Bændablaðið - 26.09.2019, Síða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 201942
NMSM samtökin, sem eru
samstarfs vettvangur Norður
land anna um ýmis málefni sem
snerta mjólkurframleiðslu,
héldu nýverið aðalfund sinn og
á þeim fundi voru birtar hinar
árlegu upplýsingar um þróun
mjólkur framleiðslu Norður
landanna. Helstu upplýsingar
má sjá hér í meðfylgjandi
töflu. Þar kemur m.a. fram
að mjólkur framleiðslan stóð í
stað á milli ára en heildarfram
leiðsla Norðurlandanna á mjólk
nam alls 12,3 milljörðum lítra
í fyrra sem er nánast sama
mjólkurmagn og hefur verið
síðustu árin.
Þrátt fyrir ákveðna stöðnun í
framleiðslunni hafa kúabúin verið
að bæta mikið við sig enda fækkaði
þeim um 7,4% á milli ára og voru í
árslok 20.590 talsins.
Mjaltaþjónabúum fjölgar enn
Síðustu árin hefur mjaltaþjónabúum
fjölgað nokkuð reglulega á
Norðurlöndunum en þróunin
hefur þó verið harla ólík á milli
landanna (sjá bæði mynd og
töflu). Þannig hefur þeim fjölgað
nokkuð hratt í þeim löndum þar
sem bústærðin er að jafnaði minni,
þ.e. Noregi, Finnlandi og hér á landi
en í bæði Svíþjóð og Danmörku
hefur þróunin verið önnur. Raunar
fækkaði þeim á tíma-bili í báðum
löndum en er nú aðeins að fjölga
á ný.
Fjöldi dönsku mjaltaþjóna-
búanna er þó langt frá því að vera sá
sami og var þegar mest lét, en það
var árið 2011 þegar fjöldi þeirra fór
í 920. Nú eru búin 722 í Danmörku.
Þessi nokkuð ólíka þróun innan
Norðurlandanna skýrist eins og
áður segir af bústærðinni þar sem
afköst mjaltaþjóna takmarkast
við um það bil 65 kýr í hverjum
mjaltaþjónaklefa. Þar með hentar
tæknin síður stærri búum í jafnri
stækkun þar sem alltaf þarf að
bæta við nýrri 65 kúa einingu
við stækkun með tilheyrandi
kostnaði. Þetta kann þó að vera
að breytast með lækkandi kostnaði
hvers mjaltaþjóns með aukinni
samkeppni og nýrra tæknilegra
lausna sem gera viðbótar-
kostnaðinn minni þegar bændur
bæta afköst búanna.
Langstærsta hlutfallið hér á landi
Mjaltaþjónabúum, talin sem starfandi
bú 31. desember 2018, fjölgaði á
árinu úr 4.811 í árs lok 2017 í 5.187
um síðustu áramót eða alls um 376
bú. Árið þar á undan fjölgaði þeim
ekki nema um 182 bú og árið þar
á undan um 185 bú svo síðasta ár
sker sig verulega úr með tvöfalt
meiri fjölgun mjaltaþjóna búa sem
bendir til betri stöðu kúabúanna á
Norðurlöndum nú.
Í árslok 2018 voru mjaltaþjónar á
fjórða hverju kúabú Norðurlandana
(25,2%) en hæsta hlutfallið var hér á
landi en um síðustu áramót var þessi
mjaltatækni á 35,4% af kúabúum
landsins.
Rúmlega 8 þúsund mjaltaþjónar!
Eins og hér að framan greinir
þá fjölgaði mjaltaþjónabúunum
um 376 bú en mjaltaþjónunum
sjálfum fjölgaði mun meira eða um
474. Í árslok síðasta árs var fjöldi
mjaltaþjóna í notkun kominn í 8.227
stykki. Flesta mjaltaþjóna er enn að
finna í Danmörku eða 2.132 en
bæði Noregur og Svíþjóð
eru skammt undan
með annars vegar
2.052 og 2.065
mjaltaþjóna.
Það er við-
búið að yfir-
burðastaða Dana
á þessu sviði sé
að líða undir lok
haldi þróunin innan
Norður l andanna
áfram með svipuðu
sniði á komandi árum.
Það eru reyndar tíðindi að sjá
að mjaltaþjónum fjölgar á ný í
Danmörku eftir nokkra fækkun á
liðnum árum.
Dönsk mjólkurframleiðsla
langstærst
Líkt og undanfarin ár þá er
danska mjólkurframleiðslan
langumsvifamest innan Norður-
landanna en dönsku kúabúin fram-
leiddu í fyrra 5,6 milljarða lítra eða
45,6% allrar mjólkur á Norður-
löndum. Árið 2017 var þetta hlutfall
44,6% og hefur þetta hlutfall dönsku
búanna aukist ár frá ári undanfarin
ár.
Næststærsta framleiðsluland
mjólkur á Norðurlöndunum er
svo Svíþjóð með 22,4% og þar
á eftir kemur svo Finnland með
19,1%. Norsku kúabúin standa svo
undir 11,7% og við Íslendingar
rekum síðan lestina með 1,2%
af heildarframleiðslu mjólkur á
Norðurlöndunum.
Langstærstu búin í Danmörku
Meðalbústærðin á Norðurlönd-
unum er nú komin í 67 árskýr
og jókst bústærðin í
öllum löndunum
nema Danmörku
á síðasta ári, í
samanburði við
árið 2017. Þrátt
fyrir að þar hafi
kúabúin ekki
vaxið á árinu eru
dönsku kúabúin
langstærst en þar var
meðalbúið með 193
árskýr í árslok 2018.
Bústærðin á hinum
Norður löndunum er mun minni en
næststærstu búin eru í Svíþjóð þar
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Jarle Rueslåtten í Norsk Gardsost og Ann-Norill Stennes í Tine hafa komist
að samkomulagi sem veitir svæðisbundnum ostaframleiðendum aðgang
að þjónustu hjá mjólkursamlaginu Tine. Mynd / Peder Buskenes, Tine
Mjólkursamlagið Tine í Noregi:
Aðstoðar smáframleiðendur og
miðlar þekkingu í ostagerð
Mjólkursamlagið Tine í Noregi
hefur nú gert samkomulag við
norska ostaframleiðendur um að
160 meðlimir í Norsk Gardsost
fái nú aðgang að sérþekkingu,
tækjabúnaði, viðhaldi og þjónustu
hjá fyrirtækinu sem með þessu
móti aðstoða samkeppnisaðila
sína.
Tine hefur um nokkurt skeið
keyrt osta fyrir meðlimi Norsk
Gardsost í verslanir og veita nú
samkeppnisaðilum sínum enn
frekari þjónustu. Þeir munu einnig
bjóða framleiðendunum upp á eftir-
fylgni á vörugæðum, eftir fylgni og
samband við Matvælaeftirlitið,
aðstoð við endurskoðun og sýna töku
af lofti, vatni og umhverfi. Eftirlit
á mjólkurstöðvum og tækni hlutum
róbóta, fyrirbyggjandi viðhald og
viðgerðir á kæli kerfum og mjólkur-
tönkum er einnig nýtt tilboð til
framleiðandanna. Þar að auki geta
meðlimir í Norsk Gardsost nú pantað
og keypt notaða mjólkurtanka.
„Við höfum náð góðum samn-
ingi við Tine sem byggir enn
frekar á því góða samstarfi sem
við höfum haft og styrkir okkar
framleiðendur. Tine vill bjóða
upp á þessa þjónustu við okkar
félagsmenn þó að þeir afhendi ekki
mjólk til þeirra. Samkomulagið
þýðir einnig að okkar meðlimir fá
aðgang að faglegri ráðgjöf þegar
kemur að gæðastjórnun ásamt
greiningum á mjólk og tilbúnum
vörum úr rannsóknarstofum. Við
vonum að þetta geti hjálpað til
gegn innflutningsstraumnum og
til að upphefja enn frekar norska
mjólk og ost. Við teljum að þetta
geti orðið upphafið að einhverju
mjög góðu,“ segir Jarle Rueslåtten,
stjórnarformaður Norsk Gardsost.
Fram til ársins 2003 voru mjólkur-
samlög sem Tine lögðu niður og
seldu byggingarnar með ákvæðum
um að ekki ætti að nýta þær til
mjólkursamlaga aftur. Vikedal-
mjólkursamlagið í Rogaland var
fyrsta mjólkursamlagið sem var selt
án slíkra ákvæða og eftir það hefur
samvinna milli Tine og svæðis-
bundinna ostaframleiðenda orðið
betra og betra. Í mörg ár hefur Tine
dreift ostum í verslanir fyrir minni
framleiðendur þegar þeir keyra út
vörur sínar um allan Noreg. Á þessu
ári hafa þeir dreift um 900 þúsund
einingum, eða um 20 þúsund tonnum
fyrir smáframleiðendur og magnið
eykst frá ári til árs. /ehg
-
200
400
600
800
1.000
1.200
1.400
1.600
1.800
2.000
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Danmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð
Þróun útbreiðslu mjaltaþjónabúa á Norðurlöndunum frá 1998.
Norðurlöndin framleiddu rúmlega
12,3 milljarða lítra af mjólk 2018
Í árslok 2018 voru mjaltaþjónar á fjórða hverju kúabú Norðurlandanna
(25,2%) en hæsta hlutfallið var hér á landi en um síðustu áramót var þessi
mjaltatækni á 35,4% af kúabúum landsins. Mynd / HKr.
Varað við salmonellusmiti í
eggjum á Bretlandseyjum
Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa
sent frá sér viðvörun vegna hættu
á salmonellusýkingu í eggjum.
Viðvörunin kemur í framhaldi af
eftirliti á meðferð eggja sem sýndi
að reglur um hreinlæti og geymslu
eggja voru brotnar á öllum stigum
framleiðslu, pökkunar og sölu.
Síðastliðin þrjú ár hafa ríflega
eitt hundrað einstaklingar á
Bretlandseyjum veikst alvarlega
vegna salmonellu sem rakin er
til neyslu á eggjum. Í framhaldi
af þessu hóf eftirlitsstofnun, sem
kallast Food Standards Agency,
rannsókn á orsökum sýkinganna. Í
ljós kom að meðferð á eggjun hvað
varða hreinlæti, geymslu og flutning
voru þverbrotnar á öllum stigum
framleiðslunnar.
Misalvarleg tilfelli
Sýkingarnar sem um ræðir stafa af
mismunandi stofnum salmonella
og eru í flestum tilfellum skaðlitlar
en geta valdið sýkingum í ófrískum
konum, börnum og gamalmennum
og þeim sem hafa skert ónæmiskerfi.
Í alvarlegustu tilfellum hefur fundist
stofn sem kallast Salmonella
enteritidis og þykir einstaklega
skæður og getur valdið alvarlegum
sýkingum.
Samkvæmt því sem talsmaður
eftirlitsstofnunarinnar sagði skipta
reglugerðabrotin þúsundum og
breytir þar engu hvort um er að
ræða býli sem framleiddu egg,
pökkunarstöðvar og kæla í verslunum.
Víða væri pottur brotinn og nánast
alls staðar væri hægt að gera betur
til að tryggja gæði eggjanna.
Í öllum tilfellum voru eggin
gæðavottur með stimpli breska
ljónsins sem tryggja á gæði þeirra
og hollustu.
Eftirliti víða ábótavant
Við nánara eftirlit og skoðun kom í
ljós að þrátt fyrir að salmonella hafi
greinst í fjölda sýna hafi egg verið
sett á markað. Einnig kom fram
að sýnatöku og eftirliti var víða
ábótavant eða því einfaldlega sleppt.
Samkvæmt samantekt stofnunar
á Bretlandseyjum sem fjallar um
heilsufar dýra segir að í einni
af hverjum sex eftirlitsferðum
undanfarin þrjú ár hafi verið gerð
athugasemd vegna hreinlætis,
aðbúnaðar dýra og gæða eggja á
kjúklingabúum.
Bretar neyta um 1,3 milljarða
eggja á ári og nánast öll eru
framleidd innanlands og helmingur
frá býlum sem vottuð eru með
lausagönguhænur.
Samkvæmt yfirlýsingu frá
stjórnvöldum verður gripið til
aðgerða til að stemma stigu við
frekari útbreiðslu salmonellu og
eftirlit með framleiðslunni hert. /VH