Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Gísli Þórðarson og Áslaug
Guðbrandsdóttir búa á
bænum Mýrdal 2 í fyrrum
Kolbeinsstaðahreppi og reka þar
650 kinda fjárbú.
Býli: Mýrdalur 2.
Staðsett í sveit:
Kolbeinsstaðahreppi sem er nú
sameinaður Borgarbyggð.
Ábúendur:
Gísli Þórðarson og Áslaug
Guðbrandsdóttir en föðurfjölskylda
Gísla hefur búið hér frá 1912.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum fjögur börn og fjögur
barnabörn.
Stærð jarðar? 2.139 hektarar.
Gerð bús? Sauðfjárbúskapur.
Fjöldi búfjár og tegundir?
650 kindur, 8 hross, 4 smalatíkur,
einn músaveiðari, 3 hænur og 2
hanar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fer eftir árstíð, á veturna er fyrri
gjöf gefin fyrir hádegi og seinni
gjöf eftir síðdegiskaffi. Annars
enginn dagur eins og hver þeirra
sérstakur.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegast að taka féð inn á
haustin og líka að sjá það fara á
fjall á vorin. Leiðinlegast að koma
þrjósku lambi á spena.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Svipaðan og vonandi komið betra
veður. :-)
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda?
Erum glöð ef einhver vill standa í
þeim vanþakklátu störfum.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Vel, því hann er bestur.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Að selja á dýrari markaði sem
lúxusvöru.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk frá Hrauntúni, ostur, smjör
og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Léttreyktur ærhryggur og
lambakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Þegar Gísli læsti sig fyrir
utan bílinn og lét koma með
aukalykla, en svo uppgötvaðist
að hliðarglugginn var opinn.
Einnig þegar hann var að keyra
hjólbörur fullar af hrossaskít upp
í taðdreifara eftir mjóum planka
sem var smá sleipur, skrikaði
fótur og lenti með andlitið á kafi
í börurnar.
Mýrdalur 2
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Kjúklingaleggir og -vængir með HM
Kjúkling má elda á marga vegu
og eru vængir og leggir vinsælir
yfir sjónvarpinu þegar mikilvægir
íþróttaleikir eru sýndir. Nú þegar
Heimsmeistaramótið í fótbolta er
á næsta leiti er ekki seinna vænna
að finna bestu uppskriftina. Gott
er að reka endahnútinn á góða
kjúklingamáltíð með hollu nammi
með fullt af stökkum hnetum í.
Gott er að hluta vængina niður
með því að klippa á milli liðamóta og
dýfa efri hlutanum í eina gerð af sósu
og neðri hlutanum í kryddblöndu
eða annars konar sósu. Svo er gott
að framreiða með fersku íslensku
hráu grænmeti.
Buffaló-sósa:
› 1 msk. ósaltað smjör, brætt
› 1/4 tsk. cayenne pipar
› 1/4 tsk. ferskt malaður svartur pipar
› 1/4 tsk. salt
› 1/4 bolli heit chili sósa
(má blanda saman tómatsósu og
chilisósu)
Aðferð
Blandið fyrstu fjórum innihalds-
efnunum í miðlungsskál; látið standa
í fimm mínútur. Hrærið í chili-sósu
saman við eftir smekk.
Athugið að hægt er að gera þetta viku
fram í tímann. Geymt í kæli.
Engifer-soja gljái:
› 1/4 bolli hunang
› Tvær msk. sojasósa
› 3 stór hvítlauksrif, marin eða söxuð
fínt
› Tvisar sinnum eins sentimetra stykki
af engifer, skrælt og sneitt niður
Aðferð
Öllum hráefnum blandað saman
ásamt 1/4 bolla af vatni, látið sjóða
í litlum potti. Hrærið til að leysa
hunangið upp. Lækkið hitann
alveg niður á minnsta straum, látið
malla og hrærið öðru hvoru þar til
vökvinn hefur minnkað í 1/4 bolla í
um 7–8 mínútur. Setjið í skál. Látið
sitja í 15 mínútur svo þetta þykkni
aðeins.
Athugið að þetta er hægt að gera
fimm daga fram í tímann. Setjið
plastfilmu yfir svo ekki myndist skán.
Vængir:
› 1 pakki kjúklingavængir, endinn
fjarlægður („kjuðaðir“) og efri vængir
teknir í sundur og kryddaðir úr hvorri
kryddblöndunni
› 2 msk. jurtaolía
› 1 msk. salt
› 1/2 tsk. ferskur malaður svartur pipar
Aðferð
Hitið ofninn að 200 gráðum. Setjið
grind með bökunarpappír inn í ofn
og bakka undir fyrir umfram safa.
Setjið hvorn kryddlög hvorn í sína
skálina. Dreifðu vængjunum á
bökunarplötuna svo þeir festist ekki
saman og bakist rétt og jafnt.
Bakið vængina þar til þeir eru full
eldaðir og stökkir – gæti tekið 45–50
mínútur. En það þarf að snúa þeim og
hugsa vel um að gljáinn brenni ekki.
Gott er að pensla með engifersósunni
eða olíu og baka aðrar 8–10 mínútur.
Penslið helminginn aftur með
buffalósósu. Berið fram strax (engin
þörf á að baka aftur).
Hægeldaðir kjúklingaleggir með
sætchili- og hnetusósu:
Sæt chili- og engifersósa á einstaklega
vel með með kjúklingi og auðvelt er
að gera góðan asískan kjúklingarétt
með slíkri sósu á stuttum tíma.
› 2/3 bolli af sætri sojasósu
› 2/3 bolli Thai sætri chilisósu
› 2 tsk. fiskisósa eða ostrusósa
› Smá af ferskri engiferrót, skræld og
hökkuð
› 2 pakkar kjúklingaleggir
› Ferskur saxaður kóríander, til að
skreyta með (valfrjálst)
› Saxaðar hnetur, til að skreyta með
(valfrjálst)
Aðferð
Í stórt ílát er sett sojasósa, sæt
chilisósa, fiskisósa og engifer.
Setjið kjúklinginn ofan í og blandið
saman. Setjið það í kæli og látið
kjúklinginn liggja í kryddinu í um
þrjár klukkustundir eða yfir nótt.
Þegar tilbúið er að elda, látið þá í
ofn í um 150–170 gráður og látið
bakast í gegn um klukkustund.
Penslið með ögn meiri sósu úr
dallinum og stráið söxuðum
hnetum, kasjú- eða salthnetum.
Setjið grillið í gang í um þrjár
mínútur á hvorri hlið og snúið
einu sinni og penslið yfir með meiri
sósu. Takið úr ofninum og skreytið
með kóríander og meiri söxuðum
hnetum, ef þess er óskað.
Gott að bera fram með þunnsneiddu
grænmeti og radísum.
Poppkorn með súkkulaði,
kókosolíu og hnetum:
Það getur stundum verið erfitt að lifa
heilbrigðum lífsstíl en hægt að velja
aðeins hollara millimál en bland í
poka. Eftirfarandi poppuppskrift er
auðveld og góð.
› 100 g lífrænn poppmaís
› 3 msk. lífræn kókosolía
› 1 stk. ósykrað súkkulaði eða annað
gott súkkulaði
› 3 msk. ljóst agave sýróp eða ögn
hrásykur
› 1 msk. hnetu Nutella
› 2 msk. ósykraður rifinn kókos eða
blandaðar hnetur (valfrjálst)
Aðferð
Hitið ofninn í 150 gráður
Poppaðu poppmaís í örbylgjuofni eða
í potti með loki (ef settur er hrásykur
rétt áður en maísinn er settur í pottinn
þarf að hafa hröð handtök í að sturta
innihaldinu á bökunarplötu áður en
karamellan brennur).
Setjið kókosolíu, súkkulaði, agave
og vanillu á steikarpönnu og setjið í
ofninn meðan það er forhitað.
Takið pönnu úr ofni þegar allt er brætt
og hrærið innihaldsefnin saman til að
blandan verði jöfn.
Bætið poppkorni og hnetum við
súkkulaðiblönduna og hrærið saman
við þar til allt er hjúpað.
Bakið í þrjár til sex mínútur, hrærið í
þessu á tveggja mínútna fresti.
Kælið. Setjið poppkornið í loftþétt
ílát og hrærið rifnum kókos saman
við ef þess er óskað. Njótið!
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Barnabörnin kyrr, öll á sama stað aldrei þessu vant.
Safnið komið heim á smaladegi.