Bændablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. júní 201954
Umhverfisvænar lausnir eru
notaðar í Sundlauginni á
Blönduósi. Klór er framleiddur
á staðnum og er matarsalt eina
afurðin sem þarf í framleiðsluna
ásamt rafmagni og vatni. Framleitt
er klórgas og það sett beint inn í
sótthreinsun, auk þess sem kerfið
framleiðir klórvatn sem notað er
til að mæta dagssveiflum í notkun.
Tækið er það fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Helstu kostir
nýja kerfisins eru enginn flutningur
á milli staða á hættulegum efnum,
klórlykt minnkar, sviði í augum
minnkar verulega, húðerting
minnkar, vistvænt fyrir starfsfólk og
stuðlar að umhverfisvænu umhverfi.
Aðsókn eykst
Góð aðsókn hefur verið í Sundlaugina
á Blönduósi í sumar eins og síðustu
sumur. Það sem af er ári hafa
17.141 sundlaugagestur heimsótt
laugina. Á sama tíma í fyrra voru
sundlaugargestirnir 15.180 talsins
og er þetta því aukning um 12,9%
milli ára.
Ef miðað er við sama tímabil árið
2017 við árið í ár, þá voru gestir
14.530 talsins sem sóttu sundlaugina
heim. Aukningin miðað við árið í ár
er 17,9%, þannig að stöðug aukning
er ár frá ári.
Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að
stærð, tveir heitir pottar, gufa, vaðlaug,
tvö ísböð, tvær stórar rennibrautir
og mikið af skemmtilegum
leiktækjum og leikföngum. Þetta
kemur fram á Facebook-síðu
Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi.
/MÞÞ
Nýlega lauk framkvæmdum á
vegum Hafrannsóknastofnunar
við fyrirstöðuþrep, sem staðsett
er neðarlega í Langadalsá við
Ísafjarðardjúp.
Tilgangur framkvæmdanna var að
koma fyrir fiskteljara með myndavél
til talninga og greininga á göngufiski
í ánni og er framkvæmdin hluti af
vöktun náttúrulegra veiðivatna
í tengslum við uppbyggingu
sjókvíaeldis.
Fyrirstöðuþrepið er um 40 metra
langt. Nýjum myndavélateljara
var komið fyrir í teljarastíflu í
mannvirkinu og eru þrjú þrep
neðan við teljarann til að auðvelda
fiski uppgönguna. Teljarinn telur
göngufiska og tekur mynd af
hverjum fiski sem á leið upp ána.
Með þessum búnaði og út frá
veiðitölum er ætlunin að meta
heildarstofnstærð laxa í ánni.
Fyrirhugað er að teljarinn verði
í virkni á þeim tíma sem von er
á göum laxfiska úr sjó eins langt
fram eftir hausti sem von er á fiski
og unnt er vegna aðstæðna. Með
nýja búnaðinum er mögulegt að
tegundagreina og stærðarmæla
einstaka fiska sem ganga í ána.
Einnig er hægt að greina ytri
eldiseinkenni, eind og eydda ugga, ef
laxar sem sloppið hafa úr sjókvíaeldi
ganga um teljarann og unnið er að
því að hægt verði að meta magn
laxalúsa á fiskinum. /VH
Fossháls 1 - 110 Reykjavík
Ormsvelli 4 - 860 Hvolsvelli
S: 575 6071 / buvorur@ss.is
www.buvorur.is
Búvörur
Búvörur
Flugnafælufatnaður
Insect Shield Sokkar
Stærðir: 37-41 og 42-46
2.995 kr
Fatnaður meðhöndlaður
með permetrín. Lyktarlaus
og góð ending. Virkar á
flugur, maura og mítla.
Skyrta græn einlit
Stærðir: S - 3XL
8.916 kr
Föt á alla fjölskylduna
Skoðið úrvalið á
www.buvorur.is
Grisport gönguskór
Stærðir: 36-47
11.990 kr
Insect Shield buxur barna
St.: 110/116, 122/128
og 134/140
6.820 kr
Grisport leðurgönguskór
Stærðir: 36-47
18.600 kr
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
5630300
Athugið! Athugið! Lumar þú á
gömlum rafbassagítar inn í skáp og
vilt losna við? Skoða allt framleitt fyrir
árið 1990. Hafið samband í síma
659-0371 eða birkir026@gmail.com
Óska eftir að kaupa vinnuvélar frá ca
árinu 1980 til dagsins í dag. Uppl. í
síma 847-6628.
Óska eftir íbúð til leigu á Egilsstöðum
í nokkra mánuði eða sumarbústað
í grennd við Egilsstaði. Skilvís og
lofa góðri umgengni. Húsnæðið þarf
ekki að vera búið húsgögnum. Uppl.
í síma 787-2717.
Óska eftir sláttuþyrlu PZ165. Þarf að
vera vel nothæf. Uppl. í síma 856-1821.
Erum 5 manna fjölskylda að leita
að húsnæði/sumarhúsi/heilsárshúsi
til leigu sem fyrst á Vesturlandi. Allt
kemur til greina. Langtímaleiga. Uppl.
í síma 867-9085.
Járnrennibekkur óskast, margt kemur
til greina. Uppl. í síma 852-3538.
29 ára íslensk kona frá Reykjavík
óskar eftir að komast í sveitastörf og
annast dýr. Nánari upplýsingar gegnum
netfangið tarasverris@gmail.com
Lítill sumarbústaður í langtímaleigu.
Um 5 mín. frá Borgarnesi. Frá 1. júlí.
Uppl. í síma 846-2852 .
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálfskiptinga. Hafið sam-
band í síma 663-9589 til að fá uppl.
og tilboð. HP transmission Akureyri,
netfang einar.g9@gmail.com, Einar G.
Smiður getur bætt við sig verkum í
sumar. Sumarhús, sökklar, uppsláttur.
Get tekið að mér byggingarstjórn, 1.
2. 3. stig. Get gert úttektir á húsum.
Tilboð tímavinna. Upplýsingar
nybyggd@gmal.com
Eplauppskeru- og ævintýraferð
til Noregs 4. – 8. október 2019
Flogið í beinu flugi til Bergen með Icelandair, gist í 1 nótt
í Harðangursfirði, 1 nótt í Voss og 2 nætur í Bergen.
Ferðin er stútfull af áhugaverðri dagskrá og hér má sjá
brot af því sem þátttakendur munu upplifa:
• Heimsækjum bændur sem selja beint frá býli og fáum þjóðlegar veitingar.
• Skoðum stafkirkjuna í Fantoft í Bergen.
• Náttúruperlur kannaðar og kíkt á kraftmikla fossa.
• Tökum þátt í eplauppskeru íslensku eplabændanna í Harðangursfirði.
• Heimsækjum glæsilega eplavínsverksmiðju í Ulvik.
• Fáum kynnisferð um Oleana-prjónaverksmiðjuna í Bergen, ofl., ofl.
• Verð á mann í tvíbýli: 140.300,-
Verð á mann í einbýli: 165.900,-
(Allt innifalið fyrir utan 2 hádegisverðir og 2 kvöldverðir ásamt drykkjum)
Fararstjóri: Erla Hjördís Gunnarsdóttir, epla- og eggjabóndi
í Harðangursfirði og blaðamaður Bændablaðsins.
Skráning á erlagunn@gmail.com fyrir 20. júlí 2019.
Fyrir frekari upplýsingar og ferðadagskrá er hægt að senda tölvupóst á
erlagunn@gmail.com eða í síma 563-0320.
Óska eftir
Atvinna
Til leigu
Þjónusta
Fyrirstöðuþrep í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi. Teljarinn er staðsettur í hólfinu
ofan við þrepið. Mynd / Hafrannsóknastofnun.
Hafrannsóknastofnun:
Fyrirstöðuþrep með fiskteljara í Langadalsá
Bæjarstjórnin í Hornafirði:
Áhyggjur af umferðarmálum í Öræfum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins
Hornafjarðar hefur lýst
yfir áhyggjum yfir ástandi í
umferðarmálum í Öræfum.
Samþykkti bæjarstjórn bókun þar
um á dögunum en í henni kemur fram
að slysatíðni hafi aukist samhliða
aukinni umferð og banaslysum hafi
fjölgað undanfarin ár. Langt sé í
viðbragðsaðila í Öræfum og mikið
álag sé á björgunarsveitinni Kára og
slökkviliðinu í Öræfum sem byggt
er upp af sömu einstaklingum.
Gestir í Skaftafelli og
Jökulsárlóni voru um 800 til
850 þúsund á síðasta ári, eða að
meðaltali um 2.000 gestir á hverjum
degi. Meðalfjöldi bifreiða á liðnu
ári við Lómagnúp var 1.344 á dag.
Segir bæjarstjórn í bókun sinni að
vegakerfið sé ekki hannað fyrir
þessa miklu umferð og óskar eftir
samtali við samgönguyfirvöld um
málið. Lagt er til að unnið verði að
áætlun um breikkun vega og frekari
fækkun einbreiðra brúa með það að
markmiði að efla umferðaröryggi.
/MÞÞ
Vegurinn um Freysnes, rétt austan við Skaftafell. Mynd / HKr.
Sundlaugin á Blönduósi:
Umhverfisvænar lausnir og aðsókn eykst
Fleiri gestir hafa sótt sundlaugina á
Blönduósi heim nú en í fyrra.