Bændablaðið - 26.09.2019, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 33
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Opið
mán –fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
Alltaf til staðar
Michelin X-ICE
Hljóðlát, naglalaus vetrardekk
Ný APS gúmmíblanda tryggir
gott grip í kulda
Frábærir aksturseiginleikar
Michelin X-ICE NORTH 4
Besta hemlun á ís, hvort sem dekkin
eru ný eða ekin 10.000 km
Betri aksturseiginleikar m.v.
helstu samkeppnisaðila
Hámarks grip með sérhönnuðu
mynstri fyrir hverja stærð
Einstök ending
Michelin Alpin 6
Nýr mynsturskurður sem opnast
eftir því sem dekkið slitnar
Heldur eiginleikum sínum út líftíman
Lagskipt gúmmíblanda sem veitir
hámarks grip
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á n1.is
Notaðu
N1 kortið
Öruggt frá fyrsta til síðasta kílómetra
Keyrðu
á örygginu
Karlakór Hveragerðis:
Hausttónleikar, Ítalíuferð
og kynningarkvöld
Nú eru þrjú ár frá því að Karlakór
Hveragerðis var stofnaður og
hefur þátttaka í kórnum farið
fram úr björtustu vonum en að
jafnaði syngja á milli 35 og 40
karlar með kórnum á öllum aldri.
Starfsemi þriðja ársins er hafin
af fullum krafti en kórinn verður
með glæsilega hausttónleika í
Hveragerðiskirkju laugardaginn
5. október (afmælisdagur kórs
ins) klukkan 16.00.
Sérstakir heiðursgestir
verða söngvararnir Ólafur M.
Magnússon, Jón Magnús Jónsson
og Ásdís Rún Ólafsdóttir.
Undirleikari með þeim verður
Arnhildur Valgarðsdóttir. Sérstök
hljómsveit mun einnig koma
fram á tónleikunum en hana
skipa Sigurgeir Skafti Flosason,
Unnur Birna Björnsdóttir,
Rögnvaldur Pálmason og
Örlygur Atli Guðmundsson.
Lagaval á tónleikunum verður
létt og skemmtilegt en einsöng
með kórnum syngur Arnar Gísli
Sæmundsson. Undirleikari og
stjórnandi kórsins er Örlygur Atli
Guðmundsson. Miðaverð verður
kr. 2500 en frítt fyrir börn 12 ára
og yngri. Eftir hausttónleikana
heldur kórinn í söngferðalag
til Suður-Tíról á Ítalíu þar sem
allt það helsta á svæðinu verður
skoðað, auk þess sem tónleikar
verða haldnir og félagar og makar
þeirra munu skemmta sér saman í
vikutíma.
Nýir félagar, sem hafa áhuga á
að syngja í kórnum verða boðnir
hjartanlega velkomnir á æfingu
miðvikudagskvöldið 23. október
kl. 19.30. Æfingarnar fara fram
í Vestur-Ási í Hveragerði,
sem er salur beint á móti
Hveragerðiskirkju. Æft er einu
sinni í viku, miðvikudagskvöld frá
19.30 til 21.30. Lagavalið er létt og
skemmtilegt og þá má ekki gleyma
góðum vinskap sem myndast við
að syngja saman í kór. Tekið verður
á móti nýjum félögum með bros á
vör og góðum kaffisopa. /MHH
Hressir og flottir karlar sem syngja með Karlakór Hveragerðis. Nýir félagar
verða sérstaklega boðnir velkomnir á æfingu miðvikudagskvöldið 23. október
kl. 19.30. Myndin var tekin á æfingadegi kórsins í Garðyrkjuskólanum í vor.
Mynd / Örlygur Atli Guðmundsson.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300