Bændablaðið - 26.09.2019, Side 20

Bændablaðið - 26.09.2019, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201920 Fjöldi fólks hefur vaxandi áhyggjur af því magni koltvísýrings (CO2) sem er dælt út í andrúmsloftið. Ástæðan eru breytingar á veðurfari og hlýnun loftslags. Umræðan hefur samt oft þróast út í miklar öfgar og hástemmt orðskrúð svo mörgum er farið að þykja nóg um. Nær ekkert er þó rætt um að mun mikilvirkari lofttegund, súrefnið, hefur farið þverrandi. Telja sumir að það sé mun líklegri skýring á hlýnun loftslags en aukning koltvísýrings sem er ekki nema um 0,04% andrúmsloftsins. Ekki er heldur mikið rætt um að með nýtingu á agnarsmárri jurt er bæði hægt að eyða koltvísýringi úr loftinu og auka súrefnisbirgðir jarðar. Það er enginn vafi á að sú staðreynd að súrefni er nærri 21% af lofthjúpi jarðar er lykillinn að veru mannsins á jörðinni. Plöntur framleiða súrefni með ljóstillífun og því eðlilegt að við horfum á ræktun og viðgang gróðurs sem megin viðfangsefnis jarðarbúa á öllum tímum. Það vekur því spurningar af hverju við sjáum engar kröfugöngur á strætum borga um að stórefla ræktun gróðurs. Skógar heimsins hafa rýrnað Á heimsvísu hefur mjög verið gengið á skóga á síðustu 100 árum, sér í lagi regnskóga. Samkvæmt gögnum Global Forest Resources Assessment, þá minnkuðu skógar á heimsvísu um 3% frá 1900 til 2015, og mest í hitabeltinu. Eftir 1990 fór þó aðeins að hægja á skógareyðingunni. Það þýðir að dregið hefur umtalsvert úr framleiðslu súrefnis á þessu tímabili sem og bindingu koltvísýrings. Afar misvísandi tölur um súrefnisframleiðslu í Amazon Í tölum sem vistfræðingurinn Yadvinder Malhi hjá umhverfis­ stofnun Oxford háskóla kom fram með 2010 var áætlað að allir regnskógar heims skiluðu um 34% af súrefninu í andrúmsloftinu. Miðað við stærð Amazon skóganna áttu þeir þá að skila 16% eða tæplega helmingi þess súrefnis sem landplöntur á jörðinni framleiddu í heild. Í leiðréttum tölum þar sem búið var að taka tillit til framleiðslu þörunga er talað um að Amazon skógarnir framleiði um 9% af súrefni jarðar. Í enn annarri úttekt loftslagsvísindamannsins Jonathan Foley var talan komin niður í 6%. Enn rangar fullyrðingar á lofti Í tímaritinu National Geographic þann 28. ágúst síðastliðinn kom fram að enn sé verið að flagga kolröngum fullyrðingum um Amazon svæðið. Slíkt hafi komið fram í fjölmiðlum eins og CNN, ABC, Sky News, í samfélagsmiðlum, hjá pólitíkusum eins og Emmanauel Macron Frakklandsforseta, þingmönnum á Bandaríkjaþingi og leikaranum og umhverfissinnanum Leonardo di Caprio. Allir þessir aðilar fullyrði enn að Amazon skógarnir framleiði um 20% af öllu súrefni á jörðinni. Rangar fullyrðingar um losun framræstra mýra á Íslandi Þetta minnir óneitanlega á þrálátar fullyrðingar um gríðarlega kolefnislosun framræstra mýra á Íslandi. Þar hefur verið hamrað á því árum saman, m.a. af íslenskum stjórnvöldum og náttúruverndarsamtökum, að 72% af allri losun okkar Íslendinga á koltvísýringi sé vegna framræslu lands. Sýnt hefur verið fram á af sérfræðingum að þessar fullyrðingar standast alls ekki. Er skrítið þótt almenningur viti ekki í hvorn fótinn hann á að stíga þegar kemur að umræðum um loftslagsmál? Vísindamenn virðast ekki vera með þetta á tæru, hvað þá stjórnmálamennirnir sem eiga að stjórna aðgerðum í loftslagsmálum bæði hér heima og á heimsvísu. Stóraukin skógrækt í Evrópu Ef horft er til Evrópu, þá hefur þróunin verið að snúast við á síðustu 60–80 árum. Ræktun skóglendis hefur stóraukist frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Víða var skipa­, bygginga­ og pappírsiðnaður farinn að ganga mjög á skóga, en því tókst að snúa svo rækilega við að skógar þekja nú meira land í Evrópu en fyrir hundrað árum. Um 1900 var varla nokkur upprunalegur skógur eftir í Evrópu. Eftir heimsstyrjöldina síðari var staðan orðin enn verri, þá tóku Evrópuþjóðir sig til með miklu átaki í ræktun skóga. Það átak stendur enn og eru skógar nú ríflega þriðjungi stærri en fyrir 100 árum. Hollendingar og Englendingar, sem reiddu sig mjög á siglingar, gengu hratt á skógana á átjándu og nítjándu öld. Um aldamótin 1900 voru einungis um 2–3% upprunalegra skóga eftir í báðum þessum löndum. Samkvæmt tölum World Views frá 2010 og birtar voru hjá Washington Post, þöktu skógar þá um 10–12% lands í báðum þessum löndum. Svipaða sögu er að segja frá Skotlandi og Írlandi. Þetta er byggt á rannsóknum Richard Fuchs stofnunarinnar hjá háskólanum í Wageningen í Hollandi. Ræktun skóga nýtur aukins skilnings á Íslandi Vegna alvarleika umræðunnar í loftslagsmálum reyna þeir hógværari stöðugt að finna mjúka lendingu í þessum málum. Binding koltvísýrings með aukinni ræktun skóga er sannarlega áhrifarík leið. Ekki má gleyma því að súrefnisframleiðslan er jafnvel enn mikilvægari. Önnur leið sem líka er hægt að fara samhliða skógrækt er ræktun ör­ eða smáþörunga (microalgae) sem eru afar öflugt lífsform sem breytir koltvísýringi með ljóstillífun í olíu og nýtanlegt hráefni í fóður dýra og fæðu manna. Það sem meira er, smáþörungar í hafinu, m.a. við Ísland, eru mun mikilvirkari í framleiðslu á súrefni en jafnvel frumskógarnir í Amazon og víðar sem löngum hafa verið kallaðir lungu heimsins. Þörungar taldir framleiða um 70% af súrefninu á jörðinni Talið er að smáþörungar (microalgae) í hafinu framleiði um 70% af súrefninu í lofthjúpnum og bindi um leið gríðarlegt magn af koltvísýringi og umbreyti honum í olíu og lífmassa. Athyglisverður málflutningur fyrir ágæti örþörunga Í grein í Forbes í fyrrasumar var áhugaverð grein undir fyrirsögninni „Sjáum hvernig þörungar gætu breytt veröldinni okkar“ (See How Algae Could Change Our World). Þar er vísað í loftslagsvísindamanninn Charles Greene sem er prófessor við Cornell háskóla og félagi í Marine Algae Industrialization Consortium (MAGIC), sem hefur m.a. fengist við að skoða hvernig hægt sé að nota smáþörunga til að framleiða lífeldsneyti. Á vísindaráðstefnu American Geophysical Union’s biannual ocean sciences sem haldin var í Portland í Oregon í Bandaríkjunum í febrúar 2018, kynnti Greene hugmyndir um hvernig nota mætti örþörunga sem lausn til að mæta vanda 21. aldar. Það varðar eldsneyti, loftslagsmál og fæðuöryggi. Víst er að smáþörungar eru gríðarlega afkastamiklar plöntur. Í greininni í Forbes kemur fram að þörungar geti framleitt um 19 til 57 tonn af lífrænni olíu á hektara sem er nærri 7 sinnum meiri afköst en hægt er að ná með afkastamestu olíujurtunum í landræktun. Meira að segja hafa verið gerðar tilraunir með ræktun örþörunga úti í geimnum. Ekki laus við heimsendaspár Viðtalið við Greene er svo sem ekki laust við heimsendaspádóma og greinilegt að hann telur sig ásamt sínum félögum búinn að finna þá lausn sem dugi. Þó þetta kunni allt saman að vera satt og rétt, þá verður það bara aldrei svo í veruleikanum að heimurinn verði tilbúinn að stökkva á eina hugmynd sem leysa muni öll vandamál. Ekki frekar en fólk sé tilbúið að fallast á að vera einungis með ein trúarbrögð. Smáþörungar taldir geta leyst stóru vandamál heimsins Hvað er svo merkilegt við ör­ eða smáþörunga að menn telji að þeir geti verið lausn á jafn risastóru vandamáli og margumtalaðri loftslagsvá? Jú, þörungarnir vaxa tíu sinnum hraðar en landplöntur og það þarf minna en tíunda hluta þess lands sem nauðsynlegt er til að framleiða jafngildi þörunga í lífmassa. Þá er miðað við þörungaframleiðslu í tjörnum. Hægt er reyndar að framleiða þörunga með enn skilvirkari hætti í lóðréttri ræktun, en það er kostnaðarsamara. Þörunga má líka rækta á landi sem annars er ekki hægt að nýta til ræktunar á nokkurri nytjajurt. Þeir keppa því ekki um land við aðra uppskeru sem ræktuð er á landi. Þörungar þarfnast ekki ferskvatns og þá er hægt að frjóvga á skilvirkari hátt en ræktun plantna á landi. Það er því hægt að komast hjá mikilli vatnsnotkun sem annars er nauðsynleg við ræktun. Það kemur í veg fyrir sóun á áburðargjöf og ofauðgun grunnvatns, áa og vatna á næringarefnum sem hefur verið fylgifiskur við nútíma landbúnað. Þá þarf ekki að beita eiturefnum við slíka ræktun. Í sjó eru þörungar uppspretta omega 3 fitusýra sem finnast í fiski. Með fjölþætta nýtingarmöguleika Þar sem örþörungar vaxa mun hraðar en plöntur í landinu og eru afar olíuríkir geta þeir verið uppspretta lífeldsneytis sem endurnýtir koltvísýring úr loftinu. Þá eru þeir skynsamlegar umhverfis­ og efnahagslega verðmætar afurðir, að mati Greene. Auk lífeldsneytis er samhliða hægt að framleiða verðmætt fóður og hráefni til matvælagerðar. Greene telur að þörungar gætu því verið svarið við öllum þeim áskorunum um framleiðslu á kolefnishlutlausu eldsneyti, hráefni fyrir fiskeldi fyrir landbúnað og matvælaiðnað með próteini til manneldis. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is sem dygði fyrir alla heimsbyggðina Rannsóknir og tilraunir Hypergiant Industries í Austin í Texas í Bandaríkjunum sýna að með aðstoð tækninnar geta þörungar verið allt að 400 sinnum virkari en tré við að gleypa í sig koltvísýring.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.