Bændablaðið - 26.09.2019, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201928
LÍF&STRAF
Hákon Hermannsson, framkvæmdastjóri Dokkunnar, segir að vatnið úr Vestfjarðagöngum sé lykillinn að hreinna og frískara bragði Dokkubjórsins. Mynd / HKr.
Dokkan Brugghús var stofnað
á Ísafirði í október 2017 með
það að markmiði að búa til
vestfirskan bjór. Þar með varð
til fyrsta brugghúsið á Vest
fjörðum og er það hreinræktað
fjölskyldufyrirtæki. Fyrsti bjór
fyrirtækisins leit dagsins ljós í
byrjun sumars 2018 og hefur
starfsemi síðan gengið vonum
framar.
Nú eru framleiddar sex tegundir
af bjór í brugghúsi fyrirtækisins að
Sindragötu 11 og stöðugt verið að
gera tilraunir með nýjar bjórgerðir.
Dokkan dregur nafn sitt af
þurrkví eða dokku sem notuð var
á þarsíðustu öld til að taka skútur
á þurrt til viðgerðar. Dokkan var
byggð úr tré og er nú komin undir
miklar uppfyllingar á eyrinni við
Skutulsfjörð, en brugghúsið er nú
til húsa skammt frá þeim stað sem
þessi nafntogaða skipakví var.
Hákon Hermannsson er fram
kvæmda stjóri Dokkunnar og er hann
jafnframt einn af eigendunum. Hann
tekur þátt í brugguninni og öllu öðru
sem þar þarf að sinna, en vill samt
ekki titla sig bruggara.
„Bruggarinn okkar er heimamaður
og heitir Valur Norðdahl, en hann er
mikill áhugamaður um bjórgerð,“
segir Hákon. Segja má að Valur sé
sjálfmenntaður í þessu fagi, en hann
hefur víða aflað sér þekkingar sem
greinilega er að skila sér í góðum
veigum. Til gamans má geta þess
að Valur er uppalinn á svæðinu sem
Ísfirðingar kalla Dokkuna.
„Við erum þrjú að vinna hér
yfir sumartímann, en bara tveir yfir
veturinn. Eftir tvö til þrjú ár gætu
framtíðarhorfurnar kannski leitt til
þess að hér starfi 5 til 8 manns. Það
er draumurinn, en maður veit þó
aldrei hvað framtíðin ber í
skauti sér.“
Hugmyndin
að brugghúsi
á Ísafirði
kviknaði
austur á
fjörðum
- Hvernig kom
það annars til
að ráðist var í
stofnun brugghúss
á Ísafirði?
„Það kom þannig til að mágur
minn, Arnar Friðrik Albertsson, var
á rúntinum um landið í sinni vinnu.
Þá rakst hann á lítið brugghús á
Austfjörðum. Hann hringdi í mig
og spurði einfaldlega af hverju það
væri ekki brugghús á Ísafirði. Ég
sagðist bara ekki hafa hugmynd
um af hverju svo væri. Þá spurði
hann hvort við gætum þá ekki gert
eitthvað í því. Um mánuði seinna
vorum við búnir að panta tækin fyrir
brugghúsið.“
Þar brugga menn nú 1.000 lítra
í hverri lögun og geta verið með 11
þúsund lítra í tönkum.
Með sex bjórgerðir undir í einu
„Við erum með fjórar bjórgerðir á
lager í flöskum sem við seljum í
gegnum ÁTVR. Svo seljum við líka
bjór í kútum á veitingastaði. Annars
framleiðum við hér sex tegundir í
dag og þar er nýjasta gerðin dökkur
Porterbjór sem heitir Skarfur. Hann
var fyrst tilbúinn í lok ágúst. Þar
á undan var ég með bjór sem hét
Þarajevo og var bruggaður með þara.
Það var skemmtilegur bjór, en þegar
hann kláraðist gerðum við þennan
nýja sem við köllum Skarf. Svo eru
það Dokkan Drangi sem er Amber
ale og Dynjandi er IPA bjór. Þá er
Dokkan sem er Pale ale og lagerbjór
Dokkan brugghús er staðsett við Sundahöfnina á Ísafirði, skammt frá þar
sem farþegar farþegaskipanna koma í land.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Hugmyndin kviknaði