Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201940
Íslendingar eru ansi duglegir
þegar kemur að því að ferðast
milli landa, en spurning er
hvort við séum nógu dugleg
að njóta þess sem hinir ýmsu
staðir hafa upp á að bjóða.
Nýlega heimsótti ég grasagarð í
Pittsburgh í Pennsylvaníuríki í
Bandaríkjunum.
Garðurinn nefnist Phipps
Conservatory and Botanical Gardens
og eigi menn leið um þessar slóðir
er óhætt að mæla með heimsókn
þangað. Garðurinn var stofnaður
1893 af Henry nokkrum Phipps og
er því nokkuð gamall á mælikvarða
Bandaríkjamanna. Phipps var
vellauðugur og gaf borginni garðinn,
svo íbúar Pittsburgh mættu fá notið
fallegra garða og framandi plantna.
Sjálfbærnin sér ekki um sig sjálf
Orðið „conservatory“ í nafninu
vísar sérstaklega til glerhýsisins
sem er aðalmannvirkið á svæðinu
og skiptist í 14 mismunandi svæði
og/eða samtengd hýsi, hvert öðru
skemmtilegra. Því til viðbótar
eru minni háttar ytri rými, auk
þess sem 119 ára afmæli garðsins
var fagnað árið 2012 með opnun
sjálfbærnimiðstöðvar.
Sjálfbærnimiðstöðin (Center
for Sustainable Landscapes) er í
raun miðstöð um fræðslu. Sérlega
tímabært nú þegar við sjáum fram á
að þurfa að fara enn sparlegar með
orku, vatn og fleira víða um heim.
Þó auðvitað sé alltaf misskipt, enda
spurning hvort sé ekki jákvætt hér
á landi að nýta sem mest af vatninu
sem rennur til sjávar.
Sagan, líkt og tískan, fer víst í
hringi og er nú ákveðin pressa á að
nýta sem best það sem við höfum
og spara óþarfa. Það er því vonandi
horft m.a. til bændasamfélags
hvers svæðis í þeim málum, enda
oftar en ekki sá hópur sem þekkir
svæðið hvað best og hefur jafnan
haft meiri hug á sem bestri nýtingu
landgæðanna, en aðrir hópar.
Byggingin sem hýsir sjálfbærni
miðstöðina var að sjálfsögðu
hönnuð með því hugarfari að ná
sjálf sem lengst í eigin sjálfbærni.
Hún framleiðir eigin orku og
endurnýtir allt rigningavatn, svo
dæmi sé tekið. Byggingin er svo
umkringd sérvöldum gróðri sem á
sér sögu á þessum slóðum, fremur
en hinni framandi plöntuflóru sem
er annars í grasagarðinum að finna.
Enda sitt hvort hugarfarið bakvið
mismunandi hlutverk garðsins.
Slík stefna er auðvitað algeng þar
sem leitað er plantna sem þrífast vel
án mikillar fyrirhafnar. Frekar að
plantan sé þegar aðlöguð aðstæðum,
en að við séum sífellt að laga okkur
að þörfum þeirra. Eins og bændur
hér þekkja væntanlega vel, þá þýðir
það að plönturnar dafna betur og
spara okkur m.a. viðbættan áburð
og óþarfa vinnu, svo eitthvað sé
nefnt. Slíkar plöntur ættu þá einnig
að henta betur fyrir dýralíf svæðisins
og þá almenna grósku og hringrás
náttúrunnar í heild. Í þessu tilfelli
var svo einnig horft til þess að
plönturnar hefðu sérstaka kosti
umfram aðrar, þegar kemur að því
að hreinsa í kringum sig loft og vatn.
Ein grænasta bygging í heimi
Byggingin sjálf er það hlaðin
viðurkenningum og vottunum að hún
flokkast meðal grænustu bygginga
heims, þrátt fyrir að vera alls ekkert
máluð grænum lit. Raunar er
grasagarðurinn sjálfur einnig sagður
meðal umhverfisvænstu bygginga
heims og ýmsir hlutar hans með
vottun hvað það varðar. Einn þeirra
er hitabeltisskógsgróðurhúsið,
hannað til að nota 40% minni orku
en samtímis halda mun stöðugra
umhverfi fyrir plönturnar sem þar
dvelja. Það hús er alltaf tekið undir
sérstakar sýningar með ákveðnu
þema og árið 2018 lauk sýningunni
um hitabeltisskóga Kongó og við tók
ný sýning um Kúbu, næstu 3 árin.
Það þema skilar sér í plöntuvali,
sem og ýmsum upplýsingaskiltum
og öðru í innréttingum hússins.
Þykkblöðunga, kaktusa o.fl.
má finna í eyðimerkurrými og
ávaxtarými hýsir svo ávaxta
og kryddplöntur sem tengjast
hitabeltissvæðum. Svo sem sérlega
ófríðan sítrusávöxt, papaya og kaffi.
Þar mátti einnig finna banana, sem
eru líklega ekki sérlega bragðgóðir
og gert ráð fyrir að fari beinustu
leið í ruslið, miðað við staðsetningu
tunnunnar. Mér datt í hug að benda
þeim á að prófa frekar ferska
íslenska banana, en fann því miður
ekki réttan aðila til að sannfæra um
þau mál.
Enginn mörgæsamatur
Inn af góðu safni burkna og köngul
pálma gengur maður svo í hús fullt
af fallega blómstrandi brönugrösum
af hinum ýmsu stærðum og gerðum.
Brönugrasaætt (Orchidaceae)
myndar aðra af 2 stærstu
ættum blómplantna, er í dag
talin inni halda á bilinu 28.000
til 35.000 tegundir, meira en
100,000 blendinga. Enn fremur
áætluð að telja allt að 11% af
öllum fræplöntum og rekur
ættin uppruna sinn allt að 100
milljón ár aftur í tíman. Þrátt
fyrir að vera oftast kenndar við
hitabeltisloftslag, finnast plöntur
ættarinnar um heim allan. Því auk
þess að vera ræktaðar og seldar
þvert á flest landamæri heimsins,
virðast þær sérlega góðar að koma
sér fyrir við sérhæfðar aðstæður í
náttúrunni. Enda þekkjum við hér
á landi brönugrasið sem hrein
lega ber ættarnafnið á íslensku
(Dactylorhiza maculata) og
finnast um 30 tegundir jafnt í hinu
UTAN ÚR HEIMI
Phipps Conservatory and Botanical Gardens:
Ferðast um framandi gróður
Inngangurinn að Phipps Conservatory and Botanical garðinum í Pittsburgh í Pennsylvaníuríki í Bandaríkjunum. Myndir / Kristján Friðbertsson
Í einu húsinu er mikið um fiðrildi sem
gaman er að skoða.
Kristján Friðbertsson, garðyrkju
nörd.
Orkídean Alicera Sunday Best
Yellow.
Orkídean Bromecanthe Jamaica Fire.
Orkídean Encyclia alata.
Glerlistaverk sem líkja eftir plöntum voru áberandi og garðurinn hefur átt
í samstarfi við ýmsa listamenn um að skapa verk til sýninga innan um
plönturnar.
Annaðhvort er ruslatunna við
hliðina á bananatrénu vísbending
um bragðgæði eða að of margir
hafa runnið til á óstýrilátum
bananahýðum.