Bændablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201930
UTAN ÚR HEIMI
CASE Tetra – fyrsta metanknúna
hjólaskóflan í heiminum
CASE Tetra hjólaskófla er með 6 strokka NEF gasmótor [náttúrugas – NG] frá FPT industrial. Myndir / CASE
Fyrsta metanknúna þunga
vinnuvél í heimi var kynnt á
Bauma 2019 vinnuvélasýningunni
í München í Þýskalandi í apríl.
Þetta er CASE Tetra hjólaskófla
sem er með 6 strokka NEF
gasmótor [náttúrugas – NG] frá
FPT industrial. Skilar hann 230
hestöflum og togi upp á 1.184
Newtonmetra [Nm]. Það er sami
togkraftur og er í CASE 821G
hjólaskóflunni.
Þessi frumgerð er fyrsta gasknúna
vélin frá vinnuvélaframleiðandanum
CACE. Mótorinn er að grunni til
dísilmótor en í gasútfærslunni
er hann mun hljóðlátari og með
mýkri gang. Þá er hann sagður
eyða um 30% minna eldsneyti en
sambærilegur dísilknúinn mótor.
Mun minni loftmengun
Mótorinn gengur á þjöppuðu
gasi [Compressed Natural Gas -
CNG] sem skilar 15% minna af
koltvísýringi út í andrúmsloftið en
dísilmótor og 99% minni sótögnum.
Mótorinn er með fjölinnsprautun
og sérhönnuðum stimplum til
að tryggja rétt jafnvægi gass og
loftblöndunar við allar aðstæður.
Það á jafnframt að tryggja mjög
hreinan bruna. Samkvæmt tímaritinu
OEM er gasknúna hjólaskóflan frá
CASE 10–30% ódýrari í rekstri en
hefðbundin dísilknúin vél. Þá er
háþróaður kveikibúnaður sagður
valda mun minni titringi í mótor en
áður hefur þekkst. Hávaði frá vélinni
í vinnslu er sagður 50% minni en í
hefðbundinni vél. Hann á að standast
alla nýjustu mengunarstaðla eins og
Euro VI og Stage V.
Með 40 ára reynslu í smíði
gasmótora
FPT industrial hefur yfir 40 ára
reynslu af að framleiða gasknúna
mótora í trukka og hefur framleitt
yfir 40.000 slíka mótora. Þar hafa
verið í boði mótorar á bilinu 136–
460 hestöfl. Geta mótorarnir bæði
gengið á þjöppuðu CNG gasi og
fljótandi gasi eða LNG. Þá er einnig
hægt að nota lífrænt metangas á
vélarnar [Biomethane]. Stefnt er að
því að draga enn frekar ú losun á
koltvísýringi frá mótorum FPT eða
niður undir 0.
FPT industrial hefur einnig skaffað
mótora í dráttarvélar, m.a. í frumgerð
af New Holland metanknúna
traktornum sem kynntur var 2013.
Um 95% minna af CO2
með lífgasi
Samkvæmt upplýsingum frá CASE
skilar Tetra vélin 95% minna af
koltvísýringi [CO2] en dísilknúin vél
þegar keyrt er á lífgasi [Biomethane].
Þá skilar hún um 90% minna af
niturdíoxíði og 99% minni sótögnum
en dísilknúin vél. Í heild er dregið
úr loftmengun um 80% miðað við
sambærilega vél með dísilmótor.
CASE er framleiddur af CNH
iðnaðarsamsteypunni sem framleiðir
líka New Holland. Samsteypan
framleiðir einnig IVECO trukka,
vinnubíla og rútur og eru um 28.000
slík ökutæki nú knúin metangasi.
/HKr.
Vinnuaðstaðan er ekki dónaleg.
Útlitið spillir ekki fyrir.
CASE Tetra á að vera 15–30% ódýrari í rekstri.
Caterpillar trónir á toppnum sem þekktasta og öflugasta merkið í
vinnuvélabransanum. Hér er stærsta jarðýta fyrirtækisins, CAT 11D.
Caterpillar trónir á toppnum sem öflugasta merkið:
Um 230 milljarða dollara
vinnuvélamarkaður
Búist er við að markaður fyrir
stórar vinnuvélar í heiminum
verði kominn í 230,9 milljarða
dollara á árinu 2020 og hafi þá
vaxið úr 181,6 milljörðum dollara
árið 2016. Það gerir um 6,2%
árlegan vöxt á þessum fjórum
árum.
Er þetta að stærstum hluta drifið
áfram af mikilli uppbyggingu íbúðar-
og iðnaðarhúsnæðis, einkum í Asíu,
þ.e. Kína, Indlandi og í Malasíu.
Kínverjar hafa um árabil
verið öflugastir í framleiðslu
þungavinnuvéla hvað fjölda véla
áhrærir. Er því spáð að Kínverjar
verði með um 40% hlutdeild á
vélasölumarkaðnum fram til 2021.
Hafa verður í huga að Kínverjar
eru að framleiða margvíslegar
vinnuvélar í tengslum við þekkta
framleiðendur og í mörgum
tilfellum með íhlutum og búnaði
sem framleiddur er með leyfi frá
vestrænum fyrirtækjum. Einnig er
búist við umtalsverðri söluaukningu
véla frá Evrópu og Bandaríkjunum,
eða um 3–4% fram til 2020,
samkvæmt vefsíðu BizVibe.
Caterpillar á toppnum
Ef skoðuð er staða tíu stærstu og
söluhæstu framleiðenda stórra
vinnuvéla í heiminum þá trónir
Caterpillar í Bandaríkjunum á
toppnum með 45,5 milljarða dollara
veltu 2017 og sölu upp á 26,6
milljarða. Hélt Caterpillar stöðunni
á heimsmarkaði 2018 sem öflugasta
merkið í bransanum.
Komatsu og Hitachi
í öðru og þriðja sæti
Komatsu í Japan var í öðru sæti
með 19,2 milljarða dollara sölu og
Hitachi í Japan var í þriðja sæti með
8,3 milljarða dollara sölu.
Í fjórða sæti kom Volvo í Svíþjóð
með sölu upp á 7,8 milljarða dollara.
Libherr í Sviss var í fimmta sæti með
7,4 milljarða dollara sölu.
Kínverskir framleiðendur
í 6. 8. og 10. sæti
XCMG í Kína var í sjötta sæti
og seldi fyrir 7 milljarða dollara.
Doosan Infracore í Suður-Kóreu
var í sjöunda sæti með 6,2 milljarða
dollara sölu. Sany í Kína var í áttunda
sæti með 5,9 milljarða dollara sölu.
John Deere í Bandaríkjunum var
í níunda sæti með 5,7 milljarða
dollara sölu og Zoomlion í Kína
var í tíunda sæti með sölu upp á 3,6
milljarða dollara. /HKr.
Vaxandi markaður fyrir landbúnaðartæki:
Spáð um 9% aukningu í tækjasölu
á heimsmarkaði til 2025
Búist er við að heimsmarkaður
fyrir landbúnaðartæki muni vaxa
um 8,9% fram til ársins 2025 og
velti þá um 244,2 milljörðum
dollara.
Samkvæmt rannsókn Grand
View Research, Inc. (GVR) eru
ástæður þessa sagðar aukinn
þrýstingur á landbúnaðinn um að
auka matvælaframleiðslu vegna
fólksfjölgunar í heiminum.
Í þróaðri hluta heims hafa
bændur í auknum mæli verið að
innleiða nýja tækni eins og dróna,
rakaskynjara og GPS stýrðar vélar
til að ná fram meiri nákvæmni
í framleiðslustýringu og auka
uppskeru. Dráttarvélaframleiðslan
stendur á bak við um fjórðung
veltunnar í dag og búist er við að
svo muni verða áfram. Samt er búist
við að mikil aukning verði í sölu
uppskeruvéla af ýmsu tagi og muni
vaxa um10% frá 2019 til 2025.
Þá gera framleiðendur líka ráð
fyrir stóraukinni sölu á tækjabúnaði
í ríkjum eins og Indlandi, Kína og
Brasilíu vegna aukinna umsvifa
í landbúnaði. Búist er við að
markaður fyrir landbúnaðartæki í
Asíu vaxi um 9% fram til 2025.
Tækjaframleiðendur sjá þó ekki
tóma hamingju framundan, því
samfara aukinni eftirspurn er víða
verið að glíma við efnahagsvanda
og erfiðleika við að fjármagna dýr
landbúnaðartæki.
Fáir stórir framleiðendur
eru leiðandi á heimsmarkaði
samkvæmt úttekt GVR. Þar
eru nöfn eins og John Deere,
ACCO samsteypan, Mahindra &
Mahindra, CNH Industrial N.V.,
Iseki & Co og Kubota. Mörg
þessara fyrirtækja séu að fjárfesta
grimmt í tækniþekkingu í því
augnamiði að styrkja stöðu sína á
markaði. /HKr.
Í þróaðri ríkjum mun verða aukin notkun á nýrri tækni og fjarstýrðum
landbúnaðartækjum til að ná fram aukinni uppskeru af hverjum hektara.