Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Ný stjórn Landbúnaðarklasans var
kjörin á aðalfundi hans í síðasta
mánuði. Finnbogi Magnússon,
framkvæmdastjóri Jötunn Véla,
tekur við formannshlutverkinu
af Ara Edwald, forstjóra MS.
Landbúnaðarklasinn var formlega
stofnaður árið 2014 en markmið
hans eru fyrst og síðast að tengja
saman þá aðila sem vinna í
landbúnaði og matvælaframleiðslu
og stuðla að aukinni arðsemi og
nýsköpun innan greinarinnar.
Starfsemi klasans fór hægt af
stað en á síðustu misserum hafa
hlutirnir komist á meiri hreyfingu.
Gerður var samstarfssamningur
við Sjávarklasann og Matarauð
Íslands sem fólst meðal annars í
aðstöðu fyrir frumkvöðla í húsnæði
Sjávarklasans á Granda í Reykjavík.
Fyrirtæki sem meðal annarra hafa
notið góðs af því samstarfi eru
Lava cheese, Pure Natura, Ljótu
kartöflurnar og Gagnsjá ehf.
Áfram unnið að nýsköpun
Finnbogi Magnússon segist hafa
miklar væntingar til nýrrar stjórnar
Landbúnaðarklasans. Hann á
von á því að áfram verði unnið
að því að ýta undir nýsköpun og
frumkvöðlastarfsemi í starfsemi
klasans.
„Persónulega er ég mjög
spenntur fyrir starfinu því það er
fátt skemmtilegra en að vinna með
hugmyndaríku fólki og finna leiðir
til að hjálpa frumkvöðlum til að þróa
og þroska sínar hugmyndir þannig
að úr verði arðsöm starfsemi,“ segir
Finnbogi og bætir við að á síðasta
starfsári hafi klasanum tekist að
styðja við og aðstoða forvígismenn
sjö áhugaverðra verkefna. „Það er
gaman að segja frá því að eitt þeirra
verkefna, Lava Cheese, er nú þegar
komið í útrás til Svíþjóðar. Mín
sýn er að á næstu árum munum við
sjá mikla nýsköpun í landbúnaði
þar sem áhersla verður lögð á að
auka verðmæti bæði grunn- og
hliðarafurða framleiðslunnar.“
Leysum krafta úr læðingi
Finnbogi segir að ferðamanna-
straumurinn til Íslands skapi
gríðarleg tækifæri fyrir innlenda
matvælaframleiðslu og þróun ýmiss
konar sérvara.
„Við höfum á undanförnum
árum séð hvers konar grettistaki
Sjávarútvegsklasinn hefur lyft fyrir
sjávarútveginn og draumur okkar
í stjórninni er að hjálpa til við að
leysa úr læðingi svipaða orku innan
landbúnaðarins,“ segir hann.
Til sjávar og sveita
Það sem er fram undan hjá
Landbúnaðarklasanum, að sögn
Finnboga, er mótun starfseminnar
og fjármögnun. Þá hefur
Landbúnaðarklasanum verið boðið
að taka þátt í viðskiptahraðli á vegum
Startup Iceland.
„Við í stjórninni erum þessa
dagana að vinna að því að tryggja
klasanum aukið fjármagn þannig að
við getum m.a. ráðist í gríðarlega
spennandi verkefni í samstarfi
við Startup Iceland sem nefnist
Til sjávar og sveita. Það gengur
út á að leita uppi frumkvöðla
með áhugaverðar hugmyndir á
sviði nýsköpunar í landbúnaði
og sjávarútvegi. Hugmyndin er
að halda kynningarfundi um allt
land í haust og áhugasamir aðilar
senda í kjölfarið inn umsóknir. Tíu
hugmyndir verða valdar til þátttöku
í þessu verkefni og munu þeir aðilar
fá handleiðslu sérfróðra aðila við
þróun sinna hugmynda sem endar
síðan með kynningu fyrir fjárfestum
ef menn vilja.“
Starfið fjármagnað með
árgjöldum
Finnbogi segir að bæði fyrirtæki og
einstaklingar geti tekið þátt í starfsemi
Landbúnaðarklasans. Klasastarfið
er fjármagnað með árgjöldum sem
eru sniðin að stærð fyrirtækja. Sem
þátttakendur í Landbúnaðarklasanum
gefst fyrirtækum tækifæri á að
taka þátt í spennandi starfi og
stuðla að nýsköpun og framþróun
landbúnaðarins.
„Efling og áframhaldandi
uppbygging íslensks landbúnaðar
er mikilvæg fyrir íslenska þjóð og
með því að greiða árgjald klasans
eru fyrirtæki og einstaklingar að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar og
verða þannig óbeint þátttakendur í
þeirri uppbyggingu,“ segir Finnbogi
að lokum.
Áhugasamir um starfsemi
Landbúnaðarklasans geta
haft samband í netfangið
landbunadarklasi@gmail.com og
séð upplýsingar á vefsíðunni www.
landbunadarklasinn.is /TB
Finnbogi Magnússon er nýr stjórnarformaður Landbúnaðarklasans:
„Munum sjá mikla nýsköpun í land-
búnaði á næstu árum“
Mynd / TB