Bændablaðið - 07.06.2018, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Eflaust hafa margir lent með
hugann fastan við laglínu sem er
hreinlega föst í huganum í heilan
dag eða meira.
Í síðustu viku ók ég hring um
landið og í stað þess að keyra
hefðbundinn hring sem oftast er
nefndur Þjóðvegur 1 tók ég nokkra
auka kílómetra um sveitir, annes
og fáfarna firði og úr varð 2.200
km rúntur á sjö dögum. Stuttu áður
en ég lagði upp í þetta ferðalag sá
ég myndband með Halla Reynis
og Vigdísi þar sem þau sungu lag
eftir Halla sem ber nafnið „Fjúkandi
rúlluplast“. Daglega alla ferðina
kom þessi laglína upp í hugann
þegar ég ók um sveitir landsins og
sá heyrúllur í stafla.
Mikill munur á ásýnd sveita nú
og fyrir örfáum árum
Á hverju ári í nokkur ár hef ég ekið
einn eða fleiri hringi í kringum
landið ósköp svipaða leið, en samt
alltaf farið á staði hluta leiðar þar
sem ég hef ekki komið áður. Þó svo
að í huga mínum hafi síðastliðna
viku alltaf verið þessi laglína um
fjúkandi rúlluplast, er ekki þar með
sagt að sú hafi verið sýnin sem við
mér blasti.
Vissulega sá ég fast í girðingum
flaksandi rúlluplast sem betur
hefði verið í Endurvinnslunni, en
að ferðast nú um landið og fyrir
nokkrum árum er stór munur. Ekki
er hægt annað en að hæla bændum
almennt fyrir mikla snyrtimennsku,
séða frá þjóðvegum. Hins vegar þar
sem ég sá rúlluplast fast í girðingum
var þetta oftar en ekki á nokkrum
bæjum í röð, en á öðrum stöðum
ók maður í gegnum heilu sveitirnar
og sá þá hvergi í neinni girðingu
rúlluplast í girðingum.
Víða verið að taka til í
járnaruslahaugum og annars
staðar var ruslinu stillt upp sem
skrauti
Einnig hefur járnaruslahaugum
sjáanlegum ferðamönnum fækkað
en á nokkrum stöðum mátti sjá slíka
hauga sem greinilega voru að bíða
örlaga sinna, tilbúnir að vera settir
í næsta járnagám til endurvinnslu.
Ryðguð vinnutæki frá fyrri part
síðustu aldar hafa alltaf verið
eitthvað sem heillar mig og að sjá
svoleiðis tækjasafn snyrtilega raðað
og aðgengilegt til að skoða hefur
ósjaldan verið tilefni hjá mér til
að stoppa og virða fyrir mér þessi
fyrrum þörfu tæki, sem þóttu svo
ómissandi fyrir um 60–100 árum.
Víða má sjá svona tæki í fjarlægð
við vegi landsins og ýmislegt annað
þar saman við. Með smá vinnu má
oft gera það sem virðist rusl og
drasl að lystigarði fyrir þá sem hafa
gaman af gömlu „ryðguðu dóti“ og
vilja njóta þess.
Listaverk og blómapottar
Allavega þegar mér var hugsað til
síðustu 10 ára er landið alltaf að
verða fegurra og skemmtilegra
til ásýndar þegar ferðast er. Vil
ég almennt þakka bændum fyrir
dugnað við að fegra sitt nánasta
umhverfi og skreytingar með
gömlum munum og tækjum síðustu
árin.
Að lokum verð ég að nefna eitt
sem vakti athygli mína og ánægju.
Það er að í ferðaþjónustunni að
Langaholti hefur verið safnað
saman ýmsum gömlum munum
og gróðursett nytjajurtir í eitt horn
við húsið þar sem gestir gjarnan
njóta kvöldsólar, Whisky og vindla.
Í þessum pottum fann Tjaldur sér
hreiðurstæði og nýtur skjólsins
þarna í horninu liggjandi á eggjum
sínum. Hann gerir sér þó annaðhvort
upp mannamun, eða er vandfýsinn
á tegund vindla, því að á suma lítur
hann varla og liggur sem fastast á
eggjunum, en á aðra gellur hann á
með skerandi hávaða.
Íslenskir bændur – takk fyrir snyrtilegar sveitir
– Mikið hefur breyst á nokkrum árum svo textinn í lagi Halla Reynis, „Fjúkandi rúlluplast”, á vart lengur við
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær
480-0000 - sala@aflvelar.is - www.aflvelar.is
Cleanfix HS770 sópurinn hentar
bæði inni og úti.
Fyrir bílaplön, bílageymslur,
íþróttasvæði, o.fl.
Vinnslubreidd 77 cm
Stillanlegur hliðarbursti
32L tankur
Handknúinn sópur
VÍRUS NABBI MÁL HVIÐA SJOKK MANNA KK NAFN
FUGL
VAGN
HÆRRA
VEIÐI
SKJÖGUR
BYLTA
AFGANGUR
GETRAUN
ÓSKERT
SVELG
TVEIR EINS
MJÖG
BIRTA
TÆKIFÆRI
ASI
TVEIR
EINSSKREIÐAST
RÍKI Í
SV-ASÍU
SJÁ EFTIR
VERRI
STEINLÍM
ELDHÚS-
ÁHALD
FJALLSNÖF
STÆKKA HÖFÐIBANA
SNÖKT
VINNA
BAKTAL
FUGL
SÍLL
HÓFDÝR
VESÆLL
BLÍSTRU
KEYRSLA
TVEIR
EINS
FRAM-
KVÆMA
NÆÐA
VILJA
ÁVÍTUR
INNVOLSMAKA
SUNDFÆRI
HÝRA
ÓHREININDI
KLAKA
SPENDÝR
GLUFA
URG
SPRIKL
HOLU-
FISKUR
ANGAN
SORGBITIN
SJÚK-
DÓMUR
RÓMVERSK
TALAFRJÁLSA
SKORDÝR
DÍNAMÓR
NOKKRIRPLANTA
ÁRANS
85
VARNA TRJÁ-TEGUNDAR HVIÐA
DÝRA-
HLJÓÐ ÓSKORÐAÐ BOGI SKÝLA
KSVISS V E I K J U L Á S
RFLYTJA E I Ð A SVALLSPIL R A L L
ARÓL R K S K R U M Æ
J A F T A KVABBORG S U Ð
F FLÓN Í RÖÐ
MANNS-
NAFN
FÁLM K A R L
SKJÁLFA
SKÓLI N Ö T R A
SPRIKLBARN
KBLAÐRA
RAUP
HRAÐAÐ
J A R P I BEIN
MARGS-
KONAR
ÓLGU Ý M I S UTANMÁL KROT TVEIR EINSRAUÐ-BRÚNI
A U S A
FESTA
RÆTUR
SKYLDLEIKI R Æ T A
URGUR
SOÐNINGUR K U R RSKVETTA Á
L L DANSTALA T V I S T
EINHVERJIR
LÉLEGT
MÓLAG S U M I RTVEIR EINS
L I T VAFIAFHENDING E F I LÖGUNARRÁÐGERA F O R M S PILLAFARFA
A
OF LÍTIÐ
STAÐ-
SETTNING V A N NÁKOMIÐ N Á I Ð
HYLLI
SPYRJA Á S T
G L E F S FUGLSPENDÝR G Æ S GANGÞÓFI I L SKURÐ-BRÚN ABIT
R E I S L A SKAÐIRÁS T J Ó N VAFIÆST E FVOG
Ö
S
G
A
R
TEYMA
A
L
HUGSA
E
P
I
Æ
Ð
L
A
A
URGA
KLÓ
S
N
A
Ö
R
G
G
L
A
STORKA
ÁTT
84
Járnaruslahaugum sjáanlegum ferðamönnum hefur fækkað en á nokkrum
stöðum mátti sjá slíka hauga sem greinilega voru að bíða örlaga sinna, til-
búnir að vera settir í næsta járnagám til endurvinnslu. Með smá breytingum
væri hægt að gera þetta bara huggulegt minjasafn.
Í gamalli þvottavélartrommlu á Langaholti á Tjaldur sér hreiðurstað.
Tjaldsegg í þvottavélatrömlu.