Bændablaðið - 27.06.2019, Side 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201944
Við Sogið stendur afar fallegt
hús á fallegum stað. Hönnun
hússins og smíði, staðarval
og aðlögun að umhverfinu er
hugsað og framkvæmt með þeim
hætti að kalla má með sönnu að
húsið og lóðin sem því tilheyrir
sé þjóðargersemi. Áhugamenn
um íslenska menningu, bygging
arsögu og náttúruvernd vita að
hér er verið að tala um bæinn
Laxabakka, sumarhús og
höfundarverk Ósvaldar Knudsen
kvikmyndagerðarmanns og
málarameistara.
Þegar svona mikil verðmæti eru
í húfi mætti halda að allt meðvitað
fólk myndi leggjast á eitt að
varðveita þessa einstöku perlu. En
eins og lesendur Bændablaðsins
hafa verið upplýstir um (sbr. viðtal
við Hannes Lárusson 11. apríl sl.)
hefur Landvernd og Héraðsnefnd
Árnesinga, sem eru eigendur
aðliggjandi jarðar, stofnað til
ágreinings við núverandi og fyrri
eigendur Laxabakka og þannig
markvisst komið í veg fyrir allar
uppbyggilegar aðgerðir á svæðinu
í hátt á annan áratug.
Í viðtali við Auði Magnúsdóttur,
framkvæmdastjóra Landverndar,
sem birtist í Bændablaðinu 29.
maí sl. vantar all mikið upp á að
staðreyndum sé haldið til haga og,
að því er virðist, á nokkrum stöðum
vísvitandi gripið til ósanninda.
Staðreyndir
1. Íslenski bærinn ehf. að Austur-
Meðalholtum í Flóahreppi,
sem er hugsjónastofnun, hefur
að meginmarkmiði sýningar-
og fræðslustarf um íslenskan
torfbæjararf og vistvæna
byggingarlist auk ræktunar
heðfbundinnar verkmenningar,
er þinglýstur eigandi að
Laxabakka. Laxabakki er
með landnúmer L170095,
skráð í veðbók sem eignarlóð
10.000m2 eða 1 hektari að
stærð. Íslenski bærinn greiðir
Grímnes- og Grafningshreppi
fasteignagjöld af þessari eign,
grundvölluð á fasteignamati á
húsum og tilheyrandi lóð.
Það er því beinlínis rangt
hjá Auði Magnúsdóttur að
halda því fram að Landvernd
og Héraðsnefnd Árnesinga
séu þinglýstir eigendur að
Laxabakka.
2. Íslenski bærinn kaupir
Laxabakka, hús ásamt
tilheyrandi lóð af Lögheimtunni,
sbr. kaupsamning dags. 8. júní
2018. Íslenski bærinn hefur
aldrei gert neina sértæka
samninga um húsin að
Laxabakka sem eign aðskilda
tilheyrandi eignarlóð og því
algerlega úr lausu lofti gripið
að halda fram að eignarhald á
Laxabakkahúsunum sé aðskilið
landinu sem ávallt hefur tilheyrt
þeim.
3. Fulltrúar Íslenska bæjarins
hafa aldrei lagt fram, hvorki
skriflega eða munnlega,
hugmyndir um lagningu
nýs vegar að Laxabakka né
uppbyggingu bílastæða. Að
lóð Laxabakka liggur stuttur
vegslóði jafngamall húsunum
sem endar í litlu bílastæði
sem er vel innan upphaflegra
lóðamarka og verður hann
notaður við uppgerð hússins.
Engar hugmyndir hafa verið
uppi um að breikka þennan
gamla vegslóða, enda yrði
hann aldrei notaður nema sem
þjónustuleið fyrir eigendur og
umsjónarmenn Laxabakka.
4. Það hafa ekki verið lagðar fram
neinar fomlegar hugmyndir um
byggingu þjónustuskála á lóð
Laxabakka. Leyfi til byggingar,
á annars nauðsynlegu
þjónustuhúsi með snyrtingu
og þess háttar, myndi þegar til
kemur væntanlega heyra undir
skipulags- og byggingarfulltrúa
en hvorki Landvernd né
Héraðsnefnd Árnesinga.
Tvær umsóknir á vegum
Íslenska bæjarins varðandi
Laxabakka hafa verið lagðar
fram hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa Uppsveita.
Önnur um skipulagsmál:
„Óskað er eftir heimild
til að deiliskipuleggja lóð
Laxabakka. Í deiliskipulaginu
verða sett ákvæði sem heimila
endurbyggingu bátaskýlis og
sumarhússins með viðbótum
til að mæta nútímakröfum um
frístundahús. Jafnframt ákvæði
um aðkomu og lagnaleiðir að
lóð." Hin lýtur að skráningu
lóðarinnar: „Laxabakki -
sumarhús Ósvalds Knudsens
- byggður 1943. Óskað er
eftir staðfestingu á afmörkum
lóðarinnar. Einnig að lóðin
fái heitið Laxabakki.“ Báðum
umsóknum var vísað frá
og fengu ekki fullnægjandi
afgreiðslu, ekki síst vegna
þess að margnefndir nágrannar
Laxabakka neita að skrifa undir
lóðarblað og staðfesta þar með
nær 80 ára lóðalínur.
Þessi staða, meintur
ágreiningur um eignarhald,
hefur svo leitt til þess að
núverandi eigendur Laxabakka
fá ekki nauðsynlegan aðgang
að rafmagni og vatni, sem
gerir allar raunhæfar aðgerðir
á svæðinu mjög erfiðar. Þess má
geta að Árni Eiríksson oddviti
er fulltrúi Héraðsnefndarinnar í
hinni svokölluðu Alviðrunefnd
(sem á að hafa umsjón
með jörðunum Alviðru og
Öndverðarnes 2 fyrir hönd
Héraðsnefndarinnar og
Landverndar) á jafnframt sæti í
skipulagsnefndinni sem fjallaði
um bæði erindin.
5. Það er alrangt að forsvarsmenn
Íslenska bæjarins hafi ekki
átt frumkvæði að eðlilegum
samskiptum við fulltrúa
Landverndar og Héraðsnefndar
Árnesinga. Þvert á móti hefur
ítrekað verið reynt að koma á
fundum með þessum mótdrægu
nágrönnum Laxabakka en án
árangurs.
Örfáum dögum eftir að
Íslenski bærinn undirritaði
kaupsamning um Laxabakka,
eða þann 14. júní 2018, er
Snorra Baldurssyni, fulltrúa
Landverndar í Aviðrunefnd
og formanni nefndarinnar,
skrifað all ítarlegt bréf þar
sem greint er frá þessum
viðskiptum og hugmyndir
reifaðar um björgunaraðgerðir
og uppbyggingu Laxabakka og
tillögur lagðar fram um samstarf
um uppbyggingu á svæðinu.
Bréfinu lýkur með þessum
hætti:
„Með varðveislu Laxabakka
þarna á sínum rétta stað verður
því að sníða starfsemina að
því, að hún snúist allt í senn,
um náttúruvernd og um
náttúruna, um menningarsögu,
byggingararfleifð og íslenska
bæinn. Hús Ósvalds Knudsens
verði auk þess ævinlega helgað
menningararfi, náttúruvernd og
skapandi hugsun.
Okkar mat er að þessar
áherslur hljóti að geta að
verulegu leyti fallið saman við
áherslur Landverndar í sínu
starfi, enda blasir við að þegar
kemur að náttúrufræðum og
gestakomum þeim tengdum
er samstarfsflöturinn augljós.
Allar framkvæmdir og
uppbygging á svæðinu myndu
taka ítrasta tillit til verndargildis
staðarins og náttúru hans,
byggingarlistar og fagurfræði.
Við höfum því velt því fyrir
okkur að bjóða Landvernd
til samstarfs um málið. Að
óreyndu teljum við enn að
við séum samherjar þegar
kemur að menningarvernd
og náttúruvernd og skapandi
framþróun og sæmþættingu
þessara þátta.
Nú veltum við því fyrir
okkur hvort þú værir tilbúinn að
hitta okkur á fundi, auk mín þá
Pétur Ámannsson og Þorberg
Þórsson, um málið þar sem við
myndum reifa frekar þessar
samstarfstillögur, vænlegt
framhald og framkvæmdir?“
Þessu uppleggi var algerlaga hafnað
af Alviðrunefnd og fundur um málið
afþakkaður.
Sigríður Anna Ellerup
lögræðingur hefur skrifað
forsvarsmönnum Landverndar og
Hérðsnefnd Árnesinga mörg bréf
þar sem eðli málsins og staðreyndir
eru reifaðar og ítrekað lagt til að
aðilar máls hittist. Í bréfi 15. apríl
frá Sigríði segir: „Enn og aftur óskar
undirrituð, f.h. Íslenska bæjarins,
eftir sáttafundi þar sem aðilar reyna
að nálgast lausn á málinu af virðingu
fyrir viðfangsefninu.“ Þessar
umleitanir hafa enn sem komið er
ekki leitt til sáttafundar um þetta
furðulega og þráhyggjukennda mál.
Perlan við Sogið
Það verður að teljast óvanalegt og
að öllum líkindum ölöglegt athæfi
að nágrannar ásælist nærliggjandi
eignarlóð og haldi ítrekað fram
opinberlega að þeir beinlínis eigi
umrædda lóð, þvert á öll opinber
skjöl auk nær 80 ára hefðarréttar
lögmætra eigenda á lóðinni. Til
að bæta gráu ofan á svart eru það
fulltrúar almannasamtaka sem
ganga fram með þessum ófyrirleitna
hætti. Þetta athæfi er líka þeim
mun skrítnara þar sem umræddir
aðilar fengu í hendur samkvæmt
gjafagerningi, þar sem hvergi er
minnst á lóð Laxabakka, mörg
hundruð hektara lands á svæðinu
tilheyrandi jörðunum Öndverðarnes
2 og Alvirðu. Bæði húsakostur
og lönd Alviðru hafa sætt mikilli
vanhirðu eigenda um árabil. Í þessu
ljósi er því óskiljanlegt hvers vegna
þessi samtök sækja nú svona fast að
bæta á sig enn einum hektaranum
ásamt húsaleifum að sýsla með.
Einnig er eftirtektarvert að á þessu
svæði eru tvö önnur sumarhús á jafn
stórum lóðum og tilheyra Laxabakka
og var stofnað til með sama hætti og
á sömu árum. Á lóð annars þessara
bústaða var byggt nýtt hús með
umtalsverðum framkvæmdum árið
2004 og lagt að rafmagn og vatn
eins og eðlilegt má teljast, og að
þessum bústað liggur mörg hundruð
metra breiður akvegur sem ruddur
hefur verið í gegnum skóglendi í
landi Öndverðarness 2. Ekki er
vitað til að amast hafi verið við
þessum framkvæmdum, hvorki af
umræddum eigendum né skipulags-
og byggingarnefnd svæðisins eða
Grímsnes- og Grafningshreppi.
Þrátt fyrir þessa mótdrægu
nágranna þá skipar þetta fallega
og einstaka hús almennt þvert á
móti veglegan sess í hugum fólks
á svæðinu og reyndar flestra
landsmanna sem þekkja til hússins
og svæðisins. Það er ekki síst
vegna þessa jákvæða anda sem
Íslenski bærinn og velunnarar hans
hafa einsett sér að láta ekki undan
niðurrifsöflunum í þessu máli og
hvika ekki fá því markmiði að koma
Laxabakka og þessari litlu lóð sem
honum tilheyrir til bjargar og blása
í staðinn nýju lífi. Þegar hefur verið
hafist handa við þessar aðgerðir
þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður,
umsátur og ásælni. Fylgjast má með
framvindu þessa starfs ýmist á FB
síðu verkefnis: Laxabakki. Bauen
Wohnen Denken og á Instagram
#laxabakki.
Friðunarferli hvað varðar
Laxabakka og tilheyrandi lóð
er þegar hafið að frumkvæði
Minjastofnunar Íslands sem gæti
mögulega vegið þungt í þeirri
áralöngu viðleitni að rjúfa umsátrið
um Laxabakka; og Héraðsnefnd
Árnesinga og Landvernd gerist nú
ærlegir nágrannar og skrifi tafarlaust
undir fyrirliggjandi lóðarblað og
gefi þannig grænt ljós á eðlilega
uppbyggingu. Perlan við Sogið má
ekki glatast.
Hannes Lárusson
Á FAGLEGUM NÓTUM
LESENDABÁS
Fallegasta húsið – uppbygging og umsátur
Laxabakki. Myndin var tekin árið 1944.
Hannes Lárusson.
11. júlí