Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Vísbendingar eru um að
umskipti séu í uppsiglingu í
nautgriparækt í Bandaríkjunum
vegna loftslagsbreytinga.
Nautgripaeldi hefur verið að
aukast allt fram undir þetta, en
tíðari þurrkar virðast vera að
leiða til aukinnar slátrunar og
stóraukins framboðs af kjöti á
næstu misserum.
Markaðssérfræðingar hafa í
gegnum tíðina bent á hættuna af því
ef þjóðir eru ekki sjálfbærar hvað
varðar matvælaframleiðslu fyrir
íbúa sína. Árum saman hefur verið
hamrað á þessu, m.a. af Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO). Ef það kemur til
stóraukins framboðs, eins og nú
virðist vera að gerast varðandi
nautakjöt í Ameríku, þá mun verð
hríðfalla. Neytendur kunna að
fagna slíku í stundargleði, en sú
gleði kann að breytast í martröð á
ótrúlega skömmum tíma.
Hrun á nautakjötsmarkaði
Á fjármálasíðu Bloomberg má sjá að
fjárfestar eru búnir að missa trúna á
nautgriparæktinni í Bandaríkjunum
í framvirkum samningum. Ástæðan
er fyrirsjáanlegt offramboð á
kjöti vegna samdráttar bænda
í greininni. Kemur það í kjölfar
mikillar fjölgunar nautgripa
á fóðrunarstöðvum allt fram í
nóvember á síðasta ári. Í þeim
mánuði jókst ásetningin um 14%.
Má sjá að væntingar fjárfesta
þann 9. apríl sl. hafa lækkað um
rúmlega 80% síðan í nóvember
2017 og er þar talað um
nautgripahrun (Cattle Collapse).
Við lokun markaða 9. apríl hafði
stöðutaka í nautakjötsviðskiptum
lækkað um 26% frá því í lok mars.
Samkvæmt tölum U.S. Commodity
Futures Trading Commission,
höfðu viðskipti með nautakjöt
í apríl ekki verið lægri síðan í
október 2016. Viðskipti með
nautgripi á fæti sýna líka sömu
þróun, þar hefur verð verið að
snarlækka.
Í apríl var nautakjöt í
framvirkum samningum til
afgreiðslu í júní verðlagt á 97,074
cent fyrir pund af kjöti (0,45 kg).
Það þýðir að kílóverðið var komið
niður í 2,1 dollara, eða um 226
íslenskar krónur miðað við gengi
1. júní.
Því er nú spáð að bandarískir
bændur muni taka kálfa fyrr úr
fóðrun en venja er til og senda í
sláturhús til að fækka í stofninum.
Það þýðir aukið framboð af kjöti.
Það þýðir líka að meðalvigt
sláturgripa mun lækka um 8 til
10%.
Skortur og verðhækkanir munu
fylgja tímabundnu offramboði
Vegna lægri tollmúra víða um lönd
flæðir ódýra kjötið hindrunarlítið í
viðskiptum á milli landa. Það getur
haft mjög neikvæð áhrif á innlenda
nautgriparækt í viðkomandi ríkjum
og neikvæðri keðjuverkun. Bændur
ráða þá ekki við samkeppnina, gef-
ast upp og farga bústofni sínum.
Það þýðir enn meira framboð á
verðlitlu kjöti um tíma og gjald-
þrot í greininni. Þegar birgðir
ódýra kjötsins svo loks tæmast
verður búið að skaða innanlands-
framleiðslu í viðkomandi ríkjum
það mikið að greinin getur ekki
brugðist við. Þannig getur sam-
dráttur í nautgripaeldi leitt til kjöt-
skorts á markaði, allavega í tvö ár
eða meira og stórfelldrar hækkunar
á kjötverði. Ef ekki verður hafður
hemill á innflutningi til landa eins
og Íslands, gæti afleiðingin orðið
sú að ekki verður hægt að mæta
eftirspurn þegar kjötframboðið
minnkar. Hvorki með innflutn-
ingi né innlendri framleiðslu. Það
þýðir að fæðuöryggi þjóðarinnar
yrði mögulega ógnað. Þessi sviðs-
mynd hefur oft verið dregin upp af
sérfræðingum í milliríkjaviðskipt-
um, en jafn harðan skotin niður af
hagsmunaaðilar í innflutningi. Nú
eru komnar fram vísbendingar um
að slíkt ástand kunni að vera í upp-
siglingu ef ekki verði varlega farið.
Hér á landi er auk þess búið að opna
gáttir með nýlegum tollasamningi
við Evrópusambandið.
Bandaríkin eru langstærst í
nautakjötsframleiðslunni
Bandaríkin eru langstærsti
nautakjötsframleiðandi heimsins
með rétt tæplega 12,1 milljón
tonna á síðasta ári samkvæmt
tölum landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna (USDA). Það er
19,63% af heimsframleiðslunni.
Næstir í röðinni eru Brasilíumenn
með 9,5 milljónir tonna og
15,43% hlutdeild. Þá koma
Evrópusambandslöndin með
tæplega 7,9 milljónir tonna og
12,79% hlutdeild og Kína með
tæplega 7,1 milljónir tonna og
11,48% markaðshlutdeild.
Þess má geta að í Evrópu
eru þýskir bændur öflugustu
nautakjötsframleiðendurnir og
framleiddu þeir 1,1 milljón tonna
af nautakjöti 2017. Þar af voru
378.000 tonn seld úr landi. Þá voru
12 milljónir kúa á 146.600 bæjum
innan ESB landa á síðasta ári.
Fjölbreytileikinn í þýskri
nautgripaframleiðslu er mjög mikill
og eru þeir með yfir 40 tegundir
nautgripa á bak við sína framleiðslu
samkvæmt upplýsingum German
Meat. Þar eru Fleckvieh og
Braunvieh vinsælustu tegundirnar
í suðurhluta Þýskalands, en þýskar
Holstein kýr eru algengastar í
Norður-Þýskalandi.
Þess má einnig geta að
nautakjötsframleiðslan er ekki
stærsti kjötgeirinn í ESB-löndunum.
Þar er svínakjötsframleiðslan
öflugust með yfir 22 milljónir tonna
og um 51% hlutdeild á kjötmarkaði.
Þá kemur alifuglakjötið sem er um
13 milljónir tonna og með um 30%
hlutdeild og síðan nautakjötið með
tæplega 8 milljónir tonna og 17%
hlutdeild af kjötmarkaðnum.
Heimsframleiðsla á kjöti í
63 milljónir tonna
Spáð er að heimsframleiðsla á
nauta- og kálfakjöti aukist um 2%
á þessu ári og verði 63 milljónir
tonna. Einkum er um að ræða aukna
framleiðslu í Brasilíu, Argentínu
og Bandaríkjunum. Vegna þurrka
slátra bændur fleiri gripum en ella.
Aukin kjötframleiðsla í Brasilíu er
einnig drifin af stærri skrokkum og
meiri fallþunga en áður, samkvæmt
skýrslu landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna frá því í apríl 2018.
Aukið framboð eykur spennu
á mörkuðum
Þurrkar í Argentínu hafa neytt
bændur til að fara fyrr með
gripi til slátrunar sem eykur enn
á framboðið. Svipaða sögu er
að segja frá Ástralíu, þar sem
óhagstætt veðurfar hefur leitt til
þess að hagabeit er léleg. Þetta
mun leiða til aukins kjötframboðs
um sinn en erfiðara verður síðan
að byggja upp hjarðirnar að nýju.
Það mun þýða hækkandi verð á
kjötmörkuðum þegar fram í sækir.
Útflutningur þjóða á nauta-
og kálfakjöti er talinn verða um
5% meiri á þessu ári en í fyrra og
nema í heild um 10,5 milljónum
tonna. Aukningin mun einkum
koma frá Brasilíu, Argentínu og
Bandaríkjunum. Viðskiptabann
Rússa á Brasilíu mun auka framboð
og spennu á öðrum mörkuðum.
Líklegt er að menn reyni að leita
nýrra markaða í Asíu til að forðast
frekari verðlækkanir en orðið er.
Þurrkar í Bandaríkjunum leiða
til aukins kjötframboðs
Á vefsíðu Farm Journal var fjall-
að um málið í lok mars og sagt
að þurrkar séu að draga úr vexti í
nautgriparækt. Þann 1. janúar sl.
voru 94,3 milljónir nauta og kálfa í
Bandaríkjunum sem er 1% aukning
frá fyrra ári. Þá voru 31,7 milljónir
holdakúa í landinu, sem er mesti
fjöldi síðan 2008. Þetta er fyrir utan
mjólkurkúastofninn.
„Það er að draga úr vextinum í
greininni og það lítur út fyrir að við
höfum þegar náð toppnum,“ segir
Randy Blach, forstjóri CattleFax.
Frá 2015 hafa 2,4 milljónir naut-
gripa bæst við stofninn. Það voru
merki um góða tíð, sagði John
Nalivka, stjórnarformaður Sterling
Marketing. „En nú er farið að fjara
út.“
Miklir þurrkar voru í Banda-
ríkjunum í haust og fram á vetur,
einkum í Texas, Oklahoma og
Kansas og náðu til nær allra ríkja við
Mexíkóflóa og upp til landamæranna
að Kanada. Þurrkarnir náðu til
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Búast má við að stóraukið framboð af nautakjöti frá Ameríku vegna þurrka keyri niður heimsmarkaðsverð:
Óheftur innflutningur á ódýru kjöti gæti
stórskaðað íslenska kjötframleiðslu
– Talað um hrun í nautakjötsviðskiptum í Bandaríkjunum vegna offramboðs – möguleg ógnun við fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar
Kýr í útieldi fóðraðar í Kaliforníu.
Fóðrunarstöð nautgripa í Brasilíu.
1 Bandaríkin 12.086.000 19,63%
2 Brasilía 9.500.000 15,43%
3 Evrópusambandið 7.875.000 12,79%
4 Kína 7.070.000 11,48%
5 Indland 4.250.000 6,90%
6 Argentína 2.760.000 4,48%
7 Ástralía 2.065.000 3,35%
8 Mexíkó 1.910.000 3,10%
9 Pakistan 1.780.000 2,89%
10 Tyrkland 1.700.000 2,76%
11 Rússland 1.310.000 2,13%
12 Kanada 1.160.000 1,88%
13 Suður-Afríka 885.000 1,44%
14 Kólumbía 825.000 1,34%
15 Nýja-Sjáland 610.000 0,99%
16 Parúgvæ 610.000 0,99%
17 Úrúgvæ 605.000 0,98%
18 Japan 460.000 0,75%
19 Kasakstan 435.000 0,71%
20 Úkraína 390.000 0,63%
21 Egyptaland 360.000 0,58%
22 Suður-Kórea 285.000 0,46%
23 Hvíta-Rússland 277.000 0,45%
24 Chile 220.000 0,36%
25 Víetnam 219.000 0,36%
26 Perú 210.000 0,34%
27 Filipseyjar 210.000 0,34%
28 Íran 200.000 0,32%
29 Nígaragúa 155.000 0,25%
30 Sviss 141.000 0,23%
31 Alsír 140.000 0,23%
32 Venesúela 115.000 0,19%
33 Angóla 113.000 0,18%
34 Dómeníska lýðveldið 100.000 0,16%
35 Costa Ríga 78.000 0,13%
36 Ísrael 75.000 0,12%
37 Guatemala 72.000 0,12%
38 Sádí-Arabía 60.000 0,10%
39 Hondúras 50.000 0,08%
40 Líbanon 48.000 0,08%
41 Malasía 28.000 0,05%
42 Óman 27.000 0,04%
43 Jórdanía 23.000 0,04%
44 El Salvador 20.000 0,03%
45 Bosnía 16.000 0,03%
46 Sameinaða arabíska furstad. 16.000 0,03%
47 Líbía 9.000 0,01%
48 Kongó 8.000 0,01%
49 Taiwan 7.000 0,01%
50 Hong Kong 6.000 1,00%
51 Makedónía 5.000 0,01%
52 Kuwait 3.000 0,00%
53 Gabon 1.000 0,00%
Heimild: FAS/USDA - Magn í tonnum
Hlutfall helstu framleiðsluríkja af 61.583.000 tonna framleiðslu