Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201914
Veiðin á Þingvöllum hefur verið
góð, fyrst urriðinn til að byrja
með og svo bleikjan, en fátt
er skemmtilegra en að veiða á
Þingvöllum í frábæru veðri og
fá vænar bleikjur til að taka
fluguna. Já, það er ævintýri.
„Já, þetta var góður morgunn
í Skeiðavíkinni á Þingvöllum.
Arnarfell blasir við til vinstri
í bakgrunni, þá Skjaldbreið í
fjarska,“ sagði Valsarinn Óttar
Felix Hauksson í samtali og hélt
áfram. Svo koma Hrafnabjörg
og Kálfatindar og loks Miðfellið
fremst til hægri.
Það verður nóg að gera í
silungabolluframleiðslu eftir þessa
flottu veiði. Ég steiki þær og frysti
síðan í skömmtum, 6–8 bollur
saman,“ sagði Óttar enn fremur,
hress með veiðina á Þingvöllum.
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
• Allar almennar vélaviðgerðir
• Almenn renni- og fræsivinna
• Rennum og slípum sveifarása
• Málmsprautum slitfleti, t.d.
á tjakkstöngum
• Gerum við loftkælingu bíla
• Almenn suðuvinna
• Plönum hedd
• Tjakkaviðgerðir
alhliða
vélaverkstæði
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Bræðurnir Davíð Már, Helgi Þór og Einar Geir við Pollinn á Akureyri. Mynd / María Gunnarsdóttir
Bryggjuveiði færist í aukana
Veiðin á bryggjum og við
strendur landsins hefur færst
verulega í aukana hin seinni
árin. Strandveiði hefur aukist og
veiðimenn á öllum aldri renna
fyrir fiska.
Við vorum við Pollinn á
Akureyri fyrir skömmu og þar var
líf og fjör, veiðimenn að fá flotta
fiska, mest ufsa, sæmilega stóran
og eina og eina bleikju.
„Makríllinn er ekki mættur
ennþá en hann kemur,“ sagði
veiðimaður sem hafði veitt einn
flottan ufsa og bætti við öðrum
skömmu seinna. Já, það var fjör
við Pollinn á Akureyri.
„Ég hef ekkert orðið var ennþá
en ætla að reyna betur,“ sagði Davíð
Már Andrésson, sem var við veiðar
á bryggjunni með bræðrum sínum,
Helga og Einari Geir.
„Það er gaman að veiða,“ sagði
Davíð sem ekki hafði áður veitt
fisk enda ekki reynt áður. „Ég ætla
að reyna áfram,“ sagði Davíð og
kastaði aftur en fiskurinn var ekki í
tökustuði. Það kemur fyrir hjá bestu
veiðimönnum landsins. En hann
bítur á að lokum.
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Karl Óskarsson með 78 sentímetra lax úr Urriðafossi í Þjórsá. Mynd / Kristinn
Gengið vel í Þjórsánni
Já, veiðin gekk vel hjá okkur
en við fengum 10 laxa á einum
degi, flotta fiska,“ sagði Karl
Óskarsson, sem var í Þjórsá fyrir
skömmu. Veiðin þar hefur gengið
vel og margir fengið vel í soðið.
„Þetta var flott veiði og laxinn
var vænn og vel haldinn,“ sagði Karl
enn fremur.
„Veiðin hefur gengið vel
hjá okkur og veiðst vel,“ sagði
Harpa Hlín Þórðardóttir um
veiðina á svæðinu.
Margir veiðimenn hafa náð
kvótanum á svæðinu enda nóg
vatn og fiskur að ganga á hverju
flóði. Þetta er einmitt það sem
veiðimenn vilja.
Auðvitað vantar miklar rigningar
Staðan er alls ekki góð þessa
dagana við veiðiárnar. Það þarf
miklar rigningar og það strax.
Vatnið er orðið lítið í Norðurá,
Þverá, Laxá í Leirársveit og
Laxá í Kjós svo veiðimenn verða
að fara varlega við veiðina.
Þeir nota litlar flugur og skríða
með árbökkunum þessa dagana.
Það er það eina sem menn telja að
dugi. Það dugir þó alls ekki alltaf.
Veiðin hefur gengið ágætlega
á Seleyri við Borgarnes og
veiðimenn hafa verið að fá vel í
soðið. Mest er þetta flottur silungur
sem veiðimenn hafa verið að fá
þar.
Frábær silungsveiði hefur
verið í Fögruhlíðarósi fyrir
austan og veiðimaðurinn Súddi
leiðsögumaður fékk við annan
mann 60 flottar bleikjur. Veiðimenn
fóru á eftir og fengu líka góða veiði.
Mjög fallegt er við við ósinn.
Vatnsmagnið fer minnkandi í veiði
ánum þessa dagana.
Mynd / María Gunnarsdóttir
Árlegur veiðitúr
Silungsveiðin hefur gengið
frábærlega víða um land og
veiðimenn verið að fá flotta fiska.
Silungurinn kemur greinilega vel
undan vetri þetta árið. Þetta á við
veiðivötn og ár víða um landið.
Fjóla Dís Færseth Guðjónsdóttir
var í sínum fyrsta veiðitúr með afa
og ömmu í Mývatnssveitinni í landi
Haganess og fékk maríufiskinn, 2
punda í Urðarfossi í sól og blíðu.
Ekki slæmt að byrja veiðiferilinn
svona, svo vildi hún sleppa sínum
fyrsta fiski, en afi hennar og amma,
Óskar Færseth og amman Ásdís
Guðbrandsdóttir, ekki.
„Þetta er árlegur veiðitúr hjá
okkur og gaman að fá barnabörnin
með að veiða,“ sagði veiðimaðurinn
snjalli, Óskar Færseth úr Keflavík.
Já, silungsveiðin hefur víða verið
góð, Elliðavatn, Þingvallavatn,
Meðalfellsvatn, Hlíðarvatn,
Hreðavatn, Laxárvatn og Ölvesvatn,
svo fáein séu tínd til. Þetta er
greinilega silungssumarið.
Fjóla Dís með maríufiskinn og hún
bætti við fleirum. Mynd / Óskar
Fjör á bleikjuslóðum á Þingvöllum
Óttar Felix Hauksson með flotta
bleikjuveiði á Þingvöllum.
Kalt en fiskar á land
„Við skruppum í Ölvesvatn á
Skagaheiði í landi Hvalness fyrir
skömmu,“ sagði Pétur Pétursson
í samtali við Bændablaðið.
„Þar voru dregnir 5 urriðar á land
á ca 3 tímum. Það var ansi kalt og
vindur hjá okkur við vatnið. Renndi
einnig upp að Selvatni og við urðum
ekki vör þar.
Þó er það ekki alveg marktækt,
þar sem var þó nokkuð hvasst og
skítkalt.
Það er frekar leiðinlegur slóði upp
að Selvatni, eins og margir slóðar á
Skagaheiði eru, en fínasti vegur upp
að Ölvesvatni.
Þar er flott fjölskyldusvæði til að
veiða og gott aðgengi,“ sagði Pétur
sem á örugglega eftir að fara á þessar
slóðir seinna í sumar.
Flottur urriði kominn á land í Ölves
vatni. Mynd / Pétur