Bændablaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 2019 43
0,5% chlorhexidine, 0,29% joð
og 0,8% mjólkursýru höfðu mest
áhrif á Streptococcus bakteríur.
Vísindafólkið sem að rannsókninni
stóð mæltu með því að til að ná
bestum jafnaðarárangri þá ættu
bændur að nota dýfur sem innihalda
chlorhexidine.
Of margir fara ekki eftir
ráðleggingum!
Þrátt fyrir að fyrir liggi ýmis góð ráð
til að draga úr líkum á júgurbólgu þá
eru enn of margir bændur að gera
eitthvað allt annað! Þetta kom m.a.
fram í erindi sem byggði á sænskri
rannsókn á 180 þarlendum kúabúum.
Rannsóknin beindist fyrst og
fremst að bústjórn kúabændanna
og hvernig hana mátti tengja
við júgurheilbrigði kúa á fyrsta
mjaltaskeiði. Kúabúunum var
skipt upp í þrjá mismunandi hópa
eftir því hvernig frumutala búanna
breyttist á milli þeirra mælidaga sem
rannsóknin náði til. Bændurnir voru
svo heimsóttir og spurðir spjörunum
úr varðandi það hvernig þeir stóðu
að bústjórninni og umhirðu gripa
sinna frá fæðingu að fyrsta burði.
Í ljós kom að þeir bændur sem
áttu í mestum erfiðleikum með
júgurheilbrigði þessara ungu kúa
höfðu gert margt kolrangt í uppeldi
og meðferð þeirra. Þannig gáfu t.d.
57% bændanna kvígunum mjólk frá
kúm með júgurbólgu og 67% gáfu
kvígunum mjólk frá kúm með háa
frumutölu. Þá hýstu 77% bændanna
kvígur, sem voru langt gengnar, með
geldkúnum. Margt annað kom fram
í rannsókninni sem bendir til þess
að þrátt fyrir að almenn vitneskja
sé til staðar um hvað beri að gera
til að draga úr hættu á slæmu
júgurheilbriði hjá ungum kúm,
þá meðtaki hreinlega ekki allir þá
vitneskju.
Aukin örvun eykur afköstin
Þeir sem nota mjaltaþjóna við
mjaltir þekkja það vel að kýr
selja misvel og mjaltatíminn getur
verið afar breytilegur. Starfsfólk
mjaltaþjónaframleiðandans Lely
skoðaði nýverið áhrif mismunandi
burstatíma, þ.e. örvunar á
spenaenda, á afköst mjaltaþjóna á
26 kúabúum. Niðurstaðan kemur
etv. ekki stórlega á óvart, enda
kom í ljós að með aukinni örvun
ákveðinna kúa mátti auka afköst
mjaltaþjónanna. Þetta á sér í lagi
við um kýr sem eru seinar í gang og
eru í raun tómmjólkaðar í upphafi
mjalta þar sem flæði mjólkurinnar
frá mjólkurblöðrunum fer seint af
stað. Í ljós kom í þessari rannsókn
Lely að með því að lengja
burstatíma á spenaendum kúa sem
eru lengi í gang var hægt að minnka
tómmjaltirnar í upphafi mjalta, auka
meðalflæðihraða mjólkurinnar og
um leið auka afköst mjaltaþjónsins
mælt í lítrum mjólkur á hverja
klukkustund.
Niðurstöðurnar benda skýrt
til þess, sem raunar hefur verið
ráðlagt í áraraðir, að á hverju búi
með mjaltaþjón þá eigi að skoða
mjaltaeiginleika hverrar kýr og
haga stillingum mjaltaþjónsins í
samræmi við hinar ólíku þarfir sem
kýrnar hafa.
Umhverfisvænni mjólkur
framleiðsla með betra
júgurheilbrigði
Lokaerindi ráðstefnunnar flutti
hinn reynslumikli og virti
Norðmaður og Íslandsvinur
Dr. Olav Østerås en hann hefur
starfað að júgurheilbrigðismálum
í áratugi. Hann fór nýjar og
áhugaverðar leiðir í sínu erindi en
hann velti upp samhenginu á milli
sjálfbærni-markmiða Sameinuðu
þjóðanna og júgurheilbrigði!
Etv. ekki alveg skýrt samhengi
þarna á milli við fyrstu sýn
en tilfellið er að með betra
júgurheilbrigði þá er hægt að vera
með umtalsvert umhverfisvænni
mjólkurframleiðslu í heiminum
en hún er í dag!
Í máli Dr. Olav kom fram að
mjólkurframleiðsla heimsins er í dag
mun umhverfisvænni en hún var fyrir
þó ekki nema rúmum áratug. Árið
2005 nam losun á CO2 2,8kg á hvert
framleitt kíló mjólkur en árið 2015
nam losunin ekki nema 2,5 kg af
CO2. Bæting um 11% á 10 árum en á
sama tíma hefur mjólkurframleiðsla
heimsins aukist þannig að þrátt fyrir
að minna sé losað í dag af CO2
fyrir hvert framleitt kíló mjólkur þá
hefur heildarlosun búgreinarinnar
sem slíkrar aukist á þessu tímabili.
Hann benti á að ef það tækist að
ná betri tökum á júgurbólgunni
þá hefði það margvísleg áhrif
sem ná langt út fyrir það sem
almennt er tengt við umræðu um
júgurheilbrigði. Þannig mætti, með
betra júgurheilbrigði, selja fleiri lítra
af mjólk í stað þess að henda henni
með tilheyrandi framleiðslukostnaði
og umhverfisáhrifum.
Bætt júgurheilbrigði stuðlar
einnig að aukum afurðum
kúnna, sem lækka enn frekar
umhverfisáhrif framleiðslunnar og
um leið dregur bætt júgurheilbrigði
úr líkunum á aukningu lyfjaónæmra
baktería. Allt væru þetta þættir sem
skipta ekki bara mjólkurfram-
leiðendur í heiminum máli, heldur
heimsbyggðina alla.
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4980
info@yamaha.is
www.yamaha.is
Vandaðir
utanborðs-
mótorar í
mörgum
stærðum
F2,5 - F350
ÞEGAR ÁREIÐANLEIKI OG
ÖRYGGI GERA GÆFUMUNINN!
KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ Á WWW.YAMAHA.IS
Á ráðstefnunni var haldin vegleg veggpjaldasýning þar sem kynntur var margs konar fróðleikur varðandi júgurheilbrigði.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
- Vörubílar
- Rútur
- Vinnuvélar
TIL SÖLU:
FORTRON IÐNAÐARSAUMAVÉL
til merkingar á fatnað, derhúfur
og vefnaðarvöru.
Kemur með öllum fylgihlutum
og tölvu til hönnunar. Vélin hefur
verið í þjónustu hjá Pfaff.
Verðtilboð.
Hafið samband í s. 897-7917
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is