Bændablaðið - 27.06.2019, Page 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 29
Rúlluplast - Rúllunet - Stæðuplast
Eykur fóðurgæði - Betri inntaka - Meiri meltanleiki
Heilbrigðari kýr - Betri afkoma
Meiri upplýsingar á www.josilac.com
Stæðuplast/
Undirplast
10*50 - 12*50
14*50 - 16*50
18*50 - 20*50
Stæðuplastið er svart/hvítt 150 mµ
Undirplastið er transparent 40 mµ
PolyStretch
Litur: Grænt
Styrkur 25 mµ
UV stability: 12 mán.
Stærð: 0,75*1.500m
Verð án vsk: Kr. 10.900,-
Polywrap rúllunet
1,23*3000
Rúllutape
Rúllubindigarn/
Stórbaggagarn
Lavanda
Litur: Fjólublátt
Styrkur 25 mµ
UV stability: 12 mán.
Stærð: 0,75*1.500m
Verð án vsk: Kr. 10.900,-
íblöndunarefniJOSILAC
Ég finn mikinn mun á
lystugleika á þeim
rúllum sem hafa
Josilac Classic.
Reynir Sverrir Sverrisson
Bringu
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vinnufatnaður frá
Sunna framleiðir um 27 tonn af grænmeti á ári:
Selst alltaf allt
– utan þess hlutar sem fer í þeirra eigin matseld
Margir þeir sem kunna að meta
góða tómata þekkja afurðirnar
frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á
Sólheimum. Um 27 tonn grænmetis
er framleitt þar á hverju ári og fer
framleiðslan á almennan markað
en er líka afar mikilvægt hráefni
inn í rekstur eldhúss Grænu
könnunnar á Sólheimum sem
þjónar bæði sem mötuneyti fyrir
þorpsbúana og er fyrsta flokks
veitingastaður fyrir gesti. Þá
leggur Sunna einnig til hráefni
fyrir matvælaframleiðsluna sem
er starfrækt í gegnum Grænu
könnuna og er afraksturinn seldur
á staðnum.
„Það skiptir miklu máli að hafa
sólina fyrir stöð eins og okkar
sem ekki er með lýsingu nema
fyrir uppeldisplönturnar,“ segir
Jón Þröstur Ólafsson, deildarstjóri
Sunnu, um hvaða áhrif það hafi
fyrir þeirra framleiðslu að hafa svo
sólríkt vor og sumar. „Við þurfum
þá bara að vökva aðeins meira og
það er allt í lagi. Eina vandamálið er
hvað það er erfitt að vinna í þessum
hita, en þetta er gott fyrir tómatana
og framleiðsluna. Það þroskast allt
miklu hraðar núna miðað við í fyrra.“
Ræktunarferillinn frá
janúar og út október
Við erum með lífrænt vottaða
ræktun hér og plönturnar standa
í jarðveginum sjálfum en ekki í
pottum. Það er ekki leyft að gefa
þeim tilbúinn áburð þannig að
okkar næringargjöf samanstendur af
fiskimjöli, þörungamjöli og fljótandi
sykurreyr líka.
Það má segja að ræktunartímabilið
hefjist um miðjan janúar, en þá
byrjun við að sá og þrífum húsin.
Setjum hrossaskít og þörungamjöl í
ræktunarsvæðin og tætum það saman
við jarðveginn. Einum og hálfum
mánuði síðar er hægt að planta út í
húsin þar sem plöntunum er ætlað að
standa. Þetta er gert þannig í nokkrum
hollum og uppeldisplöntunum er
þannig raðað í vaxtarhúsin koll af
kolli. Við fáum uppskeru frá maí og
út október að meðaltali.
Við höfum verið með mest
af tómötum; kirsuberjatómata,
konfekttómata, bufftómata og
hefðbundna tómata. Af öðru grænmeti
má nefna nokkur kúrbítsyrki, papriku,
eggaldin og gúrku – og ég hef leikið
mér talsvert með afbrigði af þessum
tegundum, til dæmis í litum og lögun.
Í söluöskjunum frá Sólheimum,
sem er að finna í verslunum, er
ýmsum tómatayrkjum gjarnan
blandað saman. „Já, við erum frekar
nýlega farin að gera þetta. Ég sá þetta
á ferðum mínum um Holland og
fannst upplagt að prófa þetta hérna.
Það hentar betur til dæmis fyrir
smærri fjölskyldur og einstaklinga,
sem þurfa ekki mikið magn af hverri
sort,“ segir Jón Þröstur, en mest af
vörunum fer í Bónusverslanir á
Selfossi og í Hveragerði. Öllu er
pakkað beint frá Sólheimum, að
hluta til í nýlegri pökkunarvél
sem sérmerkir vörurnar Sunnu.
Grænmeti frá Sunnu fæst líka í
versluninni Völu, sem nú er undir
sama þaki og Græna kannan.
Selst alltaf allt frá okkur
Jón Þröstur kom til starfa hjá Sunnu
fyrir rúmum tveimur árum og hann
finnur meðbyr með lífrænt vottuðum
afurðum þó að ekki fjölgi í stétt slíkra
ræktenda. „Já, ég finn að það er sífellt
meira sótt í þessar vörur og þær fá
góðan hljómgrunn. Það selst alltaf allt
frá okkur. Ég veit svo sem ekki hvað
veldur því að svo fáir fara út í að ná
sér í vottun, en það er alltaf ákveðin
áskorun að fara úr í slíka ræktun og
hún gerir mönnum ekkert endilega
auðveldara fyrir.
Ég þekki það sjálfur, þar sem ég
hafði ekki stundað lífræna ræktun
áður og ekki ræktað matjurtir. Ég
hafði komið nálægt flestum öðrum
sviðum garðyrkju áður en ég tók við
Sunnu; skrúðgarðyrkju, afskornum
blómum, pottablómum. Ég get samt
sagt að þegar ég var orðinn öruggur
í ræktuninni þá var þetta bara ekkert
síðra en annað – og er í raun mjög
gefandi og skemmtilegt að rækta svo
vandaðar matjurtir eins og við gerum
hér.“ /smh
Jón Þröstur með nokkra formfagra og litskrúðuga kúrbíta. Mynd / smh
Nýleg pökkunarvél merkir vörurnar Sunnu á hagkvæman hátt.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300