Bændablaðið - 27.06.2019, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Jón Atli Jónsson og Bryndís Karen
Pálsdóttir tóku við búskapnum í
Gröf í Skaftártungu vorið 2018
af foreldrum Jóns Atla; Ólöfu
Rögnu og Jóni Geir.
Býli: Gröf.
Staðsett í sveit: Í Skaftártungu.
Ábúendur: Jón Atli Jónsson og
Bryndís Karen Pálsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Eigum Melkorku Sif, 8 mánaða.
Svo eru 2 aðrir ættliðir í sama húsi,
foreldrar Jóns Atla, bróðir og amma
og afi.
Stærð jarðar? 49 ha ræktaðir en
jörðin er 643 ha að heildarstærð.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
420 fjár og smalahundarnir Röskva
og Títla.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Allir dagar hefjast á kaffibolla,
annars eru þeir mjög óhefðbundnir
í búskap.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Allt skemmtilegt
nema að gefa heimagöngunum.
Sauðburður og göngur/réttir toppa
allt!
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Vonum að við verðum starfandi
og á góðu róli.
Hvaða skoðun hafið þið á félags
málum bænda? Við erum þakklát
fyrir fólkið sem sinnir þeim störfum
og viljum samheldni.
Hvernig mun íslenskum land
búnaði vegna í framtíðinni?
Vonandi mun honum ganga vel og
að það verði meira jákvætt tal heldur
en neikvætt.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Það er bara spurning hvenær með
lambakjötið ... það er svo gott.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Túristasinnep, rjómi fyrir ísvélina
og smjörvi, svona 13 dósir.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Léttreyktur lambahryggur
er veislukostur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar við þurftum að
bruna beint heim af fæðingardeildinni
til að finna fyrstu lömbin á sláturbíl
það haustið.
Eldun á fiski og íslensk jarðarber
Það er lykilatriði að elda fisk ekki
of mikið. Þurr fiskur er ekki góður.
Þumalputtareglan varðandi eldun
á fiski er sú að þegar þig grunar að
fiskurinn sé tilbúinn, þá er hann
það örugglega!
Eldunartíminn ræðst af þykkt
stykkjanna, gerð þeirra og
eldunarhitanum – því er tíminn
misjafn. Ég reyni að fylgjast vel með
fisknum, um leið og liturinn á honum
fer að umbreytast úr glæru yfir í
hvítt (eða í ljósbleikt með lax og
silung) er fiskurinn tilbúinn. Þegar
gaffli er stungið í stykkið vil ég sjá
flögur myndast í holdinu, hann á
ekki að molna því þá er hann líklega
orðinn þurr. Þegar ég pönnusteiki
fisk með roði hef ég pönnuna vel
heita og steiki fiskinn á roðinu og
sný honum svo aðeins yfir á hina
hliðina – þá verður hann stökkur að
utan og safamikill að innan.
Ég elska kartöflumús með fisk,
þá bara nýjar íslenskar kartöflur
með smjöri (grófmarðar). Það er
endalaust hægt að leika sér með hana
með því að bæta kryddjurtum í og
næstum því hverju sem er.
Grilluð rauðspretta
› 600–800 g rauðspretta
› 200 g smjör
› 30 g kapers
› 1 stk. sítróna
› Salt og pipar
Aðferð
Brúnum smjörið rólega á pönnu og
setjum síðan grillaða rauðsprettuna
í álbakka – það kemur skemmtilegt
hnetubragð af smjörinu.
Bætum kapers við ásamt
niðurskornu sítrónukjöti og -berki
sem búið er að rífa niður með fínu
rifjárni á pönnuna. Látum fiskinn
eldast á pönnunni, smökkum til með
salti og pipar og færum hann svo
beint upp á disk.
Ef ekki er til kapers er ágætt
að nota fínt saxaðar ólífur eða
sólþurrkaða tómata í staðinn.
Lúða með basilikulaufum
› 300 g lúða
› Nokkur basilikulauf (þurrkuð basilika)
eða steinselja
› 50 ml olía (t.d. ólífuolía) salt og pipar
Aðferð
Skerum fiskinn í litlar steikur og
penslum með ólífuolíu. Grillum
á báðum hliðum og kryddum með
basiliku, steinselju, salti og pipar.
Íslenskir tómatar væru fullkomið
meðlæti.
Blandaður fiskur í álpappír
› 600–800 g blandaður fiskur, lax,
steinbítur og kræklingur
› 1 dl ólífuolía
› 1 laukur, saxaður
› 3–6 hvítlauksgeirar, skornir í
sneiðar
Aðferð
Skerum fiskinn í hæfilega stóra bita
og veltum hvítlauksolíu saman við
og svo er hráum kræk lingi bætt
við.
Bakið á grilli í álpappír eða bakka í
nokkrar mín. eða þar til kræklingurinn
er opnaður. Léttsteikjum svo lauk og
setjum yfir fiskinn fyrir framreiðslu.
Súkkulaði- og karamellukrem með
ís og íslenskum jarðarberjum
› 160 g gott súkkulaði
› 150 g sykur
› 250 g rjómi eða hreint skyr
› 20 g hunang
› 50 g smjör
Aðferð
Notum sykurinn til að búa til
karamellu á vægum hita (bara á
þurri pönnu), síðan blanda hana
með rjómanum og hunangi (ef skyr
er notað er það sett eftir á).
Látum hitastigið falla niður í (75–
80 gráður), hellum síðan smám saman
brædda súkkulaðinu saman við og
notum spaða til að hræra vel. Blöndum
strax með rafmagnstöfrasprota til að
gera fullkomið krem.
Lækkum hitann niður í 40 gráður,
bætum smjörinu við (eða skyri),
blöndum aftur í rafmagnsblandara.
Leyfum að stífna í kæli og
framreið um með íslenskum berjum
og góðum ís.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Gröf