Bændablaðið - 27.06.2019, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201946
Nýjasta útspil Skoda er
smájepplingurinn KAROQ, og
kemur í stað YETI smájeppans
sem var afar sterkur og lipur
jepplingur.
Karoq er mikið öðruvísi en Yeti
og algjörlega hannaður frá grunni
með bestu fáanlegu nýjungum
sem Skoda býður upp á í
framleiðslulínunni. Fyrir skömmu
tók ég góðan prufuakstur á þessum
nýja og ódýra smá-jepplingi.
Lengi getur gott „bestnað“,
ótrúlegt hvað hraðastillirinn
virkar vel
Fyrst var ekið innanbæjar og svo
út fyrir bæinn til að prófa bílinn
á malarvegi. Á malarveginum,
sem var þurr og laus, var ég
ánægður með fjöðrunina sem tekur
dæmigerðar „pottholur“ vel, en
aðeins smásteinahljóð kom frá
framdekkjunum upp undir bílinn.
Í lok prufuakstursins ók ég
til Keflavíkur og til baka án
þess að nota hraðastillinn (cruse
control) fyrr en í bakaleiðinni við
Straumsvík. Stillti ég hann þá
viljandi á of mikinn hraða til að
skoða sjálfvirkni hraðastillisins.
Í prufuakstursbílnum er sérstakur
aukabúnaður sem er sjálfvirkur
fjarlægðarmælir tengdur við
hraðastillinn sem heldur alltaf
sama bilinu í næsta bíl fyrir
framan.
Ástæða þess að ég skoðaði þetta
var að hingað til hafa allir bílar
sem ég hef prófað týnt bílnum
sem á undan ekur í hringtorgum.
Ég hafði hins vegar lesið um að
hraðastillirinn í þessum Karoq bíl
væri betri og nákvæmari.
Orðrómurinn sem ég hafði
heyrt var réttur, þessi bíll týndi
ekki bílnum fyrir framan þrátt fyrir
hringtorgið við N1 Lækjargötu í
Hafnarfirði. Alltaf sama vegalengd
á milli bílanna og á næstu ljósum
stoppaði bíllinn sjálfkrafa og fór af
stað án þess að ég gerði nokkurn
skapaðan hlut. Persónulega myndi
ég ekki treysta þessu 100%, því öll
mannanna verk geta bilað.
Akstur og eyðsla lofar góðu
Bíllinn sem ég prófaði var
bensínbíll með 1,5 TSI vél sem
skilar 150 hestöflum. Uppgefin
eyðsla í blönduðum akstri er 5,4
lítrar á hundraðið.
Að loknum um 150 km
akstri var mín eyðsla 7,5 lítrar á
hundraðið sem er nokkuð gott að
mínu mati þar sem ég tók vel á
bílnum og reyndi ekkert að keyra
sparakstur. Þrátt fyrir að vera
ekkert að reyna að keyra sparakstur
kom það mér á óvart hversu lágar
eyðslutölur ég sá við aksturinn og
miðað við það tel ég að auðvelt sé
að ná eyðslunni verulega niður sé
keyrt á ráðlögðum hraða.
Eins og alla aðra bíla sem ég
prófa hávaðamæli ég bílana á 90
km hraða (alltaf eins og á sama
stað). Skoda Karoq mældist
mjög nálægt 70 db. sem er gott
miðað við stærð bílsins. Oftast
mælist hljóð aðeins hærra í litlum
bílum en þeim stærri. Í öllum
prufuakstrinum var ég hvergi
var við aðstæður þar sem ég var
ósáttur við bílinn. Ekkert út á að
setja við aksturinn, útsýni gott og
ökumannssætið þægilegt.
Margt gott í bílnum, en fáir
mínusar
Fyrst ber að nefna verðið, en Skoda
Karoq er á tilboði núna á verði frá
4.990.000 (sá ódýrasti prófaður, en
í boði eru 5 mismunandi Karoq).
Bíllinn sem prófaður var er
með aukalega fjarlægðartengdan
hraðastilli sem kostar aukalega
55.000 (mæli eindregið með
honum). Hann var með dráttarkrók
sem kostar aukalega 160.000, en
bíllinn má draga kerru eða vagn
með bremsubúnaði sem er allt að
2000 kg.
Mikið af aukabúnaði er hægt
að fá í Karoq sem að mínu mati er
nauðsynlegur, s.s. hituð framrúða,
hita í stýri, bílastæðaaðstoð og
margt fleira.
Í bílnum er varadekk sem ég kýs
að kalla „aumingja“ sem ekki má
keyra á langt og hratt. Það minnir
einna helst á skellinöðrudekk á felgu.
Einnig er í bílnum millistykki fyrir
mismunandi kerrurafmagnstengi,
varúðarþríhyrningur, tjakkur og
verkfæri til að skipta um dekk, en
gula vestið vantar. Fínn fjölnota bíll
með gott rými bæði fyrir farþega og
farangur.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
kominn í stað Skoda Yeti
Skoda Karoq 4X4 Ambition. Myndir / HLJ
Glettilega hátt undir lægsta punkt í Karoq. Góð bakkmyndavél og skynjararnir nema vel til hliðanna.
Hér er allt til að redda sér ef springur dekk, en það vantar gula vestið.Hljóðlátur að innan miðað við stærð.
Helstu mál og upplýsingar
Þyngd 1.872 - 1.886 kg
Hæð 1.840 mm
Breidd 1.850 mm
Lengd 5.330mm
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
A f l v é l a r e h f . e r n ý r i n n f l u t n i n g s o g
s ö l u a ð i l i K O N I á Í s l a n d i