Bændablaðið - 27.06.2019, Side 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201928
Fyrstu trén komin í fyrirhugaðan hundrað og fimmtíu trjáa aldingarð á Sólheimum:
Ræktuð verða lífrænt vottuð epli í úrvalsflokki
– Reiknað með að uppskeran verði tvö til þrjú tonn árlega af ávöxtum og verður hluti af aukinni matjurtaræktun á staðnum
Skógræktarstöðin Ölur á Sól
heimum fékk nýverið milljón
króna styrk úr atvinnuvega
og nýsköpunarráðuneytinu til
eplatrjáaræktar á Sólheimum.
Guðmundur Steinsson, deildar
stjóri Ölurs, segir að hugmyndin
sé að rækta nálægt 150 epla og
ávaxtatré í tæplega 700 fermetra
gróðurhúsi sem stendur milli
Ölurs og garðyrkjustöðvarinnar
Sunnu.
„Ég sé fyrir mér að verkefnið
nái til tveggja til þriggja ára og
það er meiningin að þá verði búið
að fylla þetta hús af ávaxtatrjám –
aðallega eplum, en líka perum og
plómum. Það væri jafnvel gaman
að prófa eitthvað alveg nýtt eins og
appelsínutré,“ segir Guðmundur,
sem tók við starfi deildarstjóra
Ölurs í febrúar. Hann bætir við
að áður hafi húsið verið notað
fyrir uppeldi trjáplantna en þjóni
nú ýmiss konar tilraunastarfsemi
í matjurtaræktun. Þar eru einnig
ræktaðar jurtir sem síðan eru
notaðar við sápugerð og húðvörur
sem framleiddar eru á Sólheimum.
Markmiðið að rækta ávexti
í úrvalsflokki
„Markmiðið er í raun tvíþætt hjá
okkur; í fyrsta lagi felst í þessu
verkefni eitthvað sem hefur aldrei
verið gert hér á Íslandi – og örugglega
þótt víðar væri leitað – að gera
aldingarð í svona stóru gróðurhúsi
og síðan en ekki síst að framleiða
ávexti í algjörum úrvalsflokki sem
væru lífrænt vottaðir.
Ég ímynda mér að við gætum
fengið út úr þessu húsi um tvö til þrjú
tonn árlega, sem væri auðvitað ekki
nærri nóg til að metta neinn markað
en þetta gæti verið gott innlegg og
fín fyrirmynd fyrir aðra og hvatning
til að gera svipaða hluti. Ávextirnir
yrðu þá bara seldir í áskrift héðan.
Vextinum stýrt
Að sögn Guðmundar er ekki þörf
á svo miklu rými fyrir plönturnar
og tveggja metra lofthæð er alveg
næg. „Þetta verður stýrð ræktun,
plönturnar mótaðar og klipptar
eins og þörf er á. Svo snýst þetta
um að stilla af áburðargjöf, vökvun
og stýra hitastigi eins og hægt er.
Gróðurhúsið er hægt að hita þegar
þess þarf og einnig að skrúfa fyrir
hita og opna glugga, hliðar og gafla
þegar heitt er í veðri og sól skín.
Það er örlítil óvissa með þau tímabil
ef ekki verður nógu kalt á vetrum
til að plönturnar fá sína vetrarhvíld.
Á móti kemur að við losnum
örugglega við þær umhleypingar
sem geta leikið ávaxtatré mjög
grátt.
Ég hef Jón Guðmundsson á
Akranesi mér til halds og trausts –
til að velja yrki og veita ráðgjöf, en
hann er auðvitað mjög vel kunnur
fyrir þekkingu sína á eplarækt og
öðrum ávaxtatrjám. Fyrstu trén
eru komin og ég vonast til að geta
fengið Jón hingað til mín til að fara
yfir málin.“
Matjurtaræktun verður aukin
Starfsemin hjá Ölri hefur verið í lægð
á síðustu árum, en landið er að rísa
og sér Guðmundur fram á betri tíð.
„Við gerðum nýlega samning við
Skógræktina til tveggja ára um að
framleiða 50 þúsund aspir á ári
hér í landi Sólheima. Svo reikna
ég með frekara samstarfi við
garðyrkjustöðina Sunnu, um aukna
breidd í matjurtaræktuninni, þannig
að hér verði almennilegir ætigarðar.
Við erum þegar byrjuð á
þessari útvíkkun hér hjá Ölri;
til dæmis í ræktun jarðarberja
og á kuldaþolnum sjaldgæfum
tómatayrkjum í köldum
gróðurhúsum hér hjá okkur.
Einnig ætlum við að vera með
ýmsar rófutegundir, kál og salat í
útiræktun svo ég nefni dæmi.“ /smh
Hugmyndir Guðmundar Steinssonar fela í sér að á næstu tveimur til þremur árum fyllist þetta gróðurhús af ávaxtatrjám. Myndir / smh
Guðmundur kíkir á fyrstu fullþroskuðu plómurnar. Vexti og hæð eplatrjánna verður stýrt, en það á ekki að draga úr framleiðslunni.
Græna kannan á Sólheimum:
Er nú vandaður veitingastaður fyrir íbúa og gesti
Fyrir um ári síðan fluttist
mötuneytið fyrir íbúa Sólheima
í endurbætt húsnæði Grænu
könnunnar, um leið og viðbygging
við gamla húsið var formlega
opnuð. Í eldri hluta hússins er
Græna kannan enn starfrækt en
hefur aukið umfang starfseminnar
og er nú einnig vandaður
heimilismatur í hádeginu fyrir
gesti og gangandi, auk þess sem
þar er áfram rekið kaffihús.
Í nýbyggingunni er verslunin
Vala, rúmgóður sýningarsalur
með listagalleríi ásamt setustofu.
Matreiðslumaðurinn Leifur Sveinn
Ársælsson kom á Sólheima í maí
í fyrra og flutti mötuneytið niður
í húsnæði Grænu könnunnar og
unir hag sínum vel á nýja staðnum.
„Ég var einn og hálfan mánuð
í Vigdísarhúsi með eldhúsið þar
áður en við fluttum. Aðalástæða
flutninganna var sú að brekkan hérna
upp frá byggðinni að Vigdísarhúsi er
nokkuð brött og getur verið erfið fyrir
fótgangandi á veturna. Hér er auðvelt
aðgengi og komast allir vel fyrir og
það er opið frá tólf til sex. Við erum
með hádegismat hér virka daga og
yfir daginn seljum við kaffi, beyglur,
kökur og sykurlausan ís.
Yfir daginn erum við líka með
lífræna tómatsúpu ásamt nýbökuðu
brauði, sem hefur fallið vel í kramið
hjá ferðafólki. Allt grænmeti sem er
notað í Grænu könnunni er lífrænt
ræktað og kemur úr garðyrkjustöðinni
okkar, Sunnu,“ segir Leifur.
Fyrsta flokks hráefni
Að sögn Leifs er töluverð aukning
í aðsókn í hádegismatinn og á
kaffihúsið á Sólheimum, þar sé að
skila sér mikill metnaður í eldhúsinu
og unnið sé með fyrsta flokks hráefni
frá Sólheimum. „Ég held að það sé
ekkert á margra vitorði að það sé
hér opið fyrir hádegismat alla virka
daga, þar sem mikill metnaður er og
gæði. Við höfum heldur ekki verið
að auglýsa þetta neitt, þannig að
afspurn skilar sér í aukningu. Við
erum hins vegar með allt til alls hér
á svæðinu sem ætti að geta höfðað
til fólks að koma hingað til að njóta
matar og umhverfis. Við erum til
dæmis með gistiheimili hér og 200
manna veislusal.
Við njótum þess að vera með
þetta hreina og góða hráefni sem er
framleitt hér á staðnum og það verður
að segjast eins og er að það er draumur
hvers kokks að vinna með slík gæði.
Við erum með þennan hefðbundna
heimilismat sem við reynum þó að
lyfta upp á næsta stig. Við erum alltaf
með tvo rétti í boði í hverju hádegi,
annaðhvort fisk eða kjötrétt, og svo
alltaf grænmetisrétt og salatbar.
Það má segja til marks um
þann metnað sem er á Grænu
könnunni að þegar blaðamaður
var þar staddur í hádeginu á
dögunum hitti hann þar fyrir Dóru
Svavarsdóttur matreiðslumeistara
sem stóð yfir pottunum. Hún er
kunn sem eigandi Culina – sem
rak veisluþjónustu og stendur fyrir
matreiðslunámskeiðahaldi – auk þess
sem hún hefur verið virk í starfi Slow
Food Reykjavík. Hún ætlar að elda
á Grænu könnunni í sumar við hlið
Leifs og koma matvinnslunni aftur
af stað og búa til chutney, sultur og
gómsætar kökur sem hægt verður að
kaupa í versluninni Völu. /smh
Leifur Sveinn á Grænu könnunni með páfagaukinn Emmu á öxlinni.