Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201920
Fjöldi fólks hefur vaxandi áhyggjur
af því magni koltvísýrings (CO2)
sem er dælt út í andrúmsloftið.
Ástæðan eru breytingar á
veðurfari og hlýnun loftslags.
Umræðan hefur samt oft þróast
út í miklar öfgar og hástemmt
orðskrúð svo mörgum er farið
að þykja nóg um. Nær ekkert er
þó rætt um að mun mikilvirkari
lofttegund, súrefnið, hefur farið
þverrandi. Telja sumir að það sé
mun líklegri skýring á hlýnun
loftslags en aukning koltvísýrings
sem er ekki nema um 0,04%
andrúmsloftsins. Ekki er heldur
mikið rætt um að með nýtingu á
agnarsmárri jurt er bæði hægt að
eyða koltvísýringi úr loftinu og
auka súrefnisbirgðir jarðar.
Það er enginn vafi á að sú
staðreynd að súrefni er nærri 21%
af lofthjúpi jarðar er lykillinn að
veru mannsins á jörðinni. Plöntur
framleiða súrefni með ljóstillífun og
því eðlilegt að við horfum á ræktun
og viðgang gróðurs sem megin
viðfangsefnis jarðarbúa á öllum
tímum. Það vekur því spurningar af
hverju við sjáum engar kröfugöngur
á strætum borga um að stórefla
ræktun gróðurs.
Skógar heimsins hafa rýrnað
Á heimsvísu hefur mjög verið gengið
á skóga á síðustu 100 árum, sér í
lagi regnskóga. Samkvæmt gögnum
Global Forest Resources Assessment,
þá minnkuðu skógar á heimsvísu
um 3% frá 1900 til 2015, og mest í
hitabeltinu. Eftir 1990 fór þó aðeins
að hægja á skógareyðingunni. Það
þýðir að dregið hefur umtalsvert úr
framleiðslu súrefnis á þessu tímabili
sem og bindingu koltvísýrings.
Afar misvísandi tölur um
súrefnisframleiðslu í Amazon
Í tölum sem vistfræðingurinn
Yadvinder Malhi hjá umhverfis
stofnun Oxford háskóla kom
fram með 2010 var áætlað að allir
regnskógar heims skiluðu um 34%
af súrefninu í andrúmsloftinu.
Miðað við stærð Amazon skóganna
áttu þeir þá að skila 16% eða
tæplega helmingi þess súrefnis sem
landplöntur á jörðinni framleiddu
í heild. Í leiðréttum tölum þar sem
búið var að taka tillit til framleiðslu
þörunga er talað um að Amazon
skógarnir framleiði um 9% af
súrefni jarðar. Í enn annarri úttekt
loftslagsvísindamannsins Jonathan
Foley var talan komin niður í 6%.
Enn rangar fullyrðingar á lofti
Í tímaritinu National Geographic
þann 28. ágúst síðastliðinn kom fram
að enn sé verið að flagga kolröngum
fullyrðingum um Amazon svæðið.
Slíkt hafi komið fram í fjölmiðlum
eins og CNN, ABC, Sky News, í
samfélagsmiðlum, hjá pólitíkusum
eins og Emmanauel Macron
Frakklandsforseta, þingmönnum á
Bandaríkjaþingi og leikaranum og
umhverfissinnanum Leonardo di
Caprio. Allir þessir aðilar fullyrði
enn að Amazon skógarnir framleiði
um 20% af öllu súrefni á jörðinni.
Rangar fullyrðingar um losun
framræstra mýra á Íslandi
Þetta minnir óneitanlega á þrálátar
fullyrðingar um gríðarlega
kolefnislosun framræstra
mýra á Íslandi. Þar hefur verið
hamrað á því árum saman, m.a.
af íslenskum stjórnvöldum og
náttúruverndarsamtökum, að 72%
af allri losun okkar Íslendinga á
koltvísýringi sé vegna framræslu
lands. Sýnt hefur verið fram
á af sérfræðingum að þessar
fullyrðingar standast alls ekki. Er
skrítið þótt almenningur viti ekki
í hvorn fótinn hann á að stíga
þegar kemur að umræðum um
loftslagsmál? Vísindamenn virðast
ekki vera með þetta á tæru, hvað þá
stjórnmálamennirnir sem eiga að
stjórna aðgerðum í loftslagsmálum
bæði hér heima og á heimsvísu.
Stóraukin skógrækt í Evrópu
Ef horft er til Evrópu, þá hefur
þróunin verið að snúast við á síðustu
60–80 árum. Ræktun skóglendis
hefur stóraukist frá lokum síðustu
heimsstyrjaldar. Víða var skipa,
bygginga og pappírsiðnaður farinn
að ganga mjög á skóga, en því tókst
að snúa svo rækilega við að skógar
þekja nú meira land í Evrópu en
fyrir hundrað árum.
Um 1900 var varla nokkur
upprunalegur skógur eftir í Evrópu.
Eftir heimsstyrjöldina síðari var
staðan orðin enn verri, þá tóku
Evrópuþjóðir sig til með miklu átaki
í ræktun skóga. Það átak stendur enn
og eru skógar nú ríflega þriðjungi
stærri en fyrir 100 árum.
Hollendingar og Englendingar,
sem reiddu sig mjög á siglingar,
gengu hratt á skógana á átjándu
og nítjándu öld. Um aldamótin
1900 voru einungis um 2–3%
upprunalegra skóga eftir í báðum
þessum löndum. Samkvæmt tölum
World Views frá 2010 og birtar
voru hjá Washington Post, þöktu
skógar þá um 10–12% lands í
báðum þessum löndum. Svipaða
sögu er að segja frá Skotlandi og
Írlandi. Þetta er byggt á rannsóknum
Richard Fuchs stofnunarinnar
hjá háskólanum í Wageningen í
Hollandi.
Ræktun skóga nýtur
aukins skilnings á Íslandi
Vegna alvarleika umræðunnar
í loftslagsmálum reyna þeir
hógværari stöðugt að finna mjúka
lendingu í þessum málum. Binding
koltvísýrings með aukinni ræktun
skóga er sannarlega áhrifarík
leið. Ekki má gleyma því að
súrefnisframleiðslan er jafnvel enn
mikilvægari.
Önnur leið sem líka er hægt að
fara samhliða skógrækt er ræktun
ör eða smáþörunga (microalgae)
sem eru afar öflugt lífsform sem
breytir koltvísýringi með ljóstillífun
í olíu og nýtanlegt hráefni í fóður
dýra og fæðu manna. Það sem meira
er, smáþörungar í hafinu, m.a. við
Ísland, eru mun mikilvirkari í
framleiðslu á súrefni en jafnvel
frumskógarnir í Amazon og víðar
sem löngum hafa verið kallaðir
lungu heimsins.
Þörungar taldir framleiða um
70% af súrefninu á jörðinni
Talið er að smáþörungar
(microalgae) í hafinu framleiði um
70% af súrefninu í lofthjúpnum og
bindi um leið gríðarlegt magn af
koltvísýringi og umbreyti honum í
olíu og lífmassa.
Athyglisverður málflutningur
fyrir ágæti örþörunga
Í grein í Forbes í fyrrasumar var
áhugaverð grein undir fyrirsögninni
„Sjáum hvernig þörungar
gætu breytt veröldinni okkar“
(See How Algae Could Change
Our World). Þar er vísað í
loftslagsvísindamanninn Charles
Greene sem er prófessor við Cornell
háskóla og félagi í Marine Algae
Industrialization Consortium
(MAGIC), sem hefur m.a. fengist
við að skoða hvernig hægt sé að
nota smáþörunga til að framleiða
lífeldsneyti. Á vísindaráðstefnu
American Geophysical Union’s
biannual ocean sciences sem
haldin var í Portland í Oregon í
Bandaríkjunum í febrúar 2018,
kynnti Greene hugmyndir um
hvernig nota mætti örþörunga sem
lausn til að mæta vanda 21. aldar.
Það varðar eldsneyti, loftslagsmál
og fæðuöryggi.
Víst er að smáþörungar eru
gríðarlega afkastamiklar plöntur.
Í greininni í Forbes kemur fram að
þörungar geti framleitt um 19 til
57 tonn af lífrænni olíu á hektara
sem er nærri 7 sinnum meiri afköst
en hægt er að ná með afkastamestu
olíujurtunum í landræktun. Meira að
segja hafa verið gerðar tilraunir með
ræktun örþörunga úti í geimnum.
Ekki laus við heimsendaspár
Viðtalið við Greene er svo sem
ekki laust við heimsendaspádóma
og greinilegt að hann telur sig ásamt
sínum félögum búinn að finna þá
lausn sem dugi. Þó þetta kunni allt
saman að vera satt og rétt, þá verður
það bara aldrei svo í veruleikanum
að heimurinn verði tilbúinn að
stökkva á eina hugmynd sem leysa
muni öll vandamál. Ekki frekar en
fólk sé tilbúið að fallast á að vera
einungis með ein trúarbrögð.
Smáþörungar taldir geta leyst
stóru vandamál heimsins
Hvað er svo merkilegt við ör eða
smáþörunga að menn telji að þeir
geti verið lausn á jafn risastóru
vandamáli og margumtalaðri
loftslagsvá? Jú, þörungarnir vaxa tíu
sinnum hraðar en landplöntur og það
þarf minna en tíunda hluta þess lands
sem nauðsynlegt er til að framleiða
jafngildi þörunga í lífmassa. Þá
er miðað við þörungaframleiðslu
í tjörnum. Hægt er reyndar að
framleiða þörunga með enn
skilvirkari hætti í lóðréttri ræktun,
en það er kostnaðarsamara.
Þörunga má líka rækta á landi
sem annars er ekki hægt að nýta til
ræktunar á nokkurri nytjajurt. Þeir
keppa því ekki um land við aðra
uppskeru sem ræktuð er á landi.
Þörungar þarfnast ekki ferskvatns
og þá er hægt að frjóvga á skilvirkari
hátt en ræktun plantna á landi.
Það er því hægt að komast hjá
mikilli vatnsnotkun sem annars er
nauðsynleg við ræktun. Það kemur
í veg fyrir sóun á áburðargjöf og
ofauðgun grunnvatns, áa og vatna
á næringarefnum sem hefur verið
fylgifiskur við nútíma landbúnað.
Þá þarf ekki að beita eiturefnum
við slíka ræktun. Í sjó eru þörungar
uppspretta omega 3 fitusýra sem
finnast í fiski.
Með fjölþætta nýtingarmöguleika
Þar sem örþörungar vaxa mun hraðar
en plöntur í landinu og eru afar
olíuríkir geta þeir verið uppspretta
lífeldsneytis sem endurnýtir
koltvísýring úr loftinu. Þá eru
þeir skynsamlegar umhverfis og
efnahagslega verðmætar afurðir, að
mati Greene. Auk lífeldsneytis er
samhliða hægt að framleiða verðmætt
fóður og hráefni til matvælagerðar.
Greene telur að þörungar gætu
því verið svarið við öllum þeim
áskorunum um framleiðslu á
kolefnishlutlausu eldsneyti, hráefni
fyrir fiskeldi fyrir landbúnað og
matvælaiðnað með próteini til
manneldis.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
sem dygði fyrir alla heimsbyggðina
Rannsóknir og tilraunir Hypergiant Industries í Austin í Texas í Bandaríkjunum sýna að með aðstoð tækninnar geta þörungar verið allt að 400 sinnum virkari en tré við að gleypa í sig koltvísýring.