Bændablaðið - 10.10.2019, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201930
Á dögunum stóð Hótel- og
matvæla skólinn í Kópavogi fyrir
nýstárlegum viðburði í sam vinnu
við sendiráð Japans á Íslandi,
þegar nemendur á sérstöku nám-
skeiði við skólann voru kynntir
fyrir nokkrum grundvallarþáttum
í japanskri matargerð – með
sérstaka áherslu á lambakjöt sem
hráefni.
Icelandic Lamb lagði til
íslenskt lambakjöt og svo fór
japanski matreiðslu meistarinn
Giichi Takasawa, sem starfar
sem matreiðslumeistari japanska
sendiráðsins, í gegnum nokkrar
útfærslur sem Japanir fara í sinni
matreiðslu með notkun lambakjöts
sem hráefnis.
Að sögn Tomoko Daimaru, sem
starfar hjá japanska sendiráðinu, var
um tveggja daga námskeið að ræða;
á fyrri deginum var nemendum
skólans kennt en á þeim seinni var
opið fyrir gesti. Námskeiðið var
bæði í fyrirlestraformi – þar sem
farið var til dæmis yfir matarhefðir
Japana – og svo fólst hluti þess í
verklegri kennslu líka. Meðal
annars var bragðfyrirbærið „umami“
útskýrt, sem er eitt mikilvægasta
bragðeinkenni japanskrar matar
gerðar og má til dæmis finna í ríkum
mæli í soði hvers konar, núðlusúpum
og sojasósu.
Súpusoð með þangi og
þurrkuðum fiskflögum
Daimaru segir að verklega
námskeiðið hafi þannig meðal
annars falist í því að gera „dashi“,
sem er súpusoð sem soðið er niður
með þangi og þurrkuðum flögum af
bonitofiski (makrílættar). Þá sýndi
hann til að mynda hvernig matreiða
á japanskættaðan lambakarrírétt,
engiferlambarétt og rétt sem heitir
Chawanmushi og er krembúðingur
með gufusoðnum eggjum. Þegar
kennslu var lokið var afraksturinn
borðaður.
Giichi Takasawa lagði áherslu
á í sínum leiðbeiningum að
nemendurnir geti lagað íslenskt
hráefni að japanska eldhúsinu
og þess vegna voru áðurnefndir
lambakjötsréttir valdir. Daimaru
þakkar framlag Icelandic Lamb og
segir að Íslendingar geti heimfært
ýmislegt í matarmenningu Japana
til Íslands.
Lambakjöt er að sögn Daimaru
mjög algengt hráefni í matargerð
á tilteknum svæðum í Japan, til að
mynda á eyjunni Hokkaido, sem er
nyrsta eyjan af stærstu eyjum Japans.
Hún segir íslenska lambið sérstakt
að gæðum og eigi mikla möguleika
á japönskum mörkuðum. Hún segir
áhuga hjá japanska sendiráðinu á því
að aðstoða við að glæða áhuga fleiri
Japana á kjötinu. /smh
LÍF&STARF
Japanskur matreiðslumeistari leiðbeindi Íslendingum um japanskar hefðir í notkun á lambakjöti:
Þangsoð og japanskt lambakarrí
– Það má heimfæra ýmislegt í matarmenningu Japana upp á íslenska eldhúsið
Japanski matreiðslumeistarinn Giichi Takasawa, sem starfar sem
matreiðslumeistari japanska sendiráðsins, leiðbeindi íslensku áhugafólki
meðal annars um notkun á lambakjöti sem hráefni.
Bænda
24. október
Íslenskir matreiðslumeistarar að störfum við veisluborð hlaðið japönskum réttum þar sem áherslan var lögð á íslenska lambakjötið. Myndir / Sendiráð Japans