Bændablaðið - 27.06.2019, Side 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201940
Dalíur hafa verið vinsælar
garðplöntur í Evrópu allt frá
því þær bárust þangað fyrst
frá Ameríku árið 1789. Áður
höfðu Aztekar ræktað þær sem
nytjaplöntur en rótarhnýðin
voru nýtt til matar.
Einhverra hluta vegna
náði þessi fæðuflokkur ekki
vinsældum hérna megin
Atlantsála en vinsældir dalíanna
sem skrautplantna áttu eftir að ná
miklum hæðum.
Íslendingar tóku dalíum opnum
örmum eins og aðrar þjóðir og
vöktu þær svo mikla hrifningu
að sérstakur dalíuklúbbur var
stofnaður innan Garðyrkjufélags
Íslands um ræktun plantnanna. Sá
klúbbur er enn starfandi og þykir
mikill heiður að fá inngöngu
í hann, þótt tengsl hans við
Garðyrkjufélagið séu kannski
óljósari en áður.
Fjölgað með fræi
eða hnýðum
Íslenskt heiti dalí
anna er glitfífill en
einhverra hluta vegna
hefur það heiti ekki
náð miklu flugi, í
daglegu tali er alltaf
talað um dalíur. Þær
dalíur sem mest eru
ræktaðar hérlendis
eru flokkaðar í tvo
hópa, sáðdalíur sem
eru frekar lágvaxnar
og ræktaðar upp af fræi og svo
hnýðisdalíur sem eru ræktaðar
upp af hnýðum og geta orðið mjög
stórar og myndarlegar. Dalíur
tilheyra körfublómaættinni.
Endalaus litadýrð
Sáðdalíur eru, eins og áður sagði
ræktaðar upp af fræi og er sáð til
þeirra á vorin. Blómgunartími
þeirra er um 6–8 vikur yfir sumarið
og eru blómin ákaflega fjölbreytt
að stærð og lit. Blóm dalíanna geta
verið frá því að vera einföld (með
einfalda röð af tungukrónum í
jaðri blóms) yfir í að vera þéttfyllt.
Blómlitir dalíanna eru hvítir, gulir,
appelsínugulir, rauðir og bleikir
en þær eiga það sameiginlegt með
rósum að þær eru aldrei bláar.
Hæð sáðdalía er um 30–50 cm,
þær mynda fallegan blaðbrúsk
og standa skrautleg blómin
svo upp úr honum á grönnum
blómstönglum.
Hnýðisdalíur eru ræktaðar upp
af hnýðum sem fást í öllum betri
blómaverslunum á vorin. Einnig
bjóða margar garðyrkjustöðvar
upp á forræktaðar plöntur í pottum
og eru þær þá yfirleitt tilbúnar til
að fara út í garð. Hnýðisdalíur eru
aftur flokkaðar í fjölmarga hópa
eftir stærð og lögun blómanna.
Sumar þeirra eru með svo stór
blóm að þau eru á stærð við
barnshöfuð. Til eru hnýðisdalíur
með kúlulaga blóm, sumar eru
með örmjó krónublöð en yfirleitt
eru þær allar með fallega fyllt
blóm. Blómlitir hnýðisdalía eru
eins og annarra dalía, nær allir litir
nema blár og oft eru þær tvílitar.
Birtan skiptir máli
Allar dalíur eiga það sameiginlegt
að vilja sólríkan, hlýjan og
skjólgóðan vaxtarstað. Blóm
plantnanna eru svo stór og á það
grönnum stilkum að hætt er við að
þau brotni af í hvassviðri. Dalíur
kjósa rakaheldinn og frjósaman
jarðveg og mikilvægt er að muna
eftir að gefa þeim áburð ef þær
standa í pottum eða kerum.
Einnig er skynsamlegt að styðja
við blómstöngla hnýðisdalía
með bambuspriki, til að draga
úr hættunni á skakkaföllum og
stöngulbroti.
Sagt hefur verið að blóm dalía
nálgist það að vera fullkomin,
frá sjónarhorni fegurðar og
blómlögunar, að öllu leyti nema
því að blómin ilma ekki. Það gæti
valdið vonbrigðum hjá sumum en
gleði hjá öðrum því ekki eru allir
hrifnir af mikið ilmandi plöntum.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur hjá LbhÍ
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Dásamlegar dalíur –
glæsilegir glitfíflar
Blómgunartími dalía er 6–8 vikur og eru blómin ákaflega fjölbreytt að
stærð og lit.
Allar dalíur vilja sólríkan, hlýjan
og skjólgóðan vaxtarstað.
Dahlia x cultorum. Fyllt með
bleikum kanti.
Sagt hefur verið að blóm dalía nálgist það að
vera fullkomin, frá sjónarhorni fegurðarinnar.
UMHVERFI&NAFNGIFTIR
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum:
Leiðbeiningar handa sveitarfélögum
um samsetningu og notkun örnefna
Sífellt er þörf fyrir ný örnefni
á Íslandi. Reglulega verða
landsumbrot sem breyta landslagi
þannig að kallar á ný örnefni.
Nýleg dæmi eru Holuhraun og
berghlaupið í Hítardal ásamt
stöðuvatninu sem það myndaði:
Skriðan og Bakkavatn.
Stöðugt verða hægfara breytingar
á landslagi, til dæmis hefur hop
skriðjökla á undanförnum árum
leitt til myndunar nýrra lóna sem
hefur þurft að nefna. Þetta eru
nöfn á náttúrufyrirbærum, en
uppbygging mannvirkja í bæjum
og sveitum kallar líka á ný nöfn á
til dæmis götum og torgum, býlum
og landeignum, og þetta eru líka
örnefni. Þessi síðastnefndu örnefni
eru notuð til að skrá svonefnd
staðföng, en það er hugtak sem nær
yfir það sem í daglegu tali er kallað
heimilisföng, en hefur einnig víðari
skírskotun. Nánari upplýsingar
um hugtakið staðfang má finna í
Handbók um skráningu staðfanga
sem Þjóðskrá Íslands hefur gefið út.
Lög um örnefni
Í fréttatilkynningu frá Stofnun Árna
Magnússonar segir að ný lög um
örnefni hafi tekið gildi snemma
árs 2015 og er í þeim meðal annars
kveðið á um að ný örnefni skuli vera
í samræmi við staðhætti og íslenska
örnefnahefð og einnig í samræmi
við íslenska málfræði og málvenju.
Lögin kveða einnig á um
veigamikið hlutverk sveitarfélaga
bæði við að búa til og skrá ný örnefni.
Að sumu leyti er hlutverk þeirra
stærra en var fyrir setningu nýju
laganna. Sem dæmi eru umsóknir
um ný og breytt nöfn á býlum ekki
lengur afgreiddar af Örnefnanefnd
heldur af viðkomandi sveitarfélagi.
Áður lagði Örnefnanefnd mat á það
meðal annars hvort tillögur að nýjum
bæjanöfnum samrýmdust íslenskri
örnefnahefð og samþykkti þær eða
hafnaði þeim eftir atvikum. Lögin
kveða eftir sem áður á um að ný
nöfn skuli samrýmast íslenskum
nafngiftahefðum (og uppfylla
önnur skilyrði laga), en nú eiga
sveitarfélögin að ganga úr skugga
um að svo sé áður en ný örnefni eru
skráð.
Skráning örnefna
Við skráningu nýrra örnefna þarf
þess vegna að huga að mörgu og
mikilvægt er að sveitarfélög hafi sem
greiðastan aðgang að leiðbeiningum
um örnefnamál. Liður í því eru
nýjar leiðbeiningar: Örnefni —
Leiðbeiningar handa sveitarfélögum
um nafngiftir býla, gatna,
sveitarfélaga og náttúrufyrirbæra
sem Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum, Landmælingar
Íslands og Örnefnanefnd hafa nú
gefið út.
Í leiðbeiningunum er meðal
annars gerð grein fyrir því helsta sem
hafa þarf í huga til þess að ný örnefni
samræmist markmiðum örnefnalaga
um viðhald og varðveislu örnefna
og örnefnahefða. Þar er einnig farið
yfir reglur sem gilda um samráð við
Örnefnanefnd í ákveðnum tegundum
mála og minnt á öryggissjónarmið
sem taka þarf tillit til við skráningu
staðfanga, svo eitthvað sé nefnt.
Ráðgjöf við val á nýjum
örnefnum
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega
ætlaðar fulltrúum sveitarfélaga sem
sjá um skráningu staðfanga á vegum
þeirra, en einnig þeim sem gera
tillögur að nýjum örnefnum: nöfnum
á býlum, götum, sveitarfélögum
og náttúrufyrirbærum. Þær eru
þáttur í því að aðstoða sveitarfélög
við að viðhafa góða starfshætti í
örnefnamálum.
Í bæklingnum er einnig sagt frá
því að hægt er að sækja ráðgjöf
um skráningu staðfanga og um
örnefnamál almennt til Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum (SÁM). Hún hefur það
hlutverk að veita almenningi og
stofnunum ráðgjöf um örnefni,
til dæmis um nýjar nafngiftir og
skráningu örnefna. Samkvæmt
lögum eru staðföng, til dæmis
bæjanöfn og götunöfn skilgreind
sem tegund örnefna og þau falla
því undir ákvæði laga um örnefni.
Ráðgjafarhlutverki SÁM
á sviði örnefnamála er sinnt á
nafnfræðisviði stofnunarinnar sem
er arftaki Örnefnastofnunar Íslands.
Fulltrúar sveitarfélaga sem starfa við
að skrá staðföng geta haft samband
við starfsmenn sviðsins þegar vafi
leikur á því að nafn, sem nota á við
skráningu staðfangs, samræmist
góðum háttum í örnefnamálum.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu
sviðsins: https://www.arnastofnun.
is/is/nafnfraedi
Leiðbeiningarnar hafa þegar
verið sendar til allra 72 sveitarfélaga
á landinu. Þær er einnig hægt
að nálgast á rafrænu formi á
heimasíðu Örnefnanefndar: www.
örnefnanefnd.is. /VH
Þórisstaðir í Svínadal. Myndir / Guðni Hannesson
Akratorg á Akranesi.
Skaftafell.