Bændablaðið - 26.09.2019, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201932
MENNING&LISTIR
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF haldin í 16. sinn í Reykjavík:
Síðasta haustið komst í keppnisflokk á hausthátíðinni RIFF
Íslenska heimildamyndin Síðasta
haustið eftir Yrsu Roca Fannberg
keppir um aðalverðlaun Alþjóð
legu kvikmynda hátíðarinnar í
Reykjavík (RIFF), Gullna lundann.
Þetta er aðeins í annað sinn í 16 ára
sögu RIFF að íslensk mynd kemst í
keppnisflokkinn.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
hefst í dag, fimmtudaginn
26. september, á útgáfudegi
Bædnablaðsins með frumsýningu
á End of Sentence eftir Elvar
Aðalsteins. Hátíðinni lýkur þann 6.
október með frumsýningu á Parasite,
eftir Bong Joon-ho, en sú mynd vann
aðalverðlaunin í Cannes í vor.
Ein íslensk mynd
valin í hóp keppenda
Aðalflokkur hátíðarinnar er Vitranir
(New Visions) þar sem nýir
leikstjórar tefla fram sinni fyrstu eða
annarri mynd. Aldrei þessu vant var
ein íslensk mynd, Síðasta haustið,
valin í hóp keppenda RIFF.
Forsýning myndarinnar fór
fram fimmtudaginn 12. september
í félagsheimilinu í Árneshreppi á
Ströndum þar sem sagan á sér stað.
Myndin verður síðan frumsýnd á
RIFF í Bíó Paradís mánudaginn
30. september og önnur sýning
verður á sama stað 6. október.
Heimsfrumsýning á myndinni fór
fram á Karlovy Vary hátíðinni í
Tékklandi þann 1. júlí síðastliðinn.
Um bændur sem
bregða búi á Krossnesi
Kvikmyndin Síðasta haustið eftir
Yrsu Roca Fannberg er 78 mínútna
heimildamynd um bændur sem
bregða búi á Krossnesi í einum
afskekktasta hreppi landsins,
Árneshreppi á Ströndum.
Þetta er önnur heimildamynd
Yrsu, en fyrsta mynd hennar,
Salóme, var valin besta norræna
heimildamyndin á Nordisk Panorama
2014 og var það í fyrsta og eina sinn
sem íslenskri heimildarmynd hefur
hlotnast sá heiður.
Fjárbúskapur í hundruð ára
Þar sem vegurinn endar lengst
norður á Ströndum stendur bærinn
Krossnes. Þar hefur fjárbúskapur
verið stundaður kynslóð fram af
kynslóð í hundruð ára.
Úlfar bóndi er jafn mikill hluti af
landslaginu eins og Krossnesfjallið
sjálft. Þetta er síðasta haustið sem
hann og Oddný kona hans smala
fé sínu í réttir og þar með endar
búskapur í Krossnesi á Ströndum.
Enn eimir eftir af gamla Íslandi
en síðustu bændurnir sem stunda
búskaparhætti að gömlum sið munu
brátt heyra sögunni til.
Akkeri Films og Biti aptan bæði
Leikstjóri er Yrsa Roca Fannberg
og framleiðandi myndarinnar
er Hanna Björk Valsdóttir og
framleiðslufyrirtæki eru Akkeri
Films og Biti aptan bæði. Stjórn
kvikmyndatöku er í höndum Carlos
Vásquez Méndez og Federico
Delpero Bejar sér um klippingu.
Hljóðhönnuður er Björn Viktorsson,
auk þess sem tónlist er eftir Gyðu
Valtýsdóttur.
Tekin á 16mm filmu
Myndin er tekin á 16mm filmu,
haustið 2016 í Árneshreppi á
Ströndum þegar 4 bændur af 8
hættu búskap. Myndin er styrkt
af Kvikmyndamiðstöð Íslands,
Uppbyggingarsjóði Vestfjarða,
iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti
o.fl.
Með BA gráðu í myndlist frá
Chelsea College of Art í London
Yrsa Roca Fannberg leikstjóri
er með BA gráðu í myndlist
frá Chelsea College of Art í
London (2000) og MA í skapandi
heimildamyndagerð frá Pompeu
Fabra í Barcelona (2009).
Síðasta haustið (2019) er önnur
heimildamynd Yrsu í fullri lengd
en fyrsta mynd hennar, Salóme
(2014), vann til fjölda verðlauna,
m.a. besta norræna heimildamyndin
á Nordisk Panorama. Yrsa stofnaði
sitt eigið framleiðslufyrirtæki Biti
aptan bæði árið 2016 og er með
fleiri heimildamyndir í þróun.
Hanna Björk Valsdóttir fram-
leiðandi er með BA gráðu í ensku
frá Háskóla Íslands og MA í
menningar- og fjölmiðlafræði
frá New York University (2003).
Hanna Björk hefur tvívegis hlotið
Edduna fyrir bestu heimildamynd,
sem framleiðandi fyrir Ground
Control Productions, fyrir
Draumalandið (2009) eftir Andra
Snæ Magnason og Þorfinn
Guðnason, og fyrir Hvell (2013)
eftir Grím Hákonarson.
Hanna Björk stofnaði eigið
framleiðslu fyrirtæki Akkeri Films
árið 2015 ásamt Birni Viktorssyni.
Kaf (2019) eftir Elínu Hansdóttur,
Önnu Rún Tryggvadóttur og Hönnu
Björk og Síðasta haustið (2019)
eftir Yrsu Roca Fannberg eru fyrstu
myndir Akkeri Films í fullri lengd.
Fleiri myndir eru í framleiðslu.
Síðasta haustið. Þar sem vegurinn endar lengst norður á Ströndum stendur
bærinn Krossnes. Þar hefur fjárbúskapur verið stundaður kynslóð fram af
kynslóð í hundruð ára. Úlfar bóndi er jafn mikill hluti af landslaginu eins og
Krossnesfjallið sjálft. Þetta er síðasta haustið sem hann og Oddný kona hans
smala fé sínu í réttir og þar með endar búskapur í Krossnesi á Ströndum.
Myndir / RIFF
Menningar og hrútadagar verða
haldnir á Raufarhöfn dagana
27. september til 6 október.
Eins og undanfarin ár verður
vegleg dagskrá í boði. Þarna
verður m.a. boðið upp á leiki
fyrir alla og almennan fífla gang
og fegurðarsýningu gimbra. Þá
verða Gin þrjú að sjálfsögðu höfð
í hávegum, eða gleði, grín ... og
kjötsúpa!
Ingibjörg Sigurðardóttir, sem
er í forsvari fyrir menningar- og
hrútadags nefnd, segir að þessi
viðburður, sem lengst af hefur
gengið undir nafninu Hrútadagurinn
á Raufarhöfn, hafi alltaf verið vel
sóttur.
„Fólk kemur alls staðar að af
landinu og brottfluttir nota tækifærið
til að heimsækja ættingja og vini.
Margir gista hjá ættingjum og vinum
í heimahúsum, en annars er ekkert
vandamál að fá gistingu bæði hér á
Hótel Norður ljósi á Raufarhöfn og
síðan er stutt í gistingu hér yfir á
Kópaskeri líka. Eins verður fjölbreytt
þjónusta í boði á Raufarhöfn á
Hótel Norðurljósum, Kaupfélagi
restaurant, Íþróttamiðstöðinni,
verslun inni Urð og í Breiðabliki,
húsnæði eldri borgara.“
Fjölbreytt dagskrá í rúma viku
Þessi menningar- og hrútadagavika
hefst á pókerkvöldi föstudaginn
27. september á Félaginn Bar.
Þar verður spilað Texas Holdem.
Á laugardeginum 28. september
verður boðið upp á gönguferðir
og spurningakeppnina Gáfnaljós
menningar- og hrútadaga sem fram
fer á barnum.
Léttmessa verður í Raufarhafnar-
kirkju á sunnudeginum og vöfflu-
kaffi í félagsheimilinu Hnitbjörgum.
Síðan munu Hera Björk og Bjössi
Thor halda tónleika í Hnitbjörgum.
Rólegt verður yfir vötnum á
mánudeginum, en á þriðjudaginn
1. október býður menningarnefnd
íbúum og gestum í fiskisúpu í
Hnitbjörgum klukkan 19.00.
Miðvikudaginn 2. október verður
fluguveiðikynning í Hnit björgum.
Matur og menning á Raufar höfn
verður á fimmtudeginum 3. október.
Þar verður gestum boðið að smakka
á réttum frá ýmsum þjóð löndum.
Á föstudaginn 4. október verður
listsýning Finnboga Gunnlaugssonar
sem nefnist Raufarhöfn í reka. Á
föstudagskvöldinu verða líka haldnir
tónleikar í Hnitbjörgum með Sverri
Bergmann og Halldóri Gunnari
Fjallabróður.
Hrútadagurinn sjálfur
Þótt dagskráin standi í raun yfir í
tíu daga þá er stóri viðburðurinn
Hrútadagurinn sjálfur sem haldinn
verður laugardaginn 5. október.
Dagskráin hefst með formlegri
opnun Heimskautsgerðisins
Bifrastar. Létt kynning verður á
stöðu gerðisins í félagsheimil inu
kl. 12.30. Verður gestum boðið að
ganga saman frá félagsheimilinu
að Heimskautsgerðinu að kynningu
lokinni og göngubrú verður þá
formlega opnuð. Í kjölfarið hefst
mikil dagskrá í Faxahöllinni sem
stendur frá klukkan 14.00 til 18.00.
Meðal dagskráratriða er:
• Emmessís hrúturinn, en þar
verður svalasti hrúturinn í
höllinni valinn og að sjálfsögðu
veitt verðlaun fyrir hann.
• Búvís hrúturinn – besti
skrokkgæðahrútur svæðisins,
veitt verðlaun um kvöldið. Eru
bændur hvattir til að mæta með
sinn besta lambhrút til leiks.
• Sölubásar – með ýmsan
varning, hægt að panta bás
í síma 855-1160 og skrokkar
verða til sýnis.
• Leikir fyrir alla – stígvélakast
eða annar almennur fíflagangur.
• Barnadagskrá – Gimbra
fegurðar sýning. Allir krakkar
eru hvattir til að taka þátt. Breytt
fyrirkomulag á sýningu verður í
ár. Frekari upplýsingar Baldur s.
693-0627 eða Axel s. 899-7589.
Skráning á staðnum
• Ljósmyndasamkeppni – úrslit
og verðlaunaafhending.
• Sala á hrútum – sem gæti endað
með uppboði!
• G-in þrjú ... Gleði, grín ... og
kjötsúpa.
Kvölddagskrá og Hrútaballið
Að lokinni dagskrá í Faxa höllinni
verður kvölddagskrá í félagsheimilinu
Hnitbjörgum frá 21.00 til 23.00.
Miðaverð á skemmtidagskrána er
3.500 krónur. Þar mun 40 manna
Karlakór Eyjafjarðar troða upp undir
stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Þeir
eru alvanir sprelli og gríni, stefnir
því í gott kvöld. Undirleikari er
Valmar Valjaots og verður Jón Þór
Kristjánsson þeim til halds og trausts.
Að lokinni kvölddagskrá hefst
Hrútaballið sjálft klukkan 23.00 og
er það einnig í Hnitbjörgum.
„Þá er ekkert eftir nema að fylla
á pelann, skella sér í sparidressið
og arka á ball,“ eins og nefndarfólk
orðar það. Þar mun Hamrabandið
leika fyrir dansi frá kl. 23.00 og lofa
þeir trylltum dansi fram á rauða nótt.
Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð
á ballið er 3.500 krónur.
Dagskrá menningar- og hrúta-
daga á Raufarhöfn lýkur svo
sunnudaginn 6. október á göngu-
ferð að Hraunhafnarvita með
ferðafélaginu Norðurslóð. /HKr.
Á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn verður m.a. boðið upp á leiki fyrir alla og almennan fíflagang og
fegurðarsýningu gimbra. Rúsínan í pylsuendanum er svo Hrútaballið þar sem Hamrabandið leikur fyrir dansi.
Menningar- og hrútadagar á Raufarhöfn:
Tíu dagar af gleði, gríni ... og kjötsúpu
Úlfar bóndi, Yrsa Roca Fannberg, höfndur myndarinnar, og Oddný á
Krossnesi.