Bændablaðið - 27.06.2019, Page 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 9
Afríska svínapestin hefur höggvið
gríðarlegt skarð í svínarækt
í Kína. Hefur svínastofninn í
landinu minnkað um rúmlega
20%, eða um 100 milljón dýr á
einu ári, að því er fram kemur
í Economist. Faraldurinn er
líka farinn að hafa alvarleg
áhrif á stöðu UBS-bankans í
Sviss í samskiptum við Kínverja
vegna mistúlkunar á orðalagi í
tölvupóstum starfsmanns.
Vandræði þessi stafa af því
að menn hafa haft áhyggjur af
verðbólguáhrifum svínapestarinnar
á heimsvísu, sem hefur ýtt undir
hækkun á neysluverðsverði. Því
skiptir miklu máli hvernig menn
koma þeim áhyggjum á framfæri
í tölvupóstum, sér í lagi þegar
rætt er um kínverska markaðinn
eins og Paul Donovan, sem er
aðalhagfræðingur UBS-bankans
í auðlindastjórnunarmálum, hefur
fengið að finna fyrir.
Í tölvupóstum frá Donovan til
fjárfesta talaði hann um kínversk
svín (Chinese pig) í stað þess að
segja svín í Kína. Þetta orðasamband
þykir hins vegar afar móðgandi í
Kína og hljómar jafnvel eins og
örgustu kynþáttafordómar.
Fóru tölvupóstar Donovan á flug
meðal fjárfesta og sérfræðinga og
kölluðu fram mikla reiði. Baðst
Donovan skriflega afsökunar
á að UBS hafi ekki eytt þeim
tölvupóstum, en sú afsökunarbeiðni
breytti litlu.
Kínverska verðbréfafyrirtækið í
Hong Kong fór fram á að Donovan
yrði rekinn. Verðbréfamiðlunin
Haitong International Securities
sagðist myndu slíta viðskiptum
við UBS-bankann. Kínverska
járnbrautafélagið China Railway
Construction Corp ákvað
síðan að afturkalla tilnefningu
um að fyrirtækið starfaði
sem samræmingaraðili fyrir
skuldabréfaútgáfu UBS-bankann.
Vegna vaxandi þrýstings ákvað
stjórn USB-bankans að senda
Donovan í leyfi.
Misskilningur, mistúlkun
eða samsæri?
Sumir áheyrnarfulltrúar hafa
greint þessi viðbrögð sem merki
um vaxandi andúð í Kína gagnvart
erlendum viðskiptum og að það
geti aukið enn þann klofning sem
verið hefur í viðskiptum Kína
og Bandaríkjanna. Aðrir tala
hreinlega um samsæri gegn USB-
bankanum. Er bent á að UBS
hefur verið eitt vinsælasta erlenda
fjármálafyrirtækið í Kína og hafi
verið ætlað að gegna stóru hlutverki
eftir að hafa hlotið samþykki til
að leiða fjármálaöryggisverkefni
kínverskra stjórnvalda. Kínverskir
keppinautar gætu því alveg sætt sig
við að ná skerf að þeirri köku ef
UBS verður fyrir áföllum.
Dýrkeypt tungumálakennsla
Reiðin í garð USB-bankans er
allavega mikil. Það að kalla einhvern
svín í Kína er mjög móðgandi.
Í því samhengi er samt ljóst að
Donovan meinti raunveruleg svín
en ekki fólk í sínum tölvupóstum.
Orðasambandið kínversk svín hafi
hins vegar annan skilning meðal
Kínverja auk þess sem ýtt hafi verið
undir þetta á samfélagsmiðlum.
Hefði hann talað um „svín í Kína“
í stað „kínversk svín“ hefði þetta
kannski sloppið. Eða eins og
fréttastofa Bloomberg, orðaði
það, þá var niðurstaðan „dýrkeypt
tungumálakennsla“.
Þykir faglegur og ljúfur drengur
Fyrir þá sem þekkja Mr Donovan,
þykir óréttlætið vera augljóst.
Hann er sagður mjög faglegur
í vinnubrögðum, vinsæll hjá
samstarfsfólki og sérfræðingur í
verðbólgumálum. Þá skrifaði hann
m.a. bók um þau málefni árið 2015.
Ef UBS ákveður að reka hann er
talað um að bankinn geri úlfalda
úr mýflugu, eða öllu heldur eins
og breska máltækið segir; „it will
have made a pig’s ear of the whole
thing.“ /HKr.
Kínverjar æfir út í svissneskan banka:
Misskilið orðalag í tölvupóstum um svínapest í Kína
hefur alvarleg áhrif á stöðu UBS-bankans í Sviss
Hey!
Næringarríkara hey í
vetur með íblöndunar-
efni og rúlluplasti
frá Líflandi
Advance Grass íblöndunarefni er blanda bakteríustofna og
ensíma sem hefur jákvæð áhrif á gerjun, dregur úr hitamyndun,
þurrefnistapi og eykur meltanleika gróffóðurs. Gerðu gott
fóður betra með Advance Grass!
Öll íblöndunarefni með 10% afslætti
TOPSIL íblöndunarefnin hafa farið sigurför á dönskum
markaði og gefið góða raun við að ná fram bættum
verkunargæðum með minni tilkostnaði en áður.
TOPSIL max er íblöndunarefni í grasslægju, smáratöðu
og ertur til að draga úr verkunartapi. TOPSIL max lækkar
sýrustig með skjótum og áhrifaríkum hætti og stöðvar
niðurbrot próteina og kolvetna.
TOPSIL stabil notist í kornheilsæði, repjuheilsæði,
grasslægju og smáratöðu. TOPSIL stabil dregur úr fjölda ger-
og myglusveppa sem minnkar líkur á hitamyndun og myglu í
stæðu- og rúlluverkuðu fóðri með háu þurrefnishlutfalli.
Megastretch rúlluplastið hefur skapað sér góðan orðstír
fyrir að vera gott í vinnslu, hafa góða límeiginleika og fyrir
að tryggja góða varðveislu fóðurs við íslenskar aðstæður.
Megastretch plastið er unnið úr DOWLEX PE plastfilmu sem
er þekkt fyrir styrk, ógegndræpni og þanþol. Megastretch
plastið er ekki forstrekkt.
*Tilboðsverð m.v. greiðslu fyrir 15. júlí.
Sé óskað eftir greiðslum í haust leggjast 150 kr við hverja rúllu af plasti.
Tilboðið miðast við kaup á 10 plastrúllum eða fleiri.
Flutningur innifalinn ef teknar eru 20 plastrúllur eða fleiri.
Öll verð eru í krónum án vsk.
Megastretch 75 cm x 1500 m, 5 laga, 25 míkron
VHPLAST75GR GRÆNT Verð áður 10.150 - nú 9.850
VHPLAST75HV HVÍTT Verð áður 10.250 - nú 9.950
VHPLAST75SV SVART Verð áður 9.850 - nú 9.550
Megastretch Extreme 75 cm x 1800 m, 7 laga, 22 míkron
VH5AM75G22PE GRÆNT (20 stk) Verð áður 224.500 - nú 218.000
VH5AM75W22PE HVÍTT (20 stk) UPPSELT
VH5AM75Z22PE SVART (20 stk) Verð áður 220.000 - nú 214.000
Rúlluplast 50 cm x 1800 m
VHPLAST50GR Megastretch GRÆNT Verð áður 8.550 - nú 7.990
VHUNTERLAND50 Unterland X-Plus HVÍTT 7.450 - takmarkað magn, rýmingarsala
Rúllunet
VHTC130CMX3000M Total Cover 1,30m x 3000 m Verð áður 20.800 - nú 18.900
VHTOTALCOVER3600 Total Cover 1,23m x 3600 m Verð áður 23.700 - nú 21.600
Möttulfilma – plast í stað nets
VH5VM1282200 17 míkron 1,28 x 2200 m Verð áður 25.600 - nú 24.600
VH5VM1402000 17 míkron 1,4 x 2000 m Verð áður 26.300 - nú 25.300
Stæðuplast
10% afsláttur af öllu stæðuplasti og tengdum vörum. Verðdæmi:
Megacombi 2in1 stæðuplast 16 x 50 m Verð áður 64.500 - nú 58.050
TopSeal undirplast 16 x 50 m Verð áður 12.900 - nú 11.610
MegaplastPower yfirbreiðsluplast 14 x 50 m Verð áður 36.550 - nú 32.895
Meganyl varnarnet 12 x 15 m Verð áður 33.950 - nú 30.555
Sandpokar 20 x 120 cm Verð áður 165 - nú 149
Bænda
11. júlí