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar á Norðurlandi eystra, segir að gríðarlegt magn af efni hafi verið á ferðinni þennan sunnudag og rofmátturinn svakalegur. „Gróður var á þess- um tíma rétt að byrja að kvikna, hann er á þeim tíma afar viðkvæmur og hefur enga burði til að takast á við veður af þessu tagi. Mikið er af lausum efnum á yfirborði eftir veturinn.“ Álíka mikið rof og heildarrof undanfarinna 5 til 6 ára Daði metur það svo að rofið í þessu eina veðri sé álíka mikið og heildarrof undanfarinna 5 til 6 ára. Hann nefnir einnig að í veðrinu hafi orðið mikil losun á kolefni og fylgdi því mikil mengun. Þó nokkuð er um að heilmiklir sandskaflar hafi hrúgast upp á girðingar og þá telur Daði líklegra en ekki að melsán- ingar, m.a. í Grænavatnsbruna og á Miðfjöllum, hafi misfarist að hluta til. „Við eigum eftir að fara um þau svæði og skoða hvernig veðrið hefur leikið sáningarnar. Okkur hefur enn ekki gefist tími í það,“ segir hann. Silungur gæti hafa drepist i vatninu Íbúar á svæðinu minnast þrálátra suðvestanátta t.d. í kringum árið 1980 og veðurfar var með svipuðum hætti árið 1992, en það ár var áttin suðvestanstæð í 4 til 6 vikur nánast samfellt. Daði vitnar í svartsýnan eldri bónda í Mývatnssveit sem hafði á orði að silungur í vatninu gæti hafa drepist í veðrinu. Vatnsgangurinn hafi verið slíkur að efni á botninum rótaðist upp, gruggið gæti hafa sest í tálknin á silungnum og hann drepist. „Eitthvað hefur veiðst af silungi í Mývatni eftir að veðrið gekk yfir, svo hann hefur að minnsta kosti ekki allur drepist,“ segir Daði. Þurrt land og auðvelt að komast um Óvenjusnjólétt er á svæðinu umhverfis Mývatnssveit þetta vorið og segir Daði að oft hafi verið skroppið á vélsleða á Kröflusvæðinu um mánaðamótin maí-júní en núna sé það útilokað. Landið er þurrt og auðvelt að komast um. Hólasandur er t.d. orðinn nánast snjólaus sem er mjög óvanalegt. „Við munum líka eftir því að vorið 2006 byrjaði að snjóa 17. maí og það var úrkoma samfellt í heila viku, þannig að staðan núna er frekar óvenjuleg,“ segir hann. /MÞÞ OPIÐ: Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18 Föstudaga kl. 9 - 17 Lokað á laugardögum í sumar GASELDAVÉLAR HÁGÆÐA 3ja ára ábyrgð ELBA Í YFIR 60 ÁR Þessi mynd frá NASA sýnir umfang sandfoksins 20. maí síðastliðinn. Sandfok er greinilega ekki óalgengt í Mývatnssveit. Þessi mynd var tekin af nauðausturhorni Íslands úr gervihnetti NASA þann 17. september 2008. Þarna má vel greina sandstorminn í bakgrunni. Jarðböðin í Mývatnssveit. Mynd / HKr. Skútustaðahreppur selur hlut sinn í Jarðböðunum í Mývatnssveit Skútustaðahreppur hefur selt hlut sinn og nýtir hagnað til brýnna verkefna. Salan á sér nokkra forsögu, en vorið 2015 barst óformlega fyrirspurn til sveitarstjórnar þar sem spurt var um vilja þess til sölu á tæplega 6% hlut sínum í Jarðböðunum og boðnar 50 til 70 milljónir króna fyrir. Því tilboði var af hálfu sveitarstjórnar hafnað. Erindið hreyfði hins vegar við málinu á vettvangi sveitarstjórnar enda er eignarhald á hlut í slíku félagi og rekstur slíks fyrirtækis ekki hluti af kjarnastarfsemi sveitarfélagsins. Þar að auki lá fyrir að ýmis brýn uppbyggingarverkefni biðu sveitarfélagsins á næstu misserum. Á fundi sveitarstjórnar Skútustaðahrepps í desember árið 2016 var samþykkt bókun þess efnis að hlutabréf Skútustaðahrepps í Jarðböðunum yrðu seld ef viðeigandi verð fengist fyrir. Tvö tilboð Tvö tilboð bárust í allan hlut sveitarfélagsins og tvö tilboð í minni hlut. Sveitarstjórn samþykkti að taka hæsta tilboðinu, en það hljóðaði upp á 263,7 milljónir króna fyrir 5,86% hlut sveitarfélagsins. Tilboðið kom frá aðila sem ekki var hluthafi í félaginu og reyndist það 27% hærra en verðmatið sem sveitarfélagið hafði látið gera og 56,7% hærra en verðmatið sem stjórn Jarðbaðanna lét vinna. Þrír hluthafar nýttu forkaupsrétt Stjórn félagsins hefur forkaupsrétt að fölum hlutum í hlutföllum við hlutafjáreign sína, hún féll frá sínum forkaupsrétti en þrír hluthafar, Tækifæri hf., Íslenskar heilsulindir ehf. og Landsvirkjun, nýttu sér forkaupsréttinn og gengu því inn í tilboð hæstbjóðanda í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Sveitarstjórn hefur lýst yfir ánægju sinni með niðurstöðuna og hversu vel tókst til með söluferlið. Söluverðmætið nam sem fyrr segir tæplega 264 milljónum króna, en að frádregnum fjármagnstekjuskatti og söluþóknun var hreinn söluhagnaður 195 milljónir króna. Hagnaður nýttur til brýnna verka Á minnisblaði sem lagt var fram á fundi sveitarstjórnar í október 2017 var lagt til að söluhagnaði yrði ráðstafað m.a. til að greiða upp skuldir sveitarfélagsins, að fara í nauðsynlegar gatnagerðarframkvæmdir og frekara viðhald á fasteignum. Þá kemur fram á blaðinu að hagnaður verði einnig notaður til að hefja uppbyggingu Þekkingar- og menningarseturs við Skjólbrekku, hefja undirbúning við byggingu sundlaugar, en einnig var hluti hagnaðar eyrnamerktur Umbótaáætlun sveitarfélagsins í fráveitumálum. Um fjórðungur fjárins fer í varasjóð. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.