Bændablaðið - 10.10.2019, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 20192
Á aðalfundi Beint frá býli, félags
heimavinnsluaðila, síðastliðið vor
var geitabóndinn Lovísa Rósa
Bjarnadóttir á Háhól í Hornafirði
kjörin formaður. Hún tekur við
af Petrínu Þórunni Jónsdóttur,
svínabónda í Laxárdal.
Nýja stjórn skipa auk Lovísu,
þau Anna Sigurbjörg Sævarsdóttir
gjaldkeri og Hafdís Sturlaugsdóttir
ritari. Í varastjórn eru Sigrún Helga
Indriðadóttir og Guðmundur Jón
Guðmundsson.
Vinna sjálf allt sitt kjöt
Háhóll í Hornafirði er í um
fjóra kílómetra frá þéttbýlinu
Höfn. Lovísa Rósa er gift Jóni
Kjartanssyni og eiga þau þrjá syni.
„Við höfum búið með geitur frá
því 2012 og í dag erum við með
um 70 geitur veturfóðraðar. Kjöt
frá okkur er hægt að nálgast beint
frá okkar býli, en einnig höfum
við selt í gegnum REKO og verið
á matarmörkuðum. Við vinnum
allt okkar kjöt sjálf, en við höfum
aðgang að kjötvinnslu hér í sveitinni
þar sem við úrbeinum, vinnum
kjötið og pökkum. Einnig höfum
við framleitt geitasápur og selt sútað
geitaskinn, stökur.
Eðlilega eru 70 geitur ekki
fullt starf, en við eigum og
rekum fyrirtækið Rósaberg ehf.
sem er í jarðvinnuverktöku og
steypuframleiðslu,“ segir Lovísa.
Hefur margvíslega
reynslu af félagsstörfum
„Ég kem alveg ný inn í stjórnina
og hlakka mikið
til að vinna þar
að málefnum
félagsins. Ég
hef reynslu af
ýmiss konar
félags starfi sem
ég vonast til
að muni nýtast
mér vel í þeim
verkefnum sem
fram undan eru.
E m b æ t t i ð
leggst vel í mig
og ég hlakka til
að starfa með
félaginu. Það eru
mörg spennandi
verk efni fram
undan; meðal
annars er unnið
að endur nýjun
og uppfærslu á vef félags ins, unnið
er í afsláttarmálum fyrir félaga auk
þess sem kynningarefni er í vinnslu.
Við viljum gera gæðamerki félagsins
meira áberandi fyrir neytendur og
hvetja til aukinnar heimavinnslu og
-sölu og gera rekjanleika vörunnar
hátt undir höfði.“
Samvinna við félag
smáframleiðenda
Að sögn Lovísu hefur þarfagreining
verið unnin fyrir félagið og nú
sé verið að
forgangs raða
a t r i ð u n u m
sem þar komu
fram. „Mörg
verkefni komu
fram í þarfa-
gre in ing unni
sem mögulega
verður hægt að
vinna sameigin-
lega með ný-
stofnuðu fél agi
smá fram leið-
enda [Samtök
smá fram leið -
enda matvæla]
og ég held að
það geti orðið
fleiri samlegðar-
áhrif þar á milli.
Til dæmis þau
málefni sem snúa að stjórn-
völdum, breytingar og útfærslur
á reglu gerðum sem eiga við um
smærri framleiðendur. Stjórn mun
kynna það fyrir félagsmönnum
sínum á næstu vikum og leggja
svo fyrir á næsta aðalfundi hvort
Beint frá býli muni gerast aðili að
nýju samtökunum.
Þetta er svona það helsta sem
er fram undan hjá okkur og svo
auðvitað að efla félagið innan frá
og tengslanetið innan félagsins,“
segir Lovísa. /smh
FRÉTTIR
VERÐ FRÁ 79.900 KR.
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS/BORGIR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
VOR 2020
ÚRVAL SPENNANDI ÁFANGASTAÐA
Matvælasvindl til umræðu á ráðstefnu Matís:
Gríðarlega umfangsmikil starfsemi
sem skilar miklum hagnaði
– Ísland tekur þátt í samstarfsverkefnum við Norðurlöndin og á vettvangi Evrópusambandsins
Umfang matvælasvindls í
heiminum er talið vera gríðar
lega mikið, enda er það að finna
á mörgum sviðum matvæla
fram leiðslu. Á síðustu árum
hafa yfirvöld þjóða tekið höndum
saman við að stemma stigu við
þessu vandamáli, eftir að nokkur
afdrifarík mál komust í heims
fréttirnar.
Ísland er í Evrópusamstarfi
um þessi mál auk þess að vera í
sérstöku norrænu samstarfi gegn
matarsvindli og kynnti Herdís M.
Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá
Matvælastofnun, þá samvinnu á
ráðstefnu sem Matís stóð fyrir á
dögunum um þessi mál.
Yfirskrif ráðstefnunnar var
Food Fraud (Matvælasvindl) og
þar ræddu sérfræðingar frá Matís
og Matvælastofnun málefnið út
frá nokkrum hliðum, auk þess
sem Roy Fenoff, bandarískur
háskóla prófessor, hélt erindi um
innleiðingu á stefnumótun hjá
ríki eða sveitarfélögum varðandi
úttektir á hættu á matvælasvindli
og forvarnir gegn því.
Herdís sagði í erindi sínu að eftir
að upp komst um kjötsvindl í Evrópu
árið 2013, þegar hrossakjöt hafði
verið selt sem nautakjöt í talsverðum
mæli, hafi í kjölfarið verið sett
á laggirnar samstarfsverkefni á
vegum Evrópusambandsins (EU
Food Fraud) árið 2015.
Sjónum beint að tilteknum
matvörutegundum
Ísland er þátttakandi í því verkefni,
sem felst meðal annars í samvinnu
lögregluyfirvalda landanna í
átaksverkefnum sem beinast þá
gegn tilteknum matvörum sem
grunur leikur á að tengja megi
matvælasvindli.
Að sögn Herdísar felst skil-
greining Evrópusambandsins á
matvæla svindli í því að þar þurfi
að vera um brot á reglum Evrópu-
sambandsins að ræða, ásetningur
um slíkt brot þurfi að vera fyrir
hendi með gróðavon fyrir augum
og þeim tilgangi sé náð með því
að svindla, svíkja eða blekkja
neytendur.
Hún segir að algengustu tilfelli
matvælasvindls í dag séu í vöru-
tegundum á borð við ólífuolíu,
víni og lífrænt vottuðum vörum
auk þess sem mikið sé svindlað
með fisk- og kjöttegundir. Þar séu
svikin sérstaklega umfangsmikil,
til að mynda í tilbúnum réttum. Til
að gefa hugmynd um hversu öflug
og skipulögð þessi brotastarfsemi er
sagði Herdís að talið sé að á heimsvísu
skili matvælasvindlsstarfsemi mun
meiri hagnaði en öll samanlögð
fíkniefnaframleiðslan.
Evrópusambandið heldur utan
um gagnabanka þar sem neytendur
geta leitað eftir málum sem hafa
komið upp og skoðað vörumerki í
tengslum við matarsvindlsmál.
Norðurlöndin miðla lærdómi
og samræma aðgerðir
Í lok erindis síns ræddi Herdís
aðeins um hið samnorræna
verkefni. Það var stofnað til þess
árið 2018 og það nær fram á næsta
ár, en það er styrkt af Norrænu
ráðherranefndinni. Markmið þess
er að auka samvinnu og samræma
skilgreiningar, leiðbeiningar og
fræðslustarfsemi landanna um
þessi mál. Er þar gert ráð fyrir
sameiginlegum aðgerðum yfir
landamæri og þjálfun eftirlitsaðila,
tollgæslu- og lögreglumanna.
Herdís tiltók tvö dæmi um
matvælasvindlsmál sem hafa
komið upp á öðrum Norðurlöndum
og Íslendingar geti lært af. Í Svíþjóð
var afhjúpað kjöttegundarsvindl
þegar svínakjöt var litað rautt og
selt sem nautakjöt og í Finnlandi
voru innflutt hindber seld sem
finnsk ber, á miklu hærra verði
en ef þau hefðu verið seld sem
innflutt.
Upptökur frá ráðstefnunni eru
aðgengilegar í gegnum Facebook-
síðu Matís á slóðinni https://www.
facebook.com/matisiceland. /smh
Frá ráðstefnu Matís á dögunum. Mynd / Matís
Herdís M. Guðjónsdóttir, sérfræð
ingur hjá Matvælastofnun.
Mynd / Pétur Haukur Helgason
Geitabóndinn Lovísa nýr formaður Beint frá býli
– hvetur til aukinnar heimavinnslu og -sölu
Lovísa Rósa Bjarnadóttir.
VOR og RML
í samstarf
Eygló Björk Ólafsdóttir, formaður
VOR (félags framleiðenda í líf
rænni landbúnaðarframleiðslu)
og Karvel L. Karvelsson,
framkvæmda stjóri Ráðgjafar
miðstöðvar landbúnaðarins
(RML), undirrituðu á mánudaginn
samn ing um ráðgjöf til nýliða í
lífrænni ræktun.
Gert er ráð fyrir að ráðgjöfin
verði að mestu leyti fjármögnuð
með þeim fjármunum sem urðu
afgangs af því fjármagni sem hafði
verið veitt til aðlögunarstuðnings árið
2017 í verkefni til eflingar lífrænnar
framleiðslu hér á landi.
Eftirspurn eftir ráðgjöf
Að sögn Eyglóar hefur verið talsverð
eftirspurn frá nýliðum í lífrænni
ræktun um ráðgjöf og er þessi
samningur viðbragð við því. Hún
segir að ráðgjöfin sé hugsuð þannig
að einn starfandi bóndi í lífrænum
búskap, sem VOR viðurkennir, sinni
henni ásamt einum ráðgjafa frá RML.
Hugmyndin byggir á þeim
markmiðum VOR að deila þekkingu
og reynslu þeirra bænda sem starfa
í lífrænni ræktun til þeirra sem
eru að byrja – og efla þekkingar-
samfélagið í lífrænum landbúnaði
hér á landi. Með aðkomu RML
mun þekkingargrunnurinn vaxa og
samstarfs möguleikar aukast.
Með stuttri heimsókn séu nýliðarnir
aðstoðaðir við að sjá út tækifæri og
huga að framleiðsluaðferðum, ná
upp skilvirkni og nýta sem best þá
kosti sem framleiðslustaðurinn býður
upp á.
Hverjir teljast nýliðar?
Í samningnum er gert ráð fyrir
að þeir teljist nýliðar sem séu í
frumframleiðslu í landbúnaði,
séu í aðlögunarferli að lífrænni
ræktun samkvæmt samningi við
vottunarstofu eða á fyrstu þremur
árum vottaðrar framleiðslu.
Verkefnið er tilraunaverkefni til
eins árs; frá 1. október 2019 til 1.
október 2020, og geta nýliðar sótt
um ráðgjöf með erindi til VOR,
með lýsingu á verkefninu og megin
viðfangsefni í væntanlegri heimsókn
ráðgjafa. /smh
Eygló Björk Ólafsdóttir og Karvel
L. Karvelsson við undirritun samn
ingsins.