Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018 Brautskráning nemenda af garðyrkjubrautum við Land- búnaðarháskóla Íslands fór fram í Hveragerðiskirkju 26. maí sl. Alls var 21 nemandi brautskráður. Sjö í garðyrkjuframleiðslunámi Sjö luku bóklegum hluta í garðyrkjuframleiðslu en námið er þannig upp sett að nemandi klárar tvö ár bókleg á Reykjum í Ölfusi og tekur svo verklegt nám innan greinarinnar. Fjórtán í skrúðgarðyrkju Níu nemendur luku bóklegu námi í skrúðgarðyrkju og fimm útskrifuðust sem skrúðgarð- yrkjufræðingar en það nám er löggild iðngrein. Í garðyrkjuframleiðslu hlutu þrír nemendur viðurkenningu. Þröstur Þórsson hlaut viður- kenningu fyrir hæstu einkunn á garð- og skógarplöntulínu með 9,61. Íris Grétarsdóttir hlaut viður- kenningu fyrir hæstu einkunn af línu lífrænnar ræktunar matjurta með einkunnina 9,59. Í ylræktun var Ingvari Þorsteinssyni færð viðurkenning fyrir bestan árangur með einkunn- ina 9,20. Jóhann Böðvar Skúlason fékk viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn útskrifaðra nema úr bóklegu og verklegu námi á skrúðgarðyrkjubraut en meðal- einkunn hans var 8,6. Helle Laks fékk viðurkenningu fyrir hæstu einkunn úr bóklegu skrúðgarðyrkjunámi eða 9,75. Hún var einnig dúx skólans að þessu sinni. Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, og Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endur- menntunardeildar og staðar- haldari á Reykjum, fluttu ávörp og óskuðu nemendum til ham- ingju með daginn. Við athöfnina söng Einar Clausen tvö lög við undirleik Jóns Kristófers Arnarsonar. Tuttugu og einn útskrifaðist af garðyrkjubrautum LbhÍ – Helle Laks dúxaði í bóklegu skrúðgarðyrkjunámi með 9,75, Jóhann Böðvar Skúlason með hæstu meðaleinkunn úr bóklegu og verklegu FRÉTTIR Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2018: Rebekka Rún Helgadóttir dúxaði á búfræðiprófi Brautskráning nemenda á búfræði- braut og á háskóla brautum Land- búnaðar háskóla Íslands fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi 1. júní. Alls útskrifuðust 28 nemendur af búfræðibraut. Rebekka Rún Helgadóttir dúxaði á búfræðiprófi með einkunnina 9,13. Hún hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt sem og nautgriparækt. Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, flutti ræðu og óskaði nemendum velfarnaðar í framtíðinni. Jóhannes Torfason, bóndi á Torfalæk II, tæki- færisræðumaður Öndvegisdeildar - 50 ára búfræðikandídata, hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema 1968. Elvar Friðriksson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í bútæknigreinum og góðan árangur í hagfræðigreinum. Hann fékk einnig verðlaun fyrir frábæran árangur fyrir lokaverkefni á búfræðiprófi. Jóhannes Geir Gunnarsson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í námsdvöl. Tólf með BS-próf í búvísindum Þá var einnig útskrifað á háskóla- brautum. 12 nemendur útskrifuðust með BS-próf í búvísindum. Verðlaun fyrir góðan árangur á B.S.-prófi í búvísindum hlaut Bjarni Sævarsson með einkunnina 9,12. Fjórir með BS-próf í náttúru- og umhverfisfræði Fjórir nemendur luku BS-prófi í náttúru- og umhverfisfræði. Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran námsárangur á BS-prófi á brautinni með einkunnina 9,23. Fjórir nemendur luku BS-prófi í skógfræði og landgræðslu Fjórir nemendur luku BS-prófi í skógfræði og landgræðslu. Jakob Wayne Robertson hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á landgræðslu- línu og Sigríður Hrefna Pálsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS-prófi á skógfræðilínu. Sigríður hlaut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í námskeiðinu plöntunotk- un. Sjö nemendur með BS-próf í umhverfisskipulagi Þá útskrifuðust sjö nemendur með BS-próf í umhverfisskipulagi. Esther Thaagaard Andreasen hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á BS-prófi á brautinni sem og fyrir góðan árangur í skipulagsfögum. Julia Carolina Bos hlaut verðlaun fyrir frábæran árangur fyrir lokaver- kefni á BS-prófi með einkunnina 9,4 sem og verðlaun fyrir bestan árangur á BS-prófi við LbhÍ vorið 2018 með einkunnina 9,23. Þrír luku M.S.-prófi í rannsóknartengdu einstaklings- miðuðu meistaranámi Þrír nemendur luku M.S.-prófi í rannsóknartengdu einstaklings- miðuðu meistaranámi, Guðríður Baldvinsdóttir lauk prófi í skógfræði, Gunnar Reynisson í hestafræði og Jón Hjalti Eiríksson lauk prófi í búvísind- um og hlaut hann jafnframt verðlaun fyrir frábæran árangur á MS-prófi við LbhÍ með einkunnina 9,44. Einn með MS-próf í skipulagsfræðum Einn nemandi lauk MS-prófi í skipu- lags fræðum, Þórður Már Sigfússon, og hlaut hann viðurkenningu frá Skipulagsfræðingafélagi Íslands. 24 útskrifuðust úr Reiðmanninum Á degi íslenska hestsins 1. maí sl. útskrifuðust 24 nemendur af námskeiðaröðinni Reiðmaðurinn í endurmenntunardeild LbhÍ. Tónlistaratriði við brautskrán- inguna voru í höndum þeirra Evu Margrétar Jónudóttur og Ágústar Gests Guðbjargarsonar útskriftarnema 2018. Um undirleik sáu þau Anna Sólrún Kolbeinsdóttir og Jón S. Snorri Bergsson. Útskriftarnemar 2018 úr Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Mynd / Auður Ósk Sigurþórsdóttir. Útskriftarnemar af garðyrkjubrautum við Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Hveragerði ásamt kennurum. Mynd / Auður Ósk Sigurþórsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.