Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 Ísey skyr er nýr bakhjarl íslenska Kokkalandsliðsins en samningur þess efnis var undirritaður á dögunum. Kokkalandsliðið er skipað færasta matreiðslufólki landsins og fram undan er sjálf Heims- meistarakeppnin í matreiðslu sem haldin verður í Lúxemborg í lok nóvember. Liðið leggur mikla áherslu á sérvalið íslenskt gæða hráefni og mun liðið á næstu mánuðum ljúka þróun á keppnisréttum sínum þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lambakjöt og Ísey skyr verða í aðalhlutverkum. Mjólkursamsalan er stoltur styrktaraðili íslenska Kokkalandsliðsins og óskar hópnum góðs gengis við undirbúninginn fram að keppni. Íslenskt lamb er orðið verndað afurðaheiti Ísey skyr styður kokkalandsliðið FRÉTTIR Neysluvenjur á kjöti hafa gjörbreyst á Íslandi á síðustu 34 árum: Alifuglakjöt er langvinsælasta kjötafurðin með 9.530 tonna sölu 2017 – þar á eftir kemur lambakjöt með 6.976 tonn og svínakjöt fylgir fast á eftir með 6.265 tonn Könnun Gallup á neysluvenjum erlendra ferðamanna á Íslandi sem birt var í síðasta Bændablaði vakti mikla athygli. Komið hefur fram hörð gagnrýni á að í tölunum er ekki tekið tillit til neyslu á alifuglakjöti sem hefði mögulega getað breytt myndinni. Þegar rýnt er í Hagstofutölur sést að innanlandssala á kindakjöti 2017 var 6.976 tonn, en 9.530 tonn af alifuglum og þar af nam innflutningur 1.398 tonnum. Engin leið er að segja nákvæmlega til um hver neysla erlendra ferðamanna hefur verið á innlendu alifuglakjöti vegna þess að 11% af heildarsölunni er innflutt kjöt. Ekki frekar en hver neyslan hefur verið á innlendu nautakjöti eða svínakjöti. Könnun Gallup sýndi að 57% erlendra ferðamanna hafi smakkað lambakjöt, en 41,7% nautakjöt og 25,3% svínakjöt. Alifuglakjöt var hins vegar ekki inni í dæminu. Könnunin gefur samt ágætar vísbendingar um hvað ferðamenn vilja upplifa. Í könnuninni má greina hvað ferðamenn vilja helst smakka, en hún segir samt ekkert um magnið sem neytt er. Þá er heldur ekki sjálfgefið að alifuglakjöt hefði endilega skorað hátt miðað við spurninguna sem lögð var fram, jafnvel þótt alifuglakjöt gæti verið oftast á diski ferðamanna. Ástæðan er einfaldlega sú staðreynd að alifuglakjöt er orðið algengasti hversdagsmaturinn um allan heim. Ferðamenn nefna því líklega fremur í svona könnun upplifun sína af því að prófa eitthvað nýtt, heldur en að lýsa magni þess sem neytt er. Gjörbreytt neyslumynstur Neysla Íslendinga á kjötafurðum hefur gjörbreyst á undanförnum áratugum samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Árið 1983 neyttu landsmenn t.d. 45,3 kg af kindakjöti að meðaltali á hvert mannsbarn á ári. Sú tala var komin niður í 19,5 kg árið 2015. Á sama tíma stökk neysla á alifuglakjöti úr 4,3 kg í 27,6 kg á mann á ári og á svínakjöti úr 4,3 kg í 21 kg á mann. Þá fór nautakjötsneyslan úr 8,8 kg í 14,1 kg. Hrossakjötsneyslan dróst hins vegar saman úr 3,2 kg á mann í 1,6 kg. Miðað við neysluþróun undanfarna áratugi á Íslandi með stóraukinni neyslu á alifugla- og svínakjöti, má leiða líkum að því að neysla erlendra ferðamanna sé í samræmi við það. Þannig að erlendir ferðamenn sem á annað borð borða lambakjöt gætu mögulega verið að neyta um 40% meira af alifuglakjöti en lambakjöti meðan þeir dvelja hér og um 8% meira af svínakjöti. Slík tölfræðinálgun er þó æði varasöm. Samantekt um kjötneyslu á íbúa hætt 2015 Tölur um kjötneyslu á hvern íslenskan ríkisborgara nær ekki lengra en til 2015. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu sáu menn engan tilgang í að halda slíkri samantekt áfram þar sem ferðamenn sem hingað streymdu voru þá farnir að hafa mikil áhrif á neyslutölurnar hér innanlands. Ekki var því mögulegt að greina hvort neytendurnir voru íslenskir eða erlendir ríkisborgarar. Væntanlega hlýtur það sama að gilda um neyslu á öðrum vörum eins og áfengi. Heildarsala á áfengi á Íslandi í dag gefur þannig alls ekki rétta mynd af neyslu alkóhóls á hvern íbúa landsins. Sundurgreining á neyslu erfið vegna innflutnings Þótt auðvelt væri að greina með slembiúrtakskönnun hversu margir erlendir ferðamenn neyttu íslensks lambakjöts, þar sem nær enginn innflutningur hefur verið á lambakjöti, þá er ekki sömu sögu að segja af öðrum kjöttegundum. Vaxandi innflutningur hefur verið á alifuglakjöti, svínakjöti og nautakjöti undanfarin ár. Innflutningur 0% af kindakjötssölunni Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands var flutt inn 1 tonn af kindakjöti á árunum 2012, 2013 og 2016. Á árinu 2017 var enginn innflutningur á kindakjöti. Það ár var kindakjötsframleiðslan rúm 10.619 tonn samkvæmt tölum Búnaðarstofu MAST. Innanlandssalan nam 6.976 tonnum og flutt voru út 3.162 tonn. Birgðir í árslok námu 5.751 tonni. Innflutningur 11% af alifuglasölunni Af alifuglakjöti var innan- landsframleiðslan 9.697 tonn árið 2017, en flutt voru inn 1.398 tonn. Heildarsalan var 9.530 tonn og þar af nam innflutningur líklega um 11%. Er þá miðað við að 754 tonna birgðir í árslok skiptist jafn á milli innlendrar framleiðslu og innflutnings. Innflutningur 23% af svínakjötssölunni Af svínakjöti var innanlands- framleiðslan 6.265 tonn árið 2017, en flutt voru inn 1.449 tonn. Heildarsalan var 6.269 tonn og þar af var innflutningur rúm 23%. Flutt voru út 5 tonn og birgðir í árslok voru því engar. Innflutningur 18% af nautakjötssölunni Af nautakjöti voru framleidd 4. 614 tonn á árinu 2017, en flutt voru inn 853 tonn. Heildarsala var 4.603 tonn og þar af var innflutningur um 18%. Birgðir í árslok voru 33 tonn. Innflutningur 0% af hrossakjötssölunni Af hrossakjöti voru framleidd 1.061 tonn á árinu 2017. Innflutningur var enginn en heildarsala 641 tonn. Þá voru flutt út 414 tonn af hrossakjöti og birgðir í árslok voru 64 tonn. /HKr. voru inn 1.398 tonn. Mynd / HKr. Kýrnar á bænum Garði í Eyjafjarðar sveit gripu tækifærið fegins hendi þegar þeim var hleypt út í fyrsta sinn á þessu sumri síðastliðinn föstudag. Viðtökur enda góðar utandyra, sól og blíða og nýsprottið grasið grænt og safaríkt. Orðatiltækið að skvetta úr klaufunum átti vel við þegar kýr tóku á rás úr fjósi og niður á tún. Alls eru um 140 kýr í Garði, en á efri hæð fjóssins er Kaffi Kú, þar sem gestum gefst færi á að njóta veitinga og fylgjast í leiðinni með daglegu lífi íbúa fjóssins. Gestir og gangandi fylgdust af áhuga með þegar kúm var hleypt út og í tilefni dagsins var boðið upp á frískandi og ískalt sítrónute og roastbeef samloku að bíta í með. Myndir og texti / MÞÞ Garður í Eyjafirði: Kýrnar skvettu úr klaufunum Íslenskt lambakjöt er fyrsta og eina skráða íslenska afurðaheitið samkvæmt lögum nr. 130/2014 um vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu. Ásamt notkun á heitinu fylgir heimild til að nota sérstakt íslenskt auðkennismerki í markaðssetningu. Það þýðir að íslenskt lambakjöt er nú verndað afurðaheiti í 30 löndum í Evrópu. Þetta er í samræmi við samning á milli Íslands og Evrópusambandsins um gagnkvæma verndun afurðaheita sem tók gildi 1. maí síðastliðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.